Til skoðunar að taka Úkraínu af lista yfir örugg ríki

Dóms­mála­ráð­herra segir inn­rás Rússa í Úkraínu gefa til­efni til að end­ur­skoða að taka Úkraínu af lista yfir örugg ríki. „Þetta þarf að ger­ast strax í dag. Úkraína er ekki öruggt ríki,“ segir Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir nýja heimsmynd blasa við eftir innrás Rússa í Úkraínu í nótt. Til skoðunar er að taka Úkraínu af lista yfir örugg ríki.
Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra segir nýja heims­mynd blasa við eftir inn­rás Rússa í Úkraínu í nótt. Til skoð­unar er að taka Úkraínu af lista yfir örugg ríki. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra segir það koma til greina að taka Úkraínu af lista yfir örugg ríki eftir að Rússar gerðu inn­rás í nótt.

[links]Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar, vakti athygli dóms­mála­ráð­herra á mál­inu í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í morgun og spurði hvort hann væri til­bú­inn til þess að liðka fyrir komu úkra­ínsks almenn­ings á flótta hingað til lands. „Getum við séð fyrir okkur að rík­is­stjórnin stígi fram með það sem við höfum yfir að ráða, sem er ekki her­vald heldur mannúð og skjól?“ spurði Helga Vala.

„Ja, það hlýtur að verða til end­ur­skoð­unar núna,“ svar­aði dóms­mála­ráð­herra, sem sagði það alveg rétt að mannúð og skjól eigi að vera aðals­merki Íslands. „Við þurfum að axla okkar skyldur í þeim efnum eins og önnur ríki í Evrópu og víðar um heim. Nú blasir við okkur ný sviðs­mynd, ný hætta og við hljótum að taka þátt í því, einmitt undir for­merkjum mann­úðar og skjóls sem Ísland getur veitt,“ sagði Jón.

[adspot]Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, auk rík­is­stjórn­ar­innar allrar, for­dæma inn­rás Rússa í Úkraínu. Katrín sagði í sam­tali við RÚV að um alvar­legt brot á alþjóða­lögum væri að ræða og að verstu spár hafi gengið eftir.

„Þetta þarf að gerast strax í dag“

Hvort Úkraína fari af lista yfir örugg ríki er meðal þess sem verður til umræðu á fundi þjóðar­ör­ygg­is­ráðs í dag. Jón segir að horft verði til aðgerða nágranna­ríkja í þessum efnum. „Við þurfum alltaf að hafa það sem for­grunn, í þeim verk­efnum sem við tökum að okkur, að við ráðum við þau með sóma­sam­legum hætti þannig að þeir sem hingað koma og við tökum undir okkar vernd­ar­væng fái þá þjón­ustu sem við verðum að geta veitt til að þeir geti búið hér í okkar landi.“

Helga Vala fagn­aði afdrátt­ar­lausri yfir­lýs­ingu ráð­herra og sagð­ist vænta þess að sjá birt­ingu þess efnis á heima­síðu ráðu­neyt­is­ins eigi síðar en í dag.

„Annars getum við ekki tekið orð hæst­virst ráð­herra trú­an­leg. Þetta þarf að ger­ast strax í dag. Úkraína er ekki öruggt ríki. Við sjáum það í heims­fréttum, við sjáum það í inn­lendum fréttum. Við verðum að bregð­ast við núna og veita fólki skjól,“ sagði Helga Vala á Alþingi í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár