Ákveðið að senda palestínska drengi til Grikklands þar sem þeirra bíður að betla á götunni

„Hann er að far­ast úr áhyggjum," segir Anna Guðrún Inga­dóttir, sem hefur haft Sameer, tólf ára palest­ínskan dreng, í fóstri á meðan fjöl­skylda hans flýr sprengjuregn á Gasa. Útlend­inga­stofnun hefur ákveðið að senda Sameer og fjórtán ára frænda hans til Grikk­lands.

Synjun
Synjun Sameer er tólf ára og flúði frá Gasa­strönd­inni. Útlend­inga­stofnun hefur synjað umsókn hans um vernd á Íslandi. Mynd: Golli

Til stendur að tólf ára dreng sem flúði frá Palest­ínu verði vísað úr landi. Sameer kemur frá Gasa­strönd­inni, þar sem for­eldrar hans og yngri systk­ini búa enn. Sameer og hinn 14 ára Yazan munu verða sendir til Grikk­lands, ásamt þrí­tugum frænda þeirra. Síðustu fregnir af fjöl­skyldu hans á Gaza eru að þau voru á flótta undan sprengiregni.

Anna Guðrún Inga­dóttir, sem hefur verið með Sameer í fóstri síðan í júní, segir óvíst hvenær brott­vís­unin muni eiga sér stað. Það hafi verið mikið áfall að frétta af synj­un­inni og þau bíði nú með hnút­inn í mag­anum.

Að hennar sögn var drengnum og frændum hans tveimur til­kynnt af Útlend­inga­stofnun í lok októ­ber að umsóknum þeirra um vernd hefði verið synjað. Fóst­ur­for­eldr­arnir hafa fengið litlar upp­lýs­ingar sökum þess að vera ekki for­ráða­menn drengs­ins.

„Við vitum ekk­ert hvenær næsta svar kemur eða hvaða svar það verður. Það er mikil óvissa,“ segir hún. „Við sitjum og bíðum með hnút í mag­anum.“

Fóst­ur­fjöl­skyldaSameer ásamt Önnu Guðrúnu.

Miklar áhyggjur af framhaldinu

Þau hjónin hafa miklar áhyggjur af fram­tíð drengj­anna og fjöl­skyldu Sameers sem er komin á göt­una á Gasa. „Hann [Sameer] er að far­ast úr áhyggjum yfir þeim. Og við líka.“ Hún segir það hræði­legt álag fyrir dreng­inn að bíða eftir svari um vernd undir þessum kring­um­stæðum. 

Anna Guðrún seg­ist hafa reynt að hafa sam­band við ráð­herra og þing­menn varð­andi málið með litlum sem engum árangri. Hún gagn­rýnir það að Palest­ínu­menn þurfi að hafa áhyggjur af því að hljóta vernd á meðan þjóð­ar­morð á sér stað í heima­landi þeirra.

„Þetta er ótrú­lega erfitt. Og þegar maður er með heila ætt á bak­inu sem spyr mig spurn­inga oft á dag. Hver staðan á hans máli sé. Og maður getur ekki svarað neinu. Ekki einu sinni hver tímara­mm­inn er.“

Hjónin hafa verið í sam­skiptum við fjöl­skyldu Sameers á Gasa en ekk­ert hefur frést af þeim síðan á laug­ar­dags­kvöldið. Vitað sé að hún hafi þurft að yfir­gefa hús sitt vegna yfir­vof­andi sprengju­árása.

Sameer og Yazan

Anna Guðrún segir það vera dýr­mætt að drengirnir eigi bak­land hér á landi. „Þeir eiga ætt­ingja og hafa bak­land hér. Þeir leita þess vegna hingað. Það er frænd­fólk sem hefur haldið þeim gang­andi síð­ustu daga í öllum erf­ið­leik­unum. Frétt­unum um dauðs­föllin og af mömmu og pabba sem eru að hlaupa út úr húsi sínu.“

„Ekkert líf“ á Grikklandi

Drengj­unum líður vel á Íslandi en þeir eiga erfitt í ljósi aðstæðna sinna. Anna Guðrún segir að sex mán­aða dvöl þeirra á Grikk­landi, áður en þeir komust til Íslands, hafa haft slæm áhrif á þá. 

„Þeir voru í raun bara úti á götu að betla pen­inga á Grikk­landi. Það er hrækt á þá og miklir for­dómar sem mæta þeim þar. Það er ekk­ert líf.“

Anna Guðrún dregur í efa þá afstöðu íslenskra stjórn­valda að Grikk­land telj­ist öruggt ríki til að senda flótta­menn. „Eins og einn frændi þeirra sagði: „Sendið mig þá frekar til Palest­ínu svo ég geti dáið hratt. Í stað þess að vera þarna og deyja hægt.““

„Honum líður alltaf illa“

Anna Guðrún segir að Sameer hafi gengið vel að aðlag­ast líf­inu á Íslandi og sé strax stór hluti af fjöl­skyldu þeirra. Þrátt fyrir krefj­andi aðstæður segir hún dreng­inn standa sig vel.

„Hann er hörku­dug­legur.“
Anna Guðrún Inga­dóttir

„Hann fer á fætur á morgn­ana, í skól­ann og á æfingar. Hann er hörku­dug­legur. Hann hefur verið allt sitt líf að glíma við árás­irnar frá Ísrael.“

Hún segir hann þó sofa illa á nótt­unni og vera mjög kvíð­inn vegna afdrifa for­eldra sinna og yngri systk­ina, sem ekk­ert hefur heyrst af í meira en sól­ar­hring. Þegar síð­ast frétt­ist af þeim voru þau að flýja húsið sitt undan sprengjuregni. „Honum líður alltaf illa,“ segir hún.

Mál Sameer er nú í ferli hjá kæru­nefnd útlend­inga­mála.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þóra Karítas skrifaði
    Hér kemur slóðin á undirskriftalistann - https://is.petitions.net/verndum_sameer_og_yazan_veitum_palestinskum_flottamonnum_a_islandi_aljolega_vernd?fbclid=IwAR1iJ91U4WsG7zdN4a6dyafa0GwiR-lqrvtBjMTmjCYwFPtrfRmBNqoN3y8
    0
  • Þóra Karítas skrifaði
    Undirskriftarlisti https://www.facebook.com/100002864793359/posts/pfbid0z8GGxFEyeF2XZEqaUDrZiy9eibTKrqJL7WahCM2iDThXCAAMxMZncsfWrMMfHGA3l/?d=n&mibextid=WC7FNe
    0
    • Þóra Karítas skrifaði
      📸 Look at this post on Facebook https://www.facebook.com/100002864793359/posts/pfbid0z8GGxFEyeF2XZEqaUDrZiy9eibTKrqJL7WahCM2iDThXCAAMxMZncsfWrMMfHGA3l/?d=n&mibextid=WC7FNe
      0
  • Anna María Sverrisdóttir skrifaði
    Þetta eru börn. Þeir eru ekki sorp sem má henda. Við látum það ekki gerast
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Látið blessaða drengina í friði, á meðan séð er fyrir þeim hér.
    3
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Ef af því verður að senda þessa drengi úr landi eins og ástandið er, þá nær kvikindisskapur íslenskra stjórnvalda alveg nýjum hæðum og hafa þau þó seilst langt að undanförnu.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár