Stöðugleikaframlag getur sparað slitabúi Glitnis allt að 174 milljarða króna

Slitabú Glitnis þarf að borga íslenska rík­inu allt að 173,9 millj­örðum krónum minna með því að greiða því stöð­ug­leika­fram­lag og sleppa þannig við álagn­ingu stöð­ug­leika­skatts. Með því að greiða stöð­ug­leika­fram­lag áætlar Glitnir að búið þurfi að greiða rík­is­sjóði 205,4 til 254,4 millj­arða króna. Ef stöð­ug­leika­skattur yrði lagður á búið myndi sú greiðsla hins vegar verða á bil­inu 329,3 til 379,3 millj­arðar króna. Þetta kemur fram í hálfs­árs­upp­gjöri Glitnis sem birt var fyrir helgi.

Stærstu kröfu­hafar Glitnis hafa þegar náð sam­komu­lagi við íslensk stjórn­völd um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum þeirra og greiða stöð­ug­leika­fram­lag. Það hafa stærstu kröfu­hafar slita­búa Kaup­þings og Lands­bank­ans einnig gert. Tilboð þeirra voru send inn klukku­tímum áður en við­hafn­ar­kynn­ing á áætlun stjórn­valda vegna losun fjár­magns­hafta fór fram í Hörpu. Í kynn­ing­unni var höf­uð­á­hersla lögð á að kynna útfærslu og áhrif stöð­ug­leika­skatts upp á 39 pró­sent, þrátt fyrir að sam­komu­lag lægi fyrir við stærstu slitabú föllnu bank­anna um að kom­ast hjá álagn­ingu hans.

[caption id="attachment_38022" align="align­right" width="300"] Aðgerðir stjórn­valda vegna losun fjár­magns­hafta voru kynntar með við­höfn í Hörpu 8. júní síð­ast­lið­inn. Þá lá þegar fyrir sam­komu­lag við stærstu kröfu­hafa föllnu bank­anna um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda.[/caption]

Aðgerðir stjórnvalda vegna losun fjármagnshafta voru kynntar með viðhöfn í Hörpu 8. júní síðastliðinn. Þá lá þegar fyrir samkomulag við stærstu kröfuhafa föllnu bankanna um að mæta stöðugleikaskilyrðum stjórnvalda.
Aðgerðir stjórn­valda vegna losun fjár­magns­hafta voru kynntar með við­höfn í Hörpu 8. júní síð­ast­lið­inn. Þá lá þegar fyrir sam­komu­lag við stærstu kröfu­hafa föllnu bank­anna um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda.

Slita­búin hafa fram að ára­mótum til að ljúka slitum á búum sínum og greiða stöð­ug­leika­fram­lag sitt til rík­is­ins. Gerist það ekki á stöð­ug­leika­skatt­ur­inn að leggj­ast á.

Stöðugleikaskatt þarf að greiða í reiðufé


Í hálfs­árs­upp­gjöri Glitnis, sem var birt 28. ágúst síð­ast­lið­inn, er gerður sam­an­burður á áhrifum stöð­ug­leika­fram­lags og stöð­ug­leika­skatts. Þar segir að stöð­ug­leika­skattur myndi þýða að 34 til 39 pró­sent af eignum bús­ins, sem eru 981,1 millj­arður króna, myndu renna til íslenska rík­is­ins í reiðufé. Munurinn á pró­sentu­hlut­fall­inu fellst í því að Glitni stendur til boða að fjár­festa í ákveðnum íslensku fyr­ir­tækjum gegn því að skatt­pró­sentan lækki niður í 34 pró­sent ,fari svo að skatt­ur­inn falli á slita­búið. Það þýðir að Glitnir þyrfti að greiða 329,3 til 379,3 millj­arða króna til íslenska rík­is­ins ef stöð­ug­leika­skattur yrði lagður á búið.

Til sam­an­burðar býst slita­stjórn Glitnis við því að greiðsla stöð­ug­leika­fram­lags, í sam­ræmi við sam­komu­lag sem stærstu kröfu­hafar slita­bús­ins hafa gert við íslensk stjórn­völd, muni minnka eignir bús­ins um 21 til 28 pró­sent. Munurinn felist í því hvort það tak­ist að selja Íslands­banka fyrir erlendan gjald­eyri eða ekki. Ef aðrir gjald­miðlar en íslensk króna fást fyrir bank­ann, miðað við bók­fært virði hans, fær slita­búið fær slita­búið 40 pró­sent af kaup­verð­inu og íslenska ríkið 60 pró­sent. Ef Íslands­banki verður hins vegar seldur fyrir íslenskar krónur rennur allt sölu­and­virðið til íslenska rík­is­ins. Þetta þýðir að slitabú Glitnis áætlar að mæt­ing stöð­ug­leika­skil­yrða muni kosta kröfu­hafa þess 205,4 til 254,4 millj­arða króna.

Í upp­gjör­inu kemur fram að kostir þess að greiða stöð­ug­leika­fram­lag felist einnig í því að það má að hluta til greiða með eignum og fjár­mála­gjörn­ingum sem eru ekki komnir á gjald­daga, en að stöð­ug­leika­skatt­inn þurfi að greiða í reiðufé.

[caption id="attachment_38023" align="alignnone" width="999"] Yfirlit úr hálfs­árs­upp­gjöri Glitnis þar sem afleið­ingar álagn­ingar stöð­ug­leika­skatts eru bornar saman við greiðslu á stöð­ug­leika­fram­lagi.[/caption]

Vilja koma í veg fyrir nýja snjóhengju


Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að þegar kröfu­hafar Glitnis lögðu fram til­boð um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum íslenskra stjórn­valda, sem síðar var sam­þykkt, þá fól það til­boð meðal ann­ars í sér að Íslands­banki yrði seldur og ágóð­anum skipt milli kröfu­hafa Glitnis og rík­is­sjóðs. Mikla athygli vakti að í til­boð­inu er inn­byggður hvati fyrir Glitni að selja bank­ann til erlends aðila. Í ein­földu máli þá er bók­fært virði Íslands­banka um 119 millj­arðar króna og erlendir aðilar þyrftu að greiða sirka það verð fyrir hann. Inn­lendir aðilar þyrftu hins vegar að greiða allt að 200 millj­örðum króna.

Yfirlit úr hálfsársuppgjöri Glitnis þar sem afleiðingar álagningar stöðugleikaskatts eru bornar saman við greiðslu á stöðugleikaframlagi.
Yfirlit úr hálfs­árs­upp­gjöri Glitnis þar sem afleið­ingar álagn­ingar stöð­ug­leika­skatts eru bornar saman við greiðslu á stöð­ug­leika­fram­lagi.

Til við­bótar er ákvæði í til­boði kröfu­hafa Glitnis sem segir að erlendur kaup­andi bank­ans megi ekki selja hann aftur til inn­lends aðila í fimm ár eftir að gengið verður frá kaup­unum.

Ýmsar ástæður eru fyrir því að stærstu kröfu­hafar Glitnis, sem komu að samn­inga­við­ræðum við íslensk stjórn­völd, settu inn þessa hvata. Í fyrsta lagi feng­ist með því gjald­eyrir fyrir bank­ann sem nýst getur til að greiða niður skuldir. Íslenska ríkið fengi til að mynda 71 millj­arð króna í sinn hlut ef Íslands­banki yrði seldur útlend­ingum á bók­færðu virði, og gæti notað það fé til að minnka skuldir og vaxta­kostnað sinn veru­lega. Ef inn­lendir aðilar myndu kaupa bank­ann og nota til þess krónur væri illa hægt að nota þær krónur til að greiða niður inn­lendar skuldir. Það myndi auka á þenslu í hag­kerf­inu með til­heyr­andi verð­bólgu.

Gagn­rýnendur hafa bent á að Íslend­ingar eigi líka gjald­eyri sem hægt væri að nota til að kaupa bank­ann. Þar er mest horft til eigna líf­eyr­is­sjóða erlendis. Þær eru hins vegar ein­ungis 23,5 pró­sent af heild­ar­eignum sjóð­anna og því var­huga­vert, með til­liti til áhættu­dreif­ingar í eign­ar­safni þeirra, að minnka það hlut­fall mikið. Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa líka verið að kalla eftir því að fá að fjár­festa meira erlendis, frekar en að koma heim með pen­inga.

Vilja koma í veg fyrir nýja snjóhengju


En það eru fleiri ástæður fyrir því að kröfu­hafar Glitnis vilja frekar selja útlend­ingum en Íslend­ingum Íslands­banka. Á upp­gjörs­fundi hjá Íslands­banka á þriðju­dag sagði Jón Guðni Ómarsson, fjár­mála­stjóri Íslands­banka, að ein ástæða þess að erlent eign­ar­hald yrði bundið í fimm ár eftir sölu væri til að koma í veg fyrir að erlendur kaup­andi seldi Íslands­banka strax aftur til inn­lends aðila. Ef það myndi ger­ast þá væri strax komin ný snjó­hengja upp á 119 millj­arða króna. Vanda­málið sem áætlun stjórn­valda um losun hafta á að leysa yrði sam­stundis til á ný.

En er ástæða til að ótt­ast svona snún­ing? Miðað við stöðu Íslands­banka, sem á 187 millj­arða króna í eigið fé, hefur mikla mögu­leika til að vaxa, er með mikla mark­aðs­hlut­deild og það hversu mikil völd fylgja því að eiga banka á fákeppn­is­mark­aði á Íslandi, er ljóst að margir inn­lendir aðilar gætu hugsað sér að ráð­ast í slíkan snún­ing. Og sagan sýnir okkur líka að það yrði ekki í fyrsta sinn sem erlendur aðili yrði not­aður til að „leppa“ eign­ar­hald á banka til að tryggja inn­lendum fjár­festum yfir­ráð yfir honum. Það var gert þegar S-hóp­ur­inn svo­kall­aði keypti Bún­að­ar­bank­ann, með aðstoð hins þýska Hauck & Auf­hauser.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár