Danskir stjórnmálamenn farnir að brýna vopnin

Framundan eru átaka­tímar í dönskum stjórn­málum. Tónninn skerp­ist eftir því sem nær dregur þing­kosn­ingum sem fara fram fyrir miðjan sept­em­ber næst­kom­andi en kjör­dagur hefur ekki verið ákveð­inn. Helle Thorning-Schmidt for­sæt­is­ráð­herra hefur með­byr þessa dag­ana og nýj­ustu skoð­ana­kann­anir sýna lít­inn mun á fylgi stjórn­ar­flokk­anna og stuðn­ings­flokka þeirra, og stjórn­ar­and­stöð­unnar.

Í þing­kosn­ing­unum 15. sept­em­ber 2011 féll stjórn Lars Løkke Rasmus­sens, mjög naum­lega, og þar með lauk tíu ára valda­tíma hægri flokk­anna (bláu blokk­ar­innar) undir for­ystu Venstre flokks­ins (sem skil­greinir sig sem íhalds­saman miðju­flokk). Lars Løkke tók 5. apríl 2009 við for­sæt­is­ráð­herra­emb­ætt­inu sem Anders Fogh Rasmus­sen hafði gegnt frá 27. nóv­em­ber 2001. Mjög mjótt var á munum í kosn­ing­unum 2011 og eins og oft áður í Danmörku var hin nýja stjórn, undir for­ystu Helle Thorning -Schmidt, minni­hluta­stjórn sem varð að reiða sig á stuðn­ing flokka utan stjórn­ar­innar. Stjórn­ar­flokk­arnir, Sós­í­alde­mókratar, Sós­íal­íski þjóð­ar­flokk­ur­inn og Radikale ven­stre (skil­greina sig sem miðju­flokk) höfðu sam­tals 76 þing­menn en með stuðn­ingi ann­arra flokka af vinstri vængnum og miðj­unni (rauðu blokk­inni) var meiri­hlut­inn á þing­inu 5 þing­menn, 92 á móti 87.

Sífelldar breytingar á ríkisstjórninni


Ekki verður með sanni sagt að friður hafi ríkt á stjórn­ar­heim­il­inu á kjör­tíma­bil­inu. Helle Thorning-Schmidt for­sæt­is­ráð­herra hefur sex sinnum frá því að rík­is­stjórn hennar tók við völdum staðið framan við inn­gang Krist­jáns­borg­ar­hallar (sam­kvæmt hefð) og kynnt breyt­ingar á stjórn­inni.

Stærsta breyt­ingin var þegar Sós­íal­íski þjóð­ar­flokk­ur­inn dró sig út úr stjórn­inni, eftir miklar inn­an­flokks­deilur, en þing­menn flokks­ins lýstu yfir að þeir myndu styðja stjórn­ina "til allra góðra verka" eins og þeir komust að orði. Margrethe Vestager, efna­hags- og inn­an­rík­is­ráð­herra,leið­togi Radikale ven­stre, sagði af sér síðla árs 2014 og tók við fram­kvæmda­stjóra­stöðu hjá Evr­ópu­sam­band­inu í Brussel. Margir töldu hana valda­mesta ráð­herr­ann í rík­is­stjórn­inni, enda stað­geng­ill for­sæt­is­ráð­herra, og brott­hvarf hennar kom flestum á óvart.

Stjórnin mjög óvinsæl framan af kjörtímabilinu


Strax frá upp­hafi naut stjórnin tak­mark­aðs trausts almenn­ings og í skoð­ana­könn­unum hafa stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir allar götur frá kosn­ingum haft umtals­vert for­skot. Kannanir sýndu líka að almenn­ingur treysti Venstre, stærsta flokknum á þing­inu, betur fyrir efna­hags­mál­unum en Sós­í­alde­mókrötum. Þetta kom mörgum spánskt fyrir sjónir því Venstre flokk­ur­inn, og einkum for­mað­ur­innn, tjáðu sig lítt eða ekki um efna­hags­málin. Lars Løkke Rasmus­sen tók ekki til máls í þing­inu mán­uðum saman (692 daga sam­tals) og það var for­síðu­frétt allra helstu fjöl­miðla lands­ins þegar hann rauf loks þögn­ina.

Klúður á klúður ofan hjá Venstre


Þann 5. októ­ber 2013 greindi Ekstra Bladet frá því sem kallað var "far­miða­málið" og snérist um far­miða­kaup (á fyrsta far­rými o.fl)Lars Løkke vegna ferða á vegum sam­tak­anna Global Green Growth Institute, þar sem hann gegndi for­mennsku. Sú saga verður ekki rakin hér en til að reyna að hreinsa sig af þeim áburði hélt Lars Løkke lengsta frétta­manna­fund í sögu Dan­merkur, tæp­lega fjög­urra klukku­stunda langan.

[caption id="attachment_14419" align="alignnone" width="1024"] Lars Løkke Rasmus­sen hefur ítrekað ratað í vand­ræði á und­an­förnum árum.[/caption]

Lars Løkke Rasmussen hefur ítrekað ratað í vandræði á undanförnum árum.
Lars Løkke Rasmus­sen hefur ítrekað ratað í vand­ræði á und­an­förnum árum.

Skýr­ingar hans þóttu ótrú­verð­ugar og skyndi­lega varð for­maður Venstre óvin­sæl­asti flokks­leið­togi lands­ins og það hefur ekki breyst síðan. Ekki bætti úr skák þegar upp­lýst var að flokk­ur­inn hafði pungað út stórfé vegna fata­kaupa for­manns­ins. Margir minnt­ust þá þess að í fjár­mála­ráð­herra­tíð Lars Løkke vorið 2008 kom fram að hann hafði látið ríkið borga fyrir sig hót­elgist­ingu, mat og fleira fyrir um 800 þús­und krónur (u.þ.b. 16 millj­ónir íslenskar). Minnstu mun­aði að Lars Løkke yrði að segja af sér.

Loks fór eitthvað að gerast


Þrátt fyrir allt þetta breytt­ist fylgi flokk­anna lítið. Sú sér­kenni­lega staða var uppi á fyrstu mán­uðum árs­ins 2014 að Venstre naut lang­mests fylgis í könn­unum þótt for­mað­ur­inn væri óvin­sæll. Helle Thorning-Schmidt naut hins vegar mik­illa vin­sælda en flokkur hennar, Sós­í­alde­mókratar, ekki að sama skapi. En nú fór ýmis­legt að ger­ast. Haustið 2012 höfðu orðið for­manns­skipti hjá Danska þjóð­ar­flokknum.

Pia Kjærs­gaard sem verið hafði for­maður flokks­ins frá stofnun 1995 (var áður í Fram­fara­flokknum, kenndum við Mogens Glistrup) hætti for­mennsku og við tók Kristian Thulesen Dahl. Þessi breyt­ing varð til þess að fylgi Danska þjóð­ar­flokks­ins tók kipp, fór úr rúmum 12% í kosn­ing­unum 2011 uppundir 20% og reyndar allt upp í 22.6% fyrir skömmu, hefur síðan dalað aðeins. Þessi mikla fylg­is­aukn­ing, sem talin var tengj­ast per­sónu­legum sjarma for­manns­ins var á kostnað flestra ann­arra flokka, fylgi stjórn­ar­flokk­anna og stuðn­ings­flokka stjórn­ar­innar minnk­aði og það gerði líka fylgi Venstre.

[caption id="attachment_25113" align="alignnone" width="640"] Eftir að Kristian Thulesen Dahl tók við af Piu Kjærs­gaard sem for­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins hefur fylgi hans tekið kipp upp á við.[/caption]

Loðmullutal


Orða­til­tækið að tala "med uld i mund" er gam­alt í dönsku. Hafði lítið verið notað í ára­tugi en var end­ur­vakið á stjórn­ar­árum Poul Nyrups Rasmus­sen og notað um hann sjálfan. Þýðir ein­fald­lega að tala óskýrt, slá úr og í, þannig að ekki er heiglum hent að skilja hvað sá sem talar eða skrifar á við. Upp á síðkastið hefur þetta "med uld i mund" iðu­lega verið notað um for­menn stærstu stjórn­mála­flokk­anna sem segj­ast allt vilja gera, helst fyrir alla, en vefst tunga um tönn þegar nánar er spurt út í mál­efnin.

Eftir að Kristian Thulesen Dahl tók við af Piu Kjærsgaard sem formaður Danska þjóðarflokksins hefur fylgi hans tekið kipp upp á við.
Eftir að Kristian Thulesen Dahl tók við af Piu Kjærs­gaard sem for­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins hefur fylgi hans tekið kipp upp á við.

Venstre flokk­ur­inn vill lækka atvinnu­leys­is­bætur en neitar að, eða seg­ist ekki geta, nefnt upp­hæðir í því sam­bandi fyrr en flokk­ur­inn verði kom­inn í stjórn. Sós­í­alde­mókratar slá úr og í með fjöl­mörg mál, breyt­ingar á atvinnu­leys­is­bóta­kerf­inu án þess að segja bein­línis hverjar þær breyt­ingar eiga að vera, skapa fleiri störf án þess að koma með beinar til­lögur eða hug­myndir. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn hefur sett fram hug­myndir sem eiga að auka atvinnu, þær kosta pen­inga sem flokk­ur­inn veit ekki hvaðan eiga að koma o.s.frv. Þetta er það sem hér er nefnt "med uld i mund". Loð­mullu­tal.

Sammála um eitt: aðlögun


Málefni inn­flytj­enda hafa lengi verið umdeild og mikið rædd hér í Danmörku. Kannanir sýna að þau eru lands­mönnum ofar­lega í huga og aug­ljós­lega eitt stærsta kosn­inga­málið. Kannanir sýna líka að stór­aukið fylgi Danska þjóð­ar­flokks­ins má að veru­legu leyti rekja til stefnu flokks­ins í inn­flytj­enda­málum. Flokk­ur­inn vill mun strang­ari kröfur um það hverjir geti flutt til lands­ins, hægt verði að vísa þeim útlend­ingum úr landi sem ger­ast brot­legir við lögin, senda útlend­inga sem hljóta dóm, til síns heima­lands svo fátt eitt sé nefnt. Inn­flytj­endur verði að aðlag­ast. Aðlögun er lyk­il­orðið hjá öllum stjórn­mála­flokk­unum sem eru líka sam­mála um að atvinnu­leysi meðal inn­flytj­enda sé eitt erf­ið­asta og stærsta við­fangs­efnið.

[quote font="0" align="right"]Málefni inn­flytj­enda hafa lengi verið umdeild og mikið rædd hér í Danmörku. Kannanir sýna að þau eru lands­mönnum ofar­lega í huga og aug­ljós­lega eitt stærsta kosn­inga­málið. Kannanir sýna líka að stór­aukið fylgi Danska þjóð­ar­flokks­ins má að veru­legu leyti rekja til stefnu flokks­ins í inn­flytj­enda­málum[/quote]

Venstre flokk­ur­inn kynnti nýlega sínar hug­myndir varð­andi inn­flytj­enda­málin. Þær ganga í aðal­at­riðum út á að þau sveit­ar­fé­lög fái aukið fjár­magn sem standa sig vel í að aðlaga inn­flytj­endur, sjá til þess að þeir fái vinnu og ungt fólk stundi nám og fái menntun, verði þannig eðli­legur hluti sam­fé­lags­ins. Sveit­ar­fé­lög sem standa sig lakar að þessu leyti fái minna fjár­magn og sé þannig óbein­línis refsað. Sveita­stjórna­menn hoppa ekki hæð sína yfir þessum hug­myndum, segja lít­inn vanda fyrir þá sem sitja á kontórum á Krist­jáns­borg að leggja slíkar línur, veru­leik­inn sé annar og erf­ið­ari. Sós­í­alde­mókratar, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans hefur nýlega byrjað mikla áróð­urs­her­ferð. Þar kveður að nokkru leyti við nýjan tón gagn­vart inn­flytj­endum. Þeir eru boðnir vel­komnir og sagt að vel verði tekið á móti þeim, en þeir þurfi, og skuli gera ráð fyrir að þurfa að vinna, eins og allir aðrir. Þessi tónn hefur ekki heyrst áður úr þeim her­búðum.

Miklar sveiflur í nýjustu könnunum


Nýjustu kann­anir sýna að mjög mjótt er á munum milli fylk­ing­anna tveggja eða rauðu og bláu blokk­anna eins og Danir segja. Flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans hefur að und­an­förnu fengið auk­inn byr í seglin og þær ástæður helst nefndar að hún þótti standa sig mjög vel og koma fram sem ábyrgur þjóð­ar­leið­togi eftir hryðju­verkin í Kaup­manna­höfn í febr­úar. Allt bendir til að efna­hags­lífið sé að rétta úr kútnum eftir djúpa og langa lægð, störfum í land­inu hefur fjölgað um nær 40 þús­und á kjör­tíma­bil­inu.

Þetta styrkir stöðu Helle Thorning-Schmidt og traust lands­manna á henni hefur vaxið mjög að und­an­förnu. Ýmsir stjórn­mála­skýrendur hafa bent á að nýr flokkur Uffe Elbæks fyrr­ver­andi ráð­herra, Alt­ernati­vet geti tekið fylgi frá núver­andi stjórn­ar­flokkum og nái hann ekki lág­mark­inu sem þarf til að ná inn á þing geti þau atkvæði sem þá detta dauð riðið bagga­mun­inn.

Hvenær verður kosið ?


Það er spurn­ingin sem eng­inn getur svarað en allir vilja gjarna vita svarið. Stjórn­mála­skýrendur segja að Helle Thorning-Schmidt bíði efir rétta augna­blik­inu, það sé mjög mik­il­vægt þar sem svo mjótt er á munum, að hitta á rétta augna­blikið. Það geti ráðið úrslitum um það hver verði næsti hús­bóndi á Krist­jáns­borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár