Umdeilt að selja hlut Glitnis í Íslandsbanka til erlendra aðila

Vilji kröfu­hafa Glitnis stendur til þess að Íslands­banki verði seldur til erlendra aðila og að þeir fái gjald­eyri fyrir söl­una. Áhuga­samur kaup­enda­hópur er til staðar og hann hefur und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu um kaupin. Til stóð að kynna þann hóp til leiks í lið­inni viku en ekk­ert varð af því. Ástæður þess eru nokkrar.

Áhugi frá Miða-Austurlöndum og Kína


Kjarninn greindi frá því í byrjun síð­ustu viku að til stæði að kynna til leiks erlenda fjár­festa að Íslands­banka í þeirri viku sem var að líða. Af því varð ekki. Viðræður við nokkra hópa hafa staðið yfir um nokk­urra mán­aða skeið og þeir sem hafa sýnt mestan áhuga koma ann­ars vegar frá löndum við Persaflóa í Mið-Aust­ur­löndum og hins vegar frá Kína.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er um að ræða stór fyr­ir­tæki sem eiga þegar hluti í alþjóð­legum bönkum. Ein­hverjir hópanna rit­uðu undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um kaup á bank­anum í febr­úar síð­ast­liðnum.

Erlent eignarhald á banka umdeilt


Ljóst er að sala á Íslands­banka er umdeild og margir leik­endur í íslensku við­skipta­lífi sem sjá sér hag í að bank­inn verði seldur inn­lendum aðilum. Íslands­banki á gríð­ar­legt eigið fé (181,5 millj­arða króna), er með mikla mark­aðs­hlut­deild og getu til að vaxa. Því er skilj­an­legt að margir íslenskir fjár­festar horfi hýru auga til bank­ans.

Það hefur einnig verið póli­tísk and­staða. Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook dag­inn eftir að frétt Kjarnans birt­ist að honum þætti afar „ein­kenni­legt að það geti sam­rýmst mark­miðum um efna­hags­legan stöð­ug­leika og þjóð­ar­hags­muni að selja erlendum aðilum bank­ana“. Ástæðan væri sú að erlendur kaup­andi gæti sogað hund­ruði millj­arða króna í gjald­eyri út úr hag­kerf­inu í formi arð­greiðslna. Það er reyndar svo, sam­kvæmt sam­þykktri til­lögu Glitnis um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda, að þau geta gert kröfu um tak­mark­anir á arð­greiðslum í gjald­eyri til erlendra eig­enda til að verja greiðslu­jöfnuð.





Slitabú föllnu bank­ana eiga Íslands­banka og Arion banka að mestu leiti og áforma að selja þá á þessu ári ef aðstæður...

Posted by Frosti Sig­ur­jons­son on Tuesday, June 9, 2015

Í síð­ustu viku gerðu Stöð 2 og Frétta­blaðið skoð­ana­könnun

um hvort almen­ingur vildi frekar að Íslands­banki og Arion banki yrðu seldir til íslenskra eða erlendra fjár­festa. Stór hluti svar­enda, alls 44 pró­sent, voru óákveðnir eða kusu að svara ekki. En á meðal þeirra sem tóku afstöðu var vilj­inn skýr: átta af hverju tíu vildu að inn­lendir aðilar myndu fá að kaupa bank­ana tvo en ein­ungis tveir af hverjum tíu vildu að þeir verði í erlendri eigu.

Ánægja með samkomulag við stjórnvöld

Allt þetta hefur haft áhrif á hversu mikil áhersla verður lögð á að ljúka sölu á Íslands­banka sem fyrst. Það er mat áhrifa­manna innan kröfu­hafa­hóps Glitnis að það þjóni ekki til­gangi að reyna að hraða sölu á Íslands­banka strax í ljósi þess hversu umdeild hún geti orðið, bæði póli­tískt og hjá almenn­ingi. Sér­stak­lega í ljósi þess að tölu­verð ánægja er á meðal þeirra með það sam­komu­lag sem náðst hefur við stjórn­völd um und­an­þágu frá höftum til að ljúka nauða­samn­ingum. Mikil vinna er framundan við útfærslu á til­lögum slita­stjórn­ar­innar og salan á Íslands­banka er ein­ungis einn angi þeirrar vinnu.

Það breytir því ekki að það er fjár­festa­hópur sem hefur und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu um kaup á 95 pró­sent hlut slita­stjórnar Glitnis í Íslands­banka og það er vilji fyrir því að sá hópur nái að ljúka þeim kaupum í nán­ustu fram­tíð. Gangi þau kaup ekki eftir mun slita­stjórn Glitnis reyna að skrá Íslands­banka á markað erlendis, lík­lega í Svíþjóð eða Noregi, og selja bank­ann þannig til erlendra aðila fyrir gjald­eyri.

Vilja fá erlenda eigendur


Í erindi kröfu­hafa Glitnis, sem stjórn­völd hafa sam­þykkt að upp­fylli stöð­ug­leika­skil­yrði þeirra, kemur nefni­lega mjög skýrt fram að vilji þeirra stendur til að selja Íslands­banka til erlendra aðila. Ramminn til að selja bank­ann er reyndar rúmur sam­kvæmt erind­inu, bank­inn þarf að selj­ast fyrir árs­lok 2016. Heim­ildir Kjarnans herma hins vegar að allar áætl­anir miði við að sala á bank­anum verði kláruð á þessu ári.

Það er mjög arð­bært fyrir bæði íslenska ríkið og kröfu­hafa Glitnis ef bank­inn verður seldur til erlendra aðila fyrir erlendan gjald­eyri. Í erindi kröfu­hafa Glitnis segir: „Verði Íslands­banki seldur til erlendra aðila skal 60% sölu­and­viris renna til stjórn­valda í erlendri mynt, en þó ekki meira en sem nemur 60% af bók­færðu virði bank­ans.“ Auk þess er gerð krafa um að Íslands­banki verði í erlendu eign­ar­haldi í að minnsta kosti fimm ár.

Það er líka áhugi hjá stjórn­endum Íslands­banka á því að fá erlenda eig­endur. Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, sagði í Morg­un­út­gáf­unni á RÚV á fimmtu­dag að það væri ágætt ef einn banki væri í erlendri eigu að hluta eða algjör­lega. Hún hafi greini­lega orðið var við áhuga erlendra fjár­festa á Íslands­banka. „Ég hef kynnt bank­ann fyrir utan Ísland og mér finnst ótrú­lega gaman að heyra að það er áhugi á eign­ar­hald­inu frá ýmsum aðilum[...]En auð­vitað er þetta alltaf spurn­ing um verð. Við höfum nátt­úru­lega verið að skoða hvort skrán­ing erlendis kæmi til greina og rætt við fjár­festa tengda því. Ég held að það séu mis­mun­andi hópar, sem hafa velt þessu fyrir sér. Það væri ágætt að einn banki væri í erlendri eigu að ein­hverjum hluta eða algjör­lega. Það myndi auka fjöl­breytn­ina“ .

Arðbært að selja fyrir gjaldeyri


Líkt og áður sagði er eftir miklu að slægj­ast verði bank­inn seldur fyrir erlendan gjald­eyri. Ef sölu­verðið verður bók­fært virði Íslands­banka skilar það rík­is­sjóði 71 millj­arði króna í erlendum gjald­eyri. Það er fé sem ríkið getur notað til að greiða niður skuldir sínar og lækka fjár­magns­kostnað. Til við­bótar verður slitabú Glitnis þegar búið að greiða rík­is­sjóði 37 millj­arða króna arð­greiðslu til að lækka eigið fé Íslands­banka fyrir sölu.

Verði bank­inn seldur til inn­lendra aðila verður gefið út veð­skulda­bréf til rík­is­ins að and­virði 119 millj­arðar króna. Skulda­bréfið er till þriggja ára og ber 5,5 pró­sent vexti. Ríkið fær þriðj­ung þess sölu­hagn­aðar sem verður til á bil­inu 85 til 119 millj­arðar króna. Upphæðin hækkar síðan eftir því sem Íslands­banki selst fyrir meira fé. Þótt um sé að ræða hærri upp­hæð í krónum talið en ef Íslands­banki verður seldur til erlendra aðila er þetta fé ekki jafn „verð­mætt“ fyrir íslensk stjórn­völd vegna þess að það er ekki hægt að nota það til að greiða niður erlendar skuldir, líkt og væri hægt með gjald­eyr­inn sem erlendir kaup­endur myndu borga með.

Mikil vinna eftir


Þótt að mik­ill áhugi sé hjá þeim erlendu aðilum sem sýnt hafa Íslands­banka áhuga er ljóst að mikil vinna er eftir áður en að hægt verður að ljúka kaup­unum. Þeir eiga eftir að fara yfir gögn sem verða þeim aðgengi­leg í gagna­her­bergi Íslands­banka til að stað­reyna stöðu bank­ans og fram­tíð­ar­mögu­leika. Þeir eiga eftir að sam­þykkja þær tak­mark­anir sem stjórn­völd munu setja á arð­greiðslur í gjald­eyri til að vernda greiðslu­jöfnuð og þeir eiga eftir að verða sam­þykktir sem hæfir eig­endur af Fjár­mála­eft­ir­lit­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár