Al-Kaída í Jemen lýsir yfir ábyrgð á hryðjuverkum í París

Al-Kaída í Jemen hefur lýst ábyrgð­inni á hryðju­verka­árás­unum í París í síð­ustu viku á hendur sér. Þetta var gert í nýju mynd­bandi sem sjá má hér að neðan.

Í mynd­band­inu kemur meðal ann­ars fram að sam­tökin hafi valið skot­mörk, skipu­lagt og fjár­magnað hryðju­verkin. Þá kemur fram að stjórn­völd á Vest­ur­löndum hafi áður verið vöruð við stefnu sinni um tján­ing­ar­frelsi. „Hættið móðg­unum ykkar við spá­mann okkar og helgi­dóma. Hættið að úthella blóði okkar. Farið frá löndum okkar. Hættið að fara ráns­hendi um auð­lindir okkar.“

Einnig er rætt um sam­stöðu­göng­una í París um helg­ina og sjónum beint að þjóð­ar­leið­tog­unum sem þar komu saman, þeir séu þeir sömu og hafi barist gegn al-Kaída víða. „Frakk­land deilir öllum glæpum Banda­ríkj­anna.“

AP hafði áður fengið yfir­lýs­ingu frá hópnum seint á föstu­dag. Þar kom fram að leið­togar al-Kaída á Arab­íu­skaga hafi stjórnað aðgerðum hryðju­verka­mann­anna og skot­mörkin hefðu verið vand­lega valin. Þá var einnig sagt að árásin á Charlie Hebdo hafi verið hefnd fyrir heiður Múhameðs spá­manns.

Bræð­urnir Said og Cherif Kouachi eru sagðir hafa haldið þessu sama fram í sím­tali úr prensmiðj­unni þar sem þeir voru svo drepnir á föstu­dag. Þá hefur vitni greint frá því að einn byssu­mann­anna hafi öskrað „þið getið sagt fjöl­miðl­unum að þetta sé al-Kaída í Jemen“ á meðan á árás þeirra stóð. Áður hafði verið greint frá því að þeir hefðu tengsl við hryðju­verka­sam­tökin.

Þessi frétt verður upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár