Vilja koma í veg fyrir að innlendir aðilar noti erlenda "leppa" til að eignast Íslandsbanka

Þegar kröfu­hafar Glitnis lögðu fram til­boð um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum íslenskra stjórn­valda, sem síðar var sam­þykkt, þá fól það til­boð meðal ann­ars í sér að Íslands­banki yrði seldur og ágóð­anum skipt milli kröfu­hafa Glitnis og rík­is­sjóðs. Mikla athygli vakti að í til­boð­inu er inn­byggður hvati fyrir Glitni að selja bank­ann til erlends aðila. Í ein­földu máli þá er bók­fært virði Íslands­banka um 119 millj­arðar króna og erlendir aðilar þyrftu að greiða sirka það verð fyrir hann. Inn­lendir aðilar þyrftu hins vegar að greiða allt að 200 millj­örðum króna.

Til við­bótar er ákvæði í til­boði kröfu­hafa Glitnis sem segir að erlendur kaup­andi bank­ans megi ekki selja hann aftur til inn­lends aðila í fimm ár eftir að gengið verður frá kaup­unum.

Þessir hvatar hafa verið harð­lega gagn­rýnir víða, síð­ast í kvöld­fréttum Stöðvar 2 í gær af Davíð Blöndal, með­limi í Indefence –hópnum. Gagn­rýnin snýst fyrst og fremst að því að íslenskir fjár­festar, meðal ann­ars líf­eyr­is­sjóðir, eru með þessum inn­byggðu hvötum nán­ast úti­lok­aðir frá því að kaupa Íslands­banka.

En af hverju er verið að úti­loka þá?

Gjaldeyri hefur meira notagildi


Ýmsar ástæður eru fyrir því að stærstu kröfu­hafar Glitnis, sem komu að samn­inga­við­ræðum við íslensk stjórn­völd, settu inn hvata til að selja bank­ann til erlendra aðila. Í fyrsta lagi feng­ist með því gjald­eyrir fyrir bank­ann sem nýst getur til að greiða niður skuldir. Íslenska ríkið fengi til að mynda 71 millj­arð króna í sinn hlut ef Íslands­banki yrði seldur útlend­ingum á bók­færðu virði, og gæti notað það fé til að minnka skuldir og vaxta­kostnað sinn veru­lega. Ef inn­lendir aðilar myndu kaupa bank­ann og nota til þess krónur væri illa hægt að nota þær krónur til að greiða niður inn­lendar skuldir. Það myndi auka á þenslu í hag­kerf­inu með til­heyr­andi verð­bólgu.

[caption id="attachment_31634" align="alignnone" width="640"] Tilkynnt var um aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda við losun hafta í byrjun júní síð­ast­lið­inn. Kynning á aðgerð­unum for fram í Hörpu og var sýnd i beinni útsend­ingu. Skömmu áður höfðu stærstu kröfu­hafar Glitnis lagt fram til­boð um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda til að sleppa við stöð­ug­leika­skatt.[/caption]

Tilkynnt var um aðgerðaráætlun stjórnvalda við losun hafta í byrjun júní síðastliðinn. Kynning á aðgerðunum for fram í Hörpu og var sýnd i beinni útsendingu. Skömmu áður höfðu stærstu kröfuhafar Glitnis lagt fram tilboð um að mæta stöðugleikaskilyrðum stjórnvalda til að sleppa við stöðugleikaskatt.
Tilkynnt var um aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda við losun hafta í byrjun júní síð­ast­lið­inn. Kynning á aðgerð­unum for fram í Hörpu og var sýnd i beinni útsend­ingu. Skömmu áður höfðu stærstu kröfu­hafar Glitnis lagt fram til­boð um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda til að sleppa við stöð­ug­leika­skatt.

Gagn­rýnendur hafa bent á að Íslend­ingar eigi líka gjald­eyri sem hægt væri að nota til að kaupa bank­ann. Þar er mest horft til eigna líf­eyr­is­sjóða erlendis. Þær eru hins vegar ein­ungis 23,5 pró­sent af heild­ar­eignum sjóð­anna og því var­huga­vert, með til­liti til áhættu­dreif­ingar í eign­ar­safni þeirra, að minnka það hlut­fall mikið. Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa líka verið að kalla eftir því að fá að fjár­festa meira erlendis, frekar en að koma heim með pen­inga.

Vilja koma í veg fyrir nýja snjóhengju


En það eru fleiri ástæður fyrir því að kröfu­hafar Glitnis vilja frekar selja útlend­ingum en Íslend­ingum Íslands­banka. Á upp­gjörs­fundi hjá Íslands­banka á þriðju­dag sagði Jón Guðni Ómarsson, fjár­mála­stjóri Íslands­banka, að ein ástæða þess að erlent eign­ar­hald yrði bundið í fimm ár eftir sölu væri til að koma í veg fyrir að erlendur kaup­andi seldi Íslands­banka strax aftur til inn­lends aðila. Ef það myndi ger­ast þá væri strax komin ný snjó­hengja upp á 119 millj­arða króna. Vanda­málið sem áætlun stjórn­valda um losun hafta á að leysa yrði sam­stundis til á ný.

En er ástæða til að ótt­ast svona snún­ing? Miðað við stöðu Íslands­banka, sem á 187 millj­arða króna í eigið fé, hefur mikla mögu­leika til að vaxa, er með mikla mark­aðs­hlut­deild og það hversu mikil völd fylgja því að eiga banka á fákeppn­is­mark­aði á Íslandi, er ljóst að margir inn­lendir aðilar gætu hugsað sér að ráð­ast í slíkan snún­ing. Og sagan sýnir okkur líka að það yrði ekki í fyrsta sinn sem erlendur aðili yrði not­aður til að „leppa“ eign­ar­hald á banka til að tryggja inn­lendum fjár­festum yfir­ráð yfir honum.

Þegar S-hópurinn vildi eignast banka


Þegar íslenska ríkið ákvað að selja hlut sinn í Bún­að­ar­banka Íslands árið 2002 var eitt af helstu mark­miðum þess að fá erlenda fjár­mála­stofnun til að koma þar að. Það vann því mjög með þeim bjóð­endum í hlut rík­is­ins í bank­anum ef þeir höfðu slíka í sínum hópi.

Kjarninn hefur öll gögn einka­væð­ing­ar­ferl­is­ins undir höndum, þar með talið fund­ar­gerðir einka­væð­ing­ar­nefndar og þau gögn sem nefndin studd­ist við þegar hún tók ákvörðun sína um að selja einum bjóð­anda umfram annan. Sá bjóð­andi sem fékk á end­anum að kaupa Bún­að­ar­bank­ann var hinn svo­kall­aði S-hópur, með rík tengsl inn í Fram­sókn­ar­flokk­inn og leiddur af Ólafi Ólafs­syni, sem nú afplánar fang­els­is­dóm vegna Al Thani-máls­ins, og Finni Ing­ólfs­syni, fyrrum vara­for­manns og ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins.

S-hóp­ur­inn átti ekki sér­stak­lega mikla pen­inga (kaup­verðið var að stórum hluta fengið að láni) og hafði enga reynslu af því að reka banka. Það var því mjög mik­il­vægt fyrir hann að láta líta svo út að sterkur erlendur aðili væri með í hópnum til að gera einka­væð­ing­ar­nefnd auð­veld­ara fyrir að selja honum bank­ann.

Societe General verður Hauck & Aufhauser


Framan af var látið líta svo út að erlendi bank­inn sem væri í slag­togi með S-hópnum væri franski bankaris­inn Societe General, sem einka­væð­ing­ar­nefnd þótti fýsi­legt. Ljóst er á fund­ar­gerðum einka­væð­ing­ar­nefndar að hún taldi nán­ast allan tím­ann að franski bank­inn væri sú fjár­mála­stofnun sem ætl­aði að taka þátt í kaup­unum.

Þeirri tál­sýn var haldið á lofti í gegnum ferlið, þótt að aldrei feng­ist stað­fest­ing á því að Societe General væri með í hópnum. Þegar leið að því að salan á Bún­að­ar­banka yrði kláruð komu skila­boð frá S-hópnum um að ekki væri hægt að til­kynna um hver erlendi aðil­inn í hópnum væri fyrr en við und­ir­skrift.

Bún­að­ar­bank­inn var loks seldur til S-hóps­ins 16. jan­úar 2003. Einka­væð­ing­ar­nefnd fékk fyrst að vita nafn erlenda bank­ans sem tók þátt í kaup­unum sjö dögum áður. Sá banki var þýski sveita­bank­inn Hauck & Auf­hauser. Hann var aldrei nefndur á nafn í fund­ar­gerðum einka­væð­ing­ar­nefndar.

[caption id="attachment_37608" align="alignnone" width="1024"] Frétt Morg­un­blaðs­ins dag­inn eftir að S-hóp­ur­inn gekk frá kaup­unum á Bún­að­ar­bank­anum.[/caption]

Frétt Morgunblaðsins daginn eftir að S-hópurinn gekk frá kaupunum á Búnaðarbankanum.
Frétt Morg­un­blaðs­ins dag­inn eftir að S-hóp­ur­inn gekk frá kaup­unum á Bún­að­ar­bank­anum.

Hauck & Auf­hauser hafði aldrei nein afskipti af ætl­uðum eign­ar­hlut sínum í Bún­að­ar­bank­anum og skip­aði íslenskan starfs­mann eign­ar­halds­fé­lags Ólafs Ólafs­sonar í stjórn Eglu, félags­ins sem bank­inn átti hlut sinn í gegnum. Rúmum tveimur árum eftir að Hauck & Auf­hauser keypti hlut í Eglu, og þar af leið­andi í Bún­ar­banka, var bank­inn búinn að selja hann allan til ann­arra aðila innan S-hóps­ins.

Um tveimur mán­uðum eftir að S-hóp­ur­inn keypti Bún­að­ar­bank­ann hófust við­ræður um að sam­eina hann og Kaupþing. Eftir að sú sam­ein­ing gekk í gegn varð sam­ein­aður banki stærsti banki lands­ins og hóp­ur­inn sem stýrði honum gerði það þangað til að hann féll í októ­ber 2008, og skráði sig á spjöld sög­unnar sem eitt stærsta gjald­þrot sem orðið hefur.

Mikill áhugi erlendis frá á Íslandsbanka


Tölu­verður áhugi hefur verið á því á meðal erlendra aðila að kaupa Íslands­banka. Viðræður við nokkra hópa voru byrj­aðar nokkuð löngu áður en að til­boð stærstu kröfu­hafa Glitnis til stjórn­valda um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum, og sleppa þar af leið­andi við álagn­ingu stöð­ug­leika­skatts upp á 39 pró­sent, var lagt fram í júní. Þeir sem sýnt hafa mestan áhuga eru hópar sem koma frá löndum við Persaflóa í Mið-Aust­ur­löndum og Kína. Um er að ræða stór fyr­ir­tæki sem eiga þegar hluti í alþjóð­legum bönkum. Ein­hverjir hópanna und­ir­rit­uðu vilja­yf­ir­lýs­ingu um kaup á bank­anum í febr­úar síð­ast­liðnum.

Þá kemur enn til greina að skrá Íslands­banka á markað erlendis. Miðað við til­boðið sem kröfu­hafar Glitnis gerðu stjórn­völdum yrði sú skrán­ing ekki tví­hliða­skrán­ing á markað í öðrum landi og Íslandi, enda myndi hluti bank­ans þá selj­ast til inn­lendra aðila. Því verður að telj­ast lík­legra að ef skrán­ing­ar­leiðin verður farin að Íslands­banki verði alfarið skráður á markað í öðrum landi, og þá Svíþjóð eða Noregi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár