Alma: Erum komin á „lokasprettinn“

Land­læknir segir það mat heil­brigð­is­yf­ir­valda að við séum komin á loka­sprett­inn í bar­átt­unni við COVID-19. „Sam­heldni og seigla mun koma okkur yfir enda­markið.”

Alma Möller landlæknir.
Alma Möller land­læknir. Mynd: Almannavarnir

„Nú áfram höldum við í heims­far­aldri COVID-19. En það er mat okkar að nú séum við komin á loka­sprett­inn og sam­heldni og seigla muni koma okkur yfir enda­markið.”

Þetta sagði Alma Möller land­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Á fund­inum var þrí­eykið sam­an­komið í fyrsta sinn í margar vikur, þau Alma, Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra. Alma sagð­ist hvetja fólk til að þiggja bólu­setn­ingu. „Því fleiri sem verða bólu­settir, því minni verða líkur á að við veikj­umst og sjáum aukna útbreiðslu af veirunni.”

Alma sagði ástandið vissu­lega taka á en að við ættum að ein­blína á það jákvæða. Við værum lánsöm, okkur hafi tek­ist að halda far­aldr­inum í skefjum og það með mild­ari aðgerðum en flestar aðrar þjóðir. Hvatti hún alla til að sýna umburð­ar­lyndi og skiln­ing á mis­mun­andi skoð­unum og aðstæðum fólks. „Það er hollt fyrir eigin and­legu líðan að sýna sam­kennd og góð­vild.”

Einnig benti hún á að mik­il­vægt væri nú sem áður að sofna ekki á verð­inum. Veiran, hið breska afbrigði hennar, væri enn til staðar í sam­fé­lag­inu, „og við þurfum að leggja okkar af mörkum svo hún nái sér ekki á strik.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár