Ár liðið frá hvarfi MH 370, enn verið að leita í Indlandshafi

Á morgun verður liðið ár frá því að þota flug­fé­lag­ins, MH 370, hvarf spor­laust af rat­sjám. Vélin var á leið frá Kuala Lumpur til Peking og hafði verið innan við klukku­stund í loft­inu þegar sam­band við hana slitn­aði. Enn er ekk­ert vitað hvað varð um vél­ina. Í jan­úar sögðu stjórn­völd í Malasíu að búið væri að úrskurða að hvarfið hafi verið flug­slys. Sú ákvörðun þýðir að aðstand­endur þeirra 239 ein­stak­lingar sem fór­ust með vél­inni geta fengið bætur.

Málið er ein helsta ráð­gáta flug­sög­unnar og tugum millj­óna Banda­ríkja­dala hefur verið varið í leit að flug­vél­inni á risa­stóru svæði í Ind­lands­hafi. Leitin að flak­inu er umfangs­mesta aðgerð af þessu tagi og mikil leit stendur enn yfir að flaki vél­ar­innar og standa vonir til þess að búið verði að leita á for­gangs­leit­ar­svæð­inu í lok maí.

For­gangs­leit­ar­svæðið, sem er það svæði sem talið er lík­leg­ast að vélin hafi hrapað á, er um 60 þús­und fer­kíló­metrar á stærð. Til sam­an­burðar er Ísland um 103 þús­und fer­kíló­metrar. Dýpið er svo allt að fimm kíló­metrar, og leit­ar­tækin fara um það bil jafn hratt yfir svæði og gang­andi mann­eskja. Það gefur því auga leið að þessi leit er afskap­lega tíma­frek.

Sunday marks one year since #MH370 disapp­eared. Review key develop­ments in the search: http://t.co/rxdBKBCL4y pic.twitter.com/xiZXg8H1sJ

— Wall Street Journal (@WSJ) March 6, 2015

Flugfélagið í vondum málum

Flug­fé­lagið Malaysia Airlines hefur líka átt

erfitt upp­dráttar

frá því að vélin hvarf. Fjórum mán­uðum eftir hvarf MH 370 var önnur vél félags­ins, MH 17, skotin niður í Úkraínu á leið sinni frá Amster­dam til Kuala Lumpur. Með henni fór­ust 298 manns.

Félagið átti í fjár­hags­vand­ræðum fyrir, en eftir þessa tvo vofeif­legu atburði juk­ust vand­ræðin mikið. Fyrstu níu mán­uði árs­ins í fyrra tap­aði Malaysia Airlines 368 millj­ónum dala. Stjórn­völd í Malasíu höfðu átt stærstan hluta félags­ins en tóku það alveg yfir í ágúst. Þá var félagið tekið af mark­aði og þriðj­ungi starfs­fólks­ins var sagt upp. Áætlanir stjórn­valda miða við að björgun félags­ins muni kosta tæp­lega tvo millj­arða Banda­ríkja­dala.

Nýr for­stjóri, Christoph Mueller, kom til starfa í síð­ustu viku og honum er ætlað að snúa við tafl­inu. Mueller hefur áður gert einmitt það fyrir írska flug­fé­lagið Aer Lingus, en flestir virð­ast sam­mála um að verkið sem hann á fyrir höndum í Malasíu er erf­ið­ara og ólík­legra er að það tak­ist. Planið er þó að flug­fé­lagið verði farið að skila hagn­aði á ný árið 2017.

[caption id="attachment_22190" align="alignnone" width="599"] Minn­ing­ar­at­höfn um þá sem hurfu með MH 370 fyrir ári var haldin fyrir utan Kuala Lumpur í gær. Kelly Wen missti mann­inn sinn í slys­inu. (MYND/EPA)[/caption]

Hvað ef leitin skilar ekki árangri?


Eins og fyrr segir er gert ráð fyrir því að búið verði að leita á for­gangs­svæð­inu í Ind­lands­hafi í maí næst­kom­andi, ef vélin hefur ekki fund­ist fyrir þann tíma. En engin ákvörðun virð­ist hafa verið tekin um það hvað ger­ist ef vélin finnst ekki á þessu 60 þús­und fer­kíló­metra svæði, sem er samt bara lít­ill hluti af leið­inni sem vélin gæti hafa flogið yfir.

Áströlsk og mala­sísk yfir­völd fjár­magna þessa dýru leit og leit­ar­menn­irnir gera ráð fyrir því að þeir færi sig ein­fald­lega á næsta svæði ef þessi leit ber ekki árangur. Það er þó ekki víst og Tony Abbot, for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu, hefur gefið það í skyn að mögu­lega verði dregið úr leit­inni. Ekki sé hægt að tryggja að svona umfangs­mik­illi leit verði haldið áfram enda­laust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár