Nigel Farage hættir sem formaður UKIP

Nigel Farage ætlar að hætta sem for­maður breska sjálf­stæð­is­flokks­ins UKIP. Þetta til­kynnti hann í morgun. „Í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni sagði ég að ég vildi landið mitt aftur, nú vil ég fá líf mitt aftur.“

Sigur þeirra sem vildu yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið þýðir að póli­tískum metn­aði hans hefði verið náð. Hann hafi ekki viljað verða atvinnupóli­tíkus.

„UKIP er í góðri stöðu og mun halda áfram, með fullum stuðn­ingi mínum, til að fá tals­vert fylgi. Þrátt fyrir að við förum nú út úr Evr­ópu­sam­band­inu eru skil­yrði þess enn óljós.

Farage var einn þeirra sem leiddi bar­átt­una fyrir því að Bretland yfir­gæfi Evr­ópu­sam­bandið. Annar leið­togi þeirrar bar­áttu, fyrr­ver­andi borg­ar­stjór­inn Boris Johnson, til­kynnti fyrir helgi að hann myndi ekki sækj­ast eftir for­mennsku í Íhalds­flokknum og þar með for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Ákvörðun John­son kemur veru­lega á óvart, enda var hann tal­inn einn lík­leg­asti fram­bjóð­and­inn til þess að freista þess að taka við af David Camer­on, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra.

Cameron, sem studdi áfram­hald­andi veru Bret­lands í Evr­ópu­sam­band­inu, til­kynnti að hann hygð­ist hætta sem for­sæt­is­ráð­herra og leið­togi Íhalds­flokks­ins, eftir að Bretar kusu með því að yfir­gefa sam­bandið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár