„Auðvitað verður þetta frábært sumar“

„Hvað heldur þú Alma, heldur þú að sum­arið verði gott?“ Bjart var yfir þrí­eyk­inu á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Þó að ekki sé búið að tala við veð­ur­fræð­inga telur sótt­varna­læknir að við getum átt von á betra sumri í ár en í fyrra.

Þórólfur Guðnason, Alma Möller og Víðir Reynisson.
Þórólfur Guðnason, Alma Möller og Víðir Reyn­is­son. Mynd: Lögreglan

„Aðeins svona á léttu nót­unum,“ sagði Arn­hildur Hálf­dán­ar­dóttir frétta­maður á RÚV, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Hvernig verður sum­arið? Verður hægt að halda stórar sam­komur, halda hátíðir, fara til útlanda?“

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sem mættur var á fund­inn eftir tveggja vikna „sum­ar­frí“ svar­aði að bragði: „Sumarið verður gott.“

[links]Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir tók hlæj­andi undir það. „Sumarið verður gott,“ end­ur­tók hann. „Við höfum ekki talað við veð­ur­fræð­ing­ana um það en ég held að við getum horft björtum augum fram á sum­arið. Ef allt gengur eins og við erum að von­ast til, það gengur vel í bólu­setn­ing­unum, við komum til með að fá meira af bólu­efni heldur en við gerðum ráð fyrir og von­andi kemur ekki bakslag þar, þá getum við létt tölu­vert á [aðgerðum] og átt betra sumar en við áttum í fyrra.“

Hann sagði það auð­vitað mis­mun­andi hvaða skiln­ing fólk legði í „gott“ sumar en „ég held að það sé fyllsta ástæða til að vera bara mjög bjart­sýnn á að okkur tak­ist að létta veru­lega á með útbreidd­ari bólu­setn­ingum.“

Víðir snéri sér þá að Ölmu Möller land­lækni og spurði: Hvað heldur þú Alma, held­urðu að sum­arið verði gott?“

Hún hik­aði ekki áður en hún svar­aði og sagði: „Ég held það. Ég held að það verði gott veður og ég held líka að við verðum búin að bólu­setja fleiri. Við sáum það í fyrra að veiran lág svo­lítið í lág­inni og hún gerir það vænt­an­lega eftir árs­tíðum. Þannig að auð­vitað verður þetta frá­bært sumar. En ég hugsa að flestir verði kannski að ferð­ast inn­an­lands enda er það það besta í heimi.“

Víðir: „Sammála því“.

[adspot]

Þau voru mætt öll þrjú á upp­lýs­inga­fund á ný, þrí­eykið sem fyrir nákvæm­lega ári síðan hafði leitt lands­menn í gegnum hæstu hæðir fyrstu bylgju far­ald­urs kór­ónu­veirunnar. Þá var 641 maður í ein­angrun á land­inu og 20 smit höfðu greinst þann dag, þó mun færri en nokkrum dögum áður þegar þau reynd­ust yfir 100 á einum sól­ar­hring og hafa aldrei orðið fleiri.

Í gær greind­ist engin með kór­ónu­veiruna inn­an­lands. Áttatíu eru í ein­angrun.

Þó að létt hafi verið yfir þrí­eyk­inu er það svar­aði spurn­ing­unni um sum­arið voru ýmis alvar­legri mál rædd á fundi dags­ins. Víðir byrj­aði á að stappa stál­inu í þjóð­ina og minnti á að sá árangur sem íslenskt sam­fé­lag hefði náð síð­asta árið væri „ótrú­lega flottur“. Sagði hann það vera for­rétt­indi að hafa fengið að taka þátt í verk­efn­inu og að fylgj­ast með við­brögðum þjóð­ar­innar í þeim erf­ið­leikum sem á hafa dunið. „Aldrei hefur sam­fé­lagið verið nálægt því að bug­ast,“ sagði hann. „nú er vor í lofti og bjart­ari tímar framundan. Þurfum að halda áfram, halda áfram að þrauka. Íslenskt sam­fé­lag hefur staðið sig vel. Og ætlum að gera það áfram.“

Níutíu greindust innanlands á þremur vikum

Frá því aðgerðir inn­an­lands voru hertar fyrir um þremur vikum (25. mars) hafa níu­tíu manns greinst inn­an­lands. 70 pró­sent hafa verið í sótt­kví við grein­ingu. Öll eru smitin af und­ir­af­brigði breska afbrigðis veirunnar og má rekja þau öll til landamær­anna, að sögn Þórólfs, og í flestum til­vikum til fólks sem hefur ekki farið eftir leið­bein­ingum í sótt­kví.

Enginn greind­ist inn­an­lands í gær en fimm á landa­mær­unum. Síð­ast­liðnar þrjár vikur hafa rúm­lega þrjá­tíu greinst með virkt smit þar – um helm­ingur í fyrri skimun og þar með um helm­ingur í þeirri seinni.

Tveir liggja á Land­spít­al­anum með COVID-19. Annar þeirra er á gjör­gæslu og í önd­un­ar­vél. Það er maður um sjö­tugt sem kom með flugi til lands­ins.

Þórólfur sagði vel hafa gengið að stöðva þær hóp­sýk­ingar sem voru í upp­sigl­ingu inn­an­lands fyrir þremur vikum.

Bólu­setn­ingar ganga vel og nú hafa tæp­lega 70 þús­und manns fengið að minnsta kosti eina sprautu og tæp­lega 30 þús­und eru full­bólu­settir. „Við getum sagt að við erum á nokkuð góðum stað í far­aldr­inum þessa stund­ina og mik­il­vægt að standa saman til að varð­veita þennan árangur,“ og ítrek­aði mik­il­vægi aðgerða á landa­mær­unum og per­sónu­bundnar sótt­varnir í því sam­bandi. „Á þann máta munum við kom­ast út úr far­aldr­inum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár