Ellefu milljarða hagnaður Íslandsbanka - Áfram unnið að hagræðingu

Hagnaður Íslands­banka eftir skatta var 10,8 millj­arðar króna á fyrri helm­ingi árs, sam­an­borið við 14,7 millj­arða króna hagnað á sama tíma­bili 2014. Þá voru tekjur af ein­skipt­isliðum umfangs­meiri. Bankinn birti upp­gjör fyrir fyrri hluta árs í dag.

Launa­kostn­aður bank­ans stóð í stað milli ára og segir Birna Ein­ars­dóttir banka­stjóri og áfram verði unnið að hag­ræð­ing­ar­að­gerðum til kostn­að­ar­lækk­unar. „Afkoma bank­ans á fyrri helm­ingi árs­ins var góð. Grunn­rekst­ur­inn styrkt­ist á tíma­bil­inu sem end­ur­spegl­ast í heil­brigðum vexti útlána og inn­lána, sem og í þókn­ana­tekjum sem juk­ust um 13% milli ára. Útlán juk­ust um 3% frá ára­mótum og er það í sam­ræmi við áætl­aðan hag­vöxt á tíma­bil­inu. Ánægju­legt var fyrir bank­ann að hljóta hærri ein­kunn í fjár­fest­ing­ar­flokki hjá bæði Fitch og S&P.

Launa­kostn­aður stendur í stað og mun bank­inn halda áfram að vinna að hag­ræð­ing­ar­að­gerðum til kostn­að­ar­lækk­unar. Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans helst áfram sterkt sem og lausa­fjár­staða bank­ans. Það er afar mik­il­vægt nú þegar við horfum fram á losun fjár­magns­hafta. Íslands­banki gegnir þar mik­il­vægu hlut­verki og vinnur að þeirri áætlun með eig­endum sínum og stjórn­völdum. Stefnt er að tölu­verðri breyt­ingu á efna­hags­reikn­ingi bank­ans með ramma­sam­komu­lagi sem gert var við Glitni,“ segir hún.

Arðsemi eigin fjár af reglu­legri starf­semi miðað við 14 pró­sent eig­in­fjár­hlut­fall var 13,9 pró­sent. Eig­in­fjár­hlut­fallið var 28,3 pró­sent í lok 2. árs­fjórð­ungs. Hreinar vaxta­tekjur námu 13,6 millj­örðum á fyrri hluta árs og voru þær sömu og á sama tíma­bili 2014. Hreinar þókn­ana­tekjur juk­ust um 13,2 pró­sent og námu 6,4 millj­örðum króna. Kostn­að­ar­hlut­fall var 56 pró­sent. Heild­ar­eignir Íslands­banka námu 976 millj­örðum króna.

Myndband við Jón Guðna Ómarsson, fram­kvæmda­stjóra fjár­mála­sviðs, má sjá hér:

Uppgjör Íslands­banka á 2. árs­fjórð­ungi from Íslands­banki on Vimeo.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár