Farsímamarkaði bróðurlega skipt í þrennt

Nova náði þeim áfanga á síð­ari hluta árs­ins 2015 að vera það fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins sem er með mesta mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði. Síminn hafði haldið á þeim kyndli frá upp­hafi far­síma­tíma­bils­ins hér á Íslandi. Bilið á milli Nova og Símans hefur auk­ist lít­il­lega á fyrri hluta árs­ins 2016. Í lok júní var Nova með 149.850 við­skipta­vini og 34,4 pró­sent mark­aðs­hlut­deild, en Síminn með 147.126 við­skipta­vini og 33,7 pró­sent mark­aðs­hlut­deild. Þetta kemur fram í nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar sem sýnir stöð­una á fjar­skipta­mark­aði um mitt ár 2016.

Þótt föstum áskriftum hjá Nova fjölg­i alltaf ár frá ári er það enn svo að tæp­lega tveir af hverjum þremur við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins eru með fyr­ir­fram­greidda þjón­ustu, svo­kall­að frelsi.

Nova er samt sem áður það fyr­ir­tæki á fjar­skipta­mark­aði sem tekur til­ sín nán­ast alla við­bót­arnot­endur sem bæt­ast við far­síma­mark­að­inn á ári hverju. Frá árs­lokum 2012 hefur við­skipta­vinum Nova til að mynda fjölgað um 37 þús­und, sem er nákvæm­lega sama fjölgum og hefur alls orðið á far­síma­mark­aðnum frá þeim tíma.

Vodafone mun styrkjast við kaupin á 365

Þriðji ris­inn á fjar­skipta­mark­aði er síðan Vodafone. Því hefur tek­ist að halda vel á áskrift­ar­fjölda sínum á far­síma­mark­aði og raunar bætt við sig rúm­lega sex þús­und við­skipta­vinum frá miðju ári í fyrra. Alls ­nemur mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins 27,5 pró­sent­um.

365 sam­ein­að­ist Tali í des­em­ber 2014 og tók þar með yfir far­síma­við­skipti síð­ar­nefnda ­fyr­ir­tæk­is­ins. Alls eru við­skipta­vinir 365 í far­síma­þjón­ustu nú um 16.335 tals­ins. Það er umtals­vert færri við­skipta­vinir en Tal var með í árs­lok 2012, þegar þeir voru um 20 þús­und.

Í ágúst var greint frá því að Vodafone hefði hafið einka­við­ræður um að kaup á ljós­vaka- og fjar­skipta­eignum 365 miðla. Verði af kaup­unum mun Vodafone auka veltu sína um hátt í tíu millj­arða króna og vera mun betur í stakk búið til að keppa við sinn að­al­keppi­naut, Sím­ann sem þegar rek­ur víð­feðm­a ­sjón­varps­þjón­ustu, á sjón­varps­mark­að­i. Sam­an­lagt verða við­skipta­vinir hins sam­ein­aða fyr­ir­tæki á far­síma­mark­aði 136.023 og sam­eig­in­leg mark­aðs­hlut­deild 31,2 pró­sent. Vodafone verður því ekki langt frá Símanum, sem er með 33,7 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði, og Nova, sem er með 34,4 pró­sent hlut­deild.

Gangi kaupin eftir sam­kvæmt þeim for­sendum sem fyrir liggja ætti að vera hægt að ganga frá kaup­samn­ingi fyrir jól. Þá ættu eft­ir­lits­að­ilar hins vegar eftir að taka kaupin til umfjöll­un­ar­. Því má gera ráð fyrir að ekki verið gengið end­an­lega frá þeim fyrr en á fyrri hluta árs­ins 2017, náist saman milli aðila.

Í til­kynn­ingu sem Vodafone, sem er skráð á hluta­bréfa­markað, sendi út vegna við­ræðn­anna í ágúst, kom fram að fyr­ir­tækið ætl­aði sé að greiða 3,4 millj­arða króna fyrir þær eignir 365 miðla sem félagið hefur áhuga á að kaupa. For­sendur þess kaup­verðs eru grund­vall­aðar á því að þær upp­lýs­ingar ráð­gjafa 365 um rekstur og virði þeirra eigna stand­ist. Þar ber helst að nefna að rekstr­ar­hagn­aður (EBITDA) þeirra gæti numið allt að tveimur millj­örðum króna á árs­grund­velli. Það er tvö­faldur rekstr­ar­hagn­aður 365 miðla í fyrra, þegar hann nam 955 millj­ónum króna. Hluti þess­arar upp­hæðar mun nást fram með sam­lægð­ar­á­hrifum í fjar­skipta­þjón­ustu 365, þar sem henni verður ein­fald­lega rent inn í Vodafone.

SMS-um fækkar stöðugt

Þótt fjöl­margir nýir sam­skipta­miðlar hafi bæst við flór­una á und­an­förnum árum þá senda Íslend­ingar enn nokkuð mikið af SMS-skila­boð­um. Á fyrri hluta árs­ins 2016 voru send um 90 milljón SMS, eða um tíu pró­sent færri en á sama tíma­bili 2015.

Lík­legt verður að telj­ast að SMS-ið mun áfram eiga und­ir­ högg að sækja, enda bjóða sam­skipta­for­rit á vegum Facebook, Apple og fleiri slíkra upp á mun fleiri mögu­leika í sam­skiptum en SMS-in. 

Þetta er síð­ari frétta­skýr­ing Kjarnans um nýja skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar. Fyrri skýr­ingin birt­ist í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið undanfarið ár