Dalurinn ehf. kaupir Birting

Hreinn Loftsson fagnar við­skipt­unum, og segir þau ánægju­leg fyrir alla sem að þeim koma.

Um tíma stóð til að Pressan, sem rekur m.a. DV, myndi kaupa Birting, en frá því var fallið sökum fjárhagsvandræða Pressunnar.
Um tíma stóð til að Pressan, sem rekur m.a. DV, myndi kaupa Birting, en frá því var fallið sökum fjár­hags­vand­ræða Pressunnar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í kjöl­far rift­unar á kaupum Pressunnar ehf. á hlutafé í Birtíngi útgáfu­fé­lagi ehf. hinn 10. maí sl. hefur Eign­ar­halds­fé­lagið Dalurinn ehf. keypt allt hlutafé Birtíngs útgáfu­fé­lags ehf.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu. Pressan hugð­ist kaupa Birting en við­skipt­unum var rift sökum afleitrar fjár­hags­stöðu Pressunnar, eins og greint var frá á vef Kjarnans 17. maí síð­ast­lið­inn.

Birtíngur gefur út Gest­gjafann, Hús og híbýli, Vikuna og Nýtt líf. Eigendur Dalsins eru Árni Harð­­­­ar­­­­son, Hall­­­­dór Krist­­manns­­son­­, Hilm­­­­­­­ar Þór Krist­ins­­­­son, Jóhann G. Jóhanns­­­­son­­­­ og Róbert Wessman.

Hver hlut­hafi á 20% hlut í félag­inu. Selj­endur Birtíngs eru SMD ehf. (í eigu Hreins Lofts­sonar), Prospectus ehf. (í eigu Matth­í­asar Björns­sonar) og Karl Steinar Ósk­ars­son. Hreinn hefur verið stjórn­ar­for­maður og aðal­eig­andi Birtíngs síð­ast­liðin átta ár, Matthías fjár­mála­stjóri frá sama tíma og Karl Steinar fram­kvæmda­stjóri í fimm ár. Þeir Karl Steinar og Matthías halda áfram störfum sínum hjá félag­inu. Kaup­verðið er trún­að­ar­mál, að því er fram kemur í til­kynn­ingu.

Hreinn Loftsson segir að þetta séu veru­lega góð tíð­indi ekki aðeins fyrir fyrri hlut­hafa heldur einnig fyrir starfs­fólk, við­skipta­vini og lán­ar­drottna fyr­ir­tæk­is­ins. „Nýir eig­endur hafa lagt félag­inu til tals­verða fjár­muni til nið­ur­greiðslu skulda og þar með lýkur þeirri fjár­hags­legu end­ur­skipu­lagn­ingu sem staðið hefur yfir und­an­farin miss­eri. Ég vil nota tæki­færið og óska nýjum eig­endum og starfs­fólki vel­farn­aðar og þakka um leið starfs­fólk­inu, við­skipta­vinum og sam­starfs­að­ilum fyrir gott sam­starf á liðnum árum.“

Gunn­laugur Árnason mun taka sæti stjórn­ar­for­manns í Birtíngi og leiða stefnu­mótun fyr­ir­tæk­is­ins fyrir hönd hlut­hafa. Hann hefur víð­tæka reynslu af fjöl­miðlun, bæði hér á landi og erlendis. Gunn­laugur er eig­andi bresku fjöl­miðla­fyr­ir­tækj­anna M2 Communications og M2 Bespoke. Hann vann um fimm ára skeið sem blaða­maður hjá Reuters-frétta­stof­unni í Lundúnum og var rit­stjóri Við­skipta­blaðs­ins á árunum 2005-2007. „Innan Birtíngs eru rót­gróin vöru­merki og nú þegar fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu er lokið getur félagið nýtt þann góða grunn til frek­ari vaxtar á fjöl­miðla­mark­aði,“ segir Gunn­laugur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár