Samkomulagi náð í Brussel eftir maraþonfundi í alla nótt

Leið­togar evru­ríkj­anna hafa náð sam­komu­lagi um skulda­vanda Grikk­lands. Donald Tusk, for­seti leið­toga­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins, til­kynnti þetta á Twitter-síðu sinni rétt fyrir klukkan sjö að íslenskum tíma. Þá höfðu fundir staðið yfir nærri sleitu­laust alla helg­ina.


EuroS­ummit has unanimously reached agreement. All ready to go for ESM programme for #Greece with serious reforms & financial supp­ort


— Donald Tusk (@eucopresident) July 13, 2015

Finance mini­sters will as a matter of urgency discuss how to help #Greece meet her financial needs in the short term (bridge financing). — Donald Tusk (@eucopresident) July 13, 2015

Tusk greindi frá því að Grikkir fái neyð­ar­lán í gegnum Stöð­ug­leika­sjóð Evrópu og að strax í kjöl­far sam­komu­lags­ins verði ákveðið hvernig hægt er að fjár­magna gríska ríkið, en stórar afborg­anir af lánum þeirra eru á gjald­daga í júlí.

Á blaða­manna­fundi í Brussel nú í morgun sagði Jeroen Dijs­sel­bloem, for­seti evru­hóps­ins, hóps fjár­mála­ráð­herra evru­ríkj­anna, að nú þurfi Grikkir strax að hefj­ast handa við að leiða í lög umbætur sem sam­komu­lag náð­ist um. Ef stjórn­völd í Aþenu gera það strax á morgun og mið­viku­dag geti þjóð­þing ann­arra ríkja farið að sam­þykkja þriðju neyð­ar­lána­veit­ing­una, en það verður ekki gert fyrr en Grikkir hafa gripið til aðgerða.

Dijs­sel­bloem greindi einnig frá því að 50 millj­arða eignir Grikkja verði settar í nýjan sjóð sem á að hjálpa til við við­reisn grískra banka. Í gær stóð til að sjóður með eignum Grikkja yrði í Lúx­em­borg en að lokum var ákveðið að hann skyldi vera stað­settur í Aþenu.

Þegar þetta er skrifað er blaða­manna­fundur Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­lands, nýhaf­inn. Hún segir enga þörf á plani B, svo að Grikk­land sé ekki á leið úr evru­sam­starf­inu. Merkel segir að rætt verði um nið­ur­fell­ingu skulda Grikkja, en að í sam­komu­lag­inu komi fram að evru­ríkin séu reiðu­búin að lengja í lánum og lengja tím­ann sem Grikkir þurfi ekki að borga af lánum.

Hún bætti því þó við að enn væri mjög langur og erf­iður tími framundan. Merkel sagði jafn­framt að hún hefði trú á því að hægt væri að end­ur­nýja traustið milli stjórn­valda í Grikk­landi og Þýska­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár