Ljóst að „við gerðum óafsakanleg mistök“

Formaður og vara­for­maður knatt­spyrnu­deildar Tinda­stóls hafa hætt störfum hjá félag­inu.

Formaður og vara­for­maður knatt­spyrnu­deildar Tinda­stóls hafa hætt störfum, og segj­ast þeir í yfir­lýs­ingu harmað að hafa gert mis­tök og sem lík­lega verði „aldrei hægt að bæta fyrir“.

Er yfir­lýs­ingin, sem birt­ist á vefnum Feyki, sett fram í kjöl­far frétta Stund­ar­innar sem varða mál fyrrum starfs­manns kjnatt­spyrnu­deild­ar­innar.

Orðrétt segja þeir Bergmann Guð­munds­son og Guðjón Örn Jóhanns­son í yfir­lýs­ing­unni: „Í kjöl­far fréttar fjöl­mið­ils­ins, Stund­ar­innar er varða mál fyrrum starfs­manns deild­ar­innar og mjög alvar­legra ásak­ana í hans garð er ljóst að deild­inni hafa orðið á mikil mis­tök. Mistök sem senni­lega verður aldrei hægt að bæta fyrir. Við viljum byrja á að taka heils hugar undir orð Aðal­stjórnar Ung­menna­fé­lags Tinda­stóls sem sagði m.a. í yfir­lýs­ingu sinni frá því í 25. febr­úar 2018, orð­rétt: „...Kemur þessi frétt í kjöl­far #MeToo umræð­unnar þar sem konur í fjöl­mörgum greinum stigu fram og sögðu frá sinni reynslu af kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­ferð­is­legu ofbeldi, þöggun og lít­ils­virð­ingu. Konur í íþróttum voru þar á meðal og áttu sumar af þeim sögum sem nístu hjartað hvað mest. Þessar frá­sagnir kvenn­anna í Stund­inni gerðu það einnig.

Það er mik­il­vægt að íþrótta­hreyf­ingin í heild sinni hlusti á þessar raddir þolenda og aðstand­enda þeirra, læri af þeim og bregð­ist við af fullum þunga. Ábyrgð stjórn­enda, for­manna, for­svars­manna og þjálf­ara er þar mikil. Stjórn­endur Ung­menna­fé­lags­ins Tinda­stóls vilja því sér­stak­lega taka fram að félagið stendur með þolendum. Við tökum ábyrgð okkar alvar­lega og við tökum mál­stað þolenda alvar­lega. Kyn­ferð­is­legt ofbeldi, kyn­ferð­is­leg áreitni, ein­elti eða annað ofbeldi verður ekki undir neinum kring­um­stæðum liðið í starfi Ung­menna­fé­lags­ins Tinda­stóls...“ Við þetta viljum við bæta og lýsa því hér með form­lega yfir að deild­inni urðu á stór mis­tök í maí á síð­asta ári með stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu sinni við Ragnar Þór Gunn­ars­son, þáver­andi leik­mann liðs­ins, sem dæmdur var fyrir kyn­ferð­is­brot. Sú yfir­lýs­ing átti ekki rétt á sér og þykir okkur leitt að hafa ekki staðið með okkar fólki, hafa valdið því von­brigðum og þolendum óþarfa sárs­auka. Hvað varðar mál fyrrum starfs­manns okkar sem fjallað er um í Stund­inni síð­ast­liðna helgi, en þar koma fram 12 stúlkur og segja sína sögu um sam­skipti við mann­inn, er ljóst að deild­inni urðu á óaf­sak­an­leg mis­tök við ráðn­ingu hans í barna- og ung­linga­starf félags­ins,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þeir segj­ast síðan vona að með því að þeir stigi til hliðar, þá geti skap­ast friður í félag­inu. „Málum eins og hafa komið upp í umræð­una í kjöl­far #MeToo bylt­ing­ar­innar sem og öðrum málum sem ekki eiga heima í heimi íþrótt­anna, frekar en ann­ars­staðar. Eins og fram kemur í yfir­lýs­ingum Ung­menna­sam­bands Skaga­fjarðar (UMSS) og Aðal­stjórnar Ung­menna­fé­lags Tinda­stóls hefur vinna staðið yfir í vetur við að skrifa siða­reglur fyrir félagið og er það vel. Til að taka ábyrgð á mis­tökum okkar segjum við okkur frá störfum okkar fyrir félagið. Það er okkar von að með þess­ari yfir­lýs­ingu skap­ist friður um störf knatt­spyrnu­deildar Tinda­stóls og félags­ins alls,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár