Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra er nú með málaflokk fjarskiptamála í sínu fangi og því skrifuð fyrir hinum nýja lagabálki um fjarskiptamál, sem lagður var fram á þingi um helgina.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra er nú með mála­flokk fjar­skipta­mála í sínu fangi og því skrifuð fyrir hinum nýja laga­bálki um fjar­skipta­mál, sem lagður var fram á þingi um helg­ina. Mynd: Bára Huld Beck

Sektarheimildin sem íslensku fjarskiptafyrirtækin vildu alls ekki sjá snýr aftur

Samkvæmt nýju stjórn­ar­frum­varpi til fjar­skipta­laga verður hægt að sekta fjar­skipta­fyr­ir­tæki um allt að 4 pró­sent af árlegri heild­ar­veltu fyrir brot á lög­unum. Í til­felli Símans gæti sekt af slíkri stærð­argráðu numið tæpum millj­arði króna.

Fjar­skipta­stofa mun fá heim­ild til þess að beita fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins stjórn­valds­sektum, sem numið geta allt að fjórum pró­sentum af veltu síð­asta rekstr­ar­árs, sam­kvæmt stjórn­ar­frum­varpi til nýrra fjar­skipta­laga, sem lagt hefur verið fram af Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra.

Um er að ræða frum­varp sem felur í sér heild­ar­end­ur­skoðun fjar­skipta­laga, en hinn nýi laga­bálkur á að leysa af hólmi eldri fjar­skipta­lög frá árinu 2003. Frum­varpið er afar efn­is­mikið og felur í sér inn­leið­ingar á ýmsum reglum Evr­ópu­sam­bands­ins um fjar­skipta­mark­að­inn – meðal ann­ars nýjum ákvæðum um eft­ir­lit og við­ur­lög.

Hvað það varðar eru áður­nefndar sekt­ar­heim­ildir helsta breyt­ingin. Samkvæmt gild­andi fjar­skipta­lögum getur Fjar­skipta­stofa, sem áður hét Póst- og fjar­skipta­stofnun, ein­ungis lagt á dag­sektir en hefur ekki almenna heim­ild til að leggja á stjórn­valds­sektir vegna brota á fjar­skipta­lögum.

Það er því verið að skerpa á eft­ir­lits­hlut­verki stofn­un­ar­innar.

Fjarskiptafyrirtækin lögðust hart á móti

Stjórn­völd voru þegar búin að gera atlögu að því að skrifa þessar nýju sekt­ar­heim­ildir Fjar­skipta­stofu inn í aðrar og minni breyt­ingar á fjar­skipta­lögum sem verið hafa til þing­legrar með­ferðar.

Stærstu fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins, Sím­inn, Sýn og Nova, hafa gagn­rýnt þessa nýju fyr­ir­hug­uðu sekt­ar­heim­ild nokkuð harð­lega í umsögnum sínum um það þing­mál í vetur.

Sam­tök atvinnu­lífs­ins, Við­skipta­ráð og Sam­tök iðn­að­ar­ins lögð­ust einnig gegn sekt­ar­heim­ild­inni í sam­eig­in­legri umsögn sinni um málið og sögðu hags­muna­sam­tökin þrjú að órök­stutt væri af hverju miðað væri við allt að 4 pró­sent af heild­ar­veltu, auk þess sem orða­lag sekt­ar­á­kvæð­is­ins væri óskýrt.

Frestað – en ekki lengi

Í byrjun febr­úar ákvað meiri­hluti umhverfis- og sam­göngu­nefndar að láta ákvarð­anir um umrætt sekt­ar­á­kvæði koma til frek­ari skoð­unar við und­ir­bún­ing fram­lagn­ingar eða þing­lega með­ferð frum­varps til heild­ar­laga um fjar­skipti, sem nú hefur litið dags­ins ljós.

Þar eru sem áður segir skrif­aðar inn stjórn­valds­sektir sem geta verið allt að 4 pró­sent af veltu fyr­ir­tækj­anna.

Það þýðir, ef horft er til Símans, sem velti 24 millj­örðum árið 2020, að Fjar­skipta­stofa gæti slengt á fyr­ir­tækið 960 millj­óna króna stjórn­valds­sekt ef það hefði ár árinu 2021 orðið upp­víst að ein­hverri hátt­semi sem ekki stenst hin nýju fjar­skipta­lög.

En það þyrfti þá að vera mjög alvar­legt brot.

Fimm ára fyrningarfrestur

Um sekt­ar­heim­ild­ina segir í frum­varpi Áslaugar Örnu að við ákvörðun á fjár­hæð sekta skuli hafa hlið­sjón af eðli og umfangi brota, hvað brot hafa staðið lengi og hvort um ítrekað brot er að ræða. Einnig segir frá því að stjórn­valds­sektum verði beitt „óháð því hvort lög­brot eru framin af ásetn­ingi eða gáleysi“ og að ákvörð­unum Fjar­skipta­stofu um sektir megi skjóta til úrskurð­ar­nefndar fjar­skipta- og póst­mála.

Lagt er upp með að heim­ild Fjar­skipta­stofu til að leggja á stjórn­valds­sektir falli niður þegar fimm ár eru liðin frá því að hátt­semi lauk, en þó rofnar sá frestur um leið og Fjar­skipta­stofa til­kynnir aðila um upp­haf rann­sóknar á meintu broti.

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar frá því í byrjun febr­úar sagði að á fundum nefnd­ar­innar hefði verið bent á að fjár­hæð stjórn­valds­sekt­anna væri „hvergi rök­studd en ljóst væri að fjár­hæð sekt­anna sem hlut­fall af heild­ar­veltu síð­asta rekstr­ar­árs gæti verið óhóf­lega há.“

Horft til persónuverndarlaga sem fyrirmyndar

Í hinu nýja frum­varpi segir að við smíði nýja við­ur­laga­á­kvæð­is­ins hafi verið leitað fyr­ir­myndar í ákvæði um heim­ild Per­sónu­verndar til að leggja á stjórn­valds­sektir hvað fjár­hæð sekt­anna varðar, en í lögum um per­sónu­vernd er einmitt kveðið á um heim­ild til þess að sekta fyr­ir­tæki um allt að 4 pró­sent af árlegri heild­ar­veltu á heims­vísu fyrir ákveð­inn flokk brota.

Einnig segir í frum­varp­inu að horft hafi verið til sam­keppn­islaga sem fyr­ir­myndar hvaða fram­setn­ingu varðar, en því tengt má nefna að Sam­keppn­is­eft­ir­litið lýsti sig hlynnt því að sektir myndu taka við af efna­hags­legum styrk­leika fyr­ir­tækja í umsögn um þing­málið þar sem þessi sekt­ar­heim­ild var fyrst viðruð. Samkvæmt því sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið sagð­ist kom­ast næst hefur hámarks­sekt­ar­heim­ild vegna brota á fjar­skipta­lögum verið 10 millj­ónir króna.

„Sekt­ar­heim­ildir eft­ir­lits­stjórn­valda sem hlut­fall af veltu þess fyr­ir­tækis er ger­ist brot­legt við við­kom­andi lög og regl­ur, eru til þess fallnar að hafa almenn og sér­tæk varn­að­ar­á­hrif á við­kom­andi mark­aði og auka þar með hlít­ingu fyr­ir­tækja vegna við­kom­andi reglna sem lög­gjaf­inn hefur ákveð­ið. Með sam­bæri­legum hætti eru sekt­ar­heim­ildir með til­tölu­lega lágu hámarks­þaki, eins og í til­viki Fjar­skipta­stofu, ekki til þess fallnar að hafa slík áhrif,“ sagði í umsögn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um hið fyrra þing­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið undanfarið ár