Ásgeir hættir sem forstjóri HS Orku

Um þremur mán­uðum eftir eig­enda­breyt­ingar í HS Orku hefur verið samið við for­stjóra félags­ins um starfs­lok. Hann hefur gegnt starf­inu í sex ár en var ráð­inn í tíð fyrr­ver­andi meiri­hluta­eig­enda.

Ásgeir Margeirsson.
Ásgeir Mar­geirs­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ásgeir Mar­geirs­son, sem verið hefur for­stjóri HS Orku í sex ár, hefur kom­ist að sam­komu­lagi um starfs­lok við stjórn félags­ins. Staða for­stjóra verður aug­lýst en Ásgeir mun gegna henni þangað til að nýr for­stjóri tekur við. Ásgeir var ráð­inn for­stjóri í tíð fyrri meiri­hluta­eig­enda, en miklar breyt­ingar hafa orðið á eig­enda­hópi HS Orku á síð­ustu mán­uðum.

Í frétt á heima­síðu HS Orku segir Ásgeir að hann hafi leitt félagið í gegnum veru­legar áskor­anir og mikið vaxta­skeið. „Nýr for­stjóri mun taka við góðu búi, framundan eru mik­il­væg og umfangs­mikil verk­efni svo sem að ljúka fram­kvæmdum og gang­setja Brú­ar­virkjun, fram­kvæmdir við stækkun Reykja­nes­virkj­unar um 30 MW og end­ur­nýjun og stækkun í orku­veri félags­ins í Svarts­engi. Um leið og ég þakka sam­starfs­mönnum frá­bært sam­starf óska ég félag­inu allrar vel­gengni í fram­tíð­inni."

Bjarni Þórður Bjarna­son, sem tók við sem stjórn­ar­for­maður HS Orku fyrir skemmstu segir að Ásgeir hafi um langa hríð verið lyk­il­maður í íslenska orku­iðn­að­inum og leitt fyr­ir­tækið far­sæl­lega í gegnum mikið breyt­inga­skeið. „Eftir stendur mynd­ar­legt fyr­ir­tæki og góður árangur þess hefur end­ur­spegl­ast í ríkum áhuga á félag­inu jafnt frá lán­veit­endum og fjár­festum. Stjórn HS Orku þakkar Ásgeiri sér­stak­lega fyrir störf hans í þágu félags­ins."

Lífeyrissjóðir keyptu

Jarð­varmi slhf, félag í eigu 14 íslenska líf­eyr­is­sjóð, keypti í maí hlut Innergex í HS Orku á 299,9 millj­ónir dali, eða 37,3 millj­arða króna á núvirði.

Innergex seldi þar með sænska félagið Magma Sweden til Jarð­varma en Magma átti 53,9 pró­sent hlut í félag­inu. Með þessu varð Jarð­varmi eig­andi allra hluta í HS Orku, eina íslenska orku­fyr­ir­tæk­inu sem er í einka­eigu eftir að hafa gengið inn í sölu á hlut fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins ORK fyrr á þessu ári. Sam­an­lagt greiddi Jarð­varmi 47 millj­arða króna fyrir hlut­ina, en þeir nema 66,6 pró­sent af útgefnu hlutafé í HS Orku. Jarð­varmi var að nýta kaup­rétt sinn á hlutum í HS Orku en félagið átti áður 33,4 pró­sent hlut.

Í kjöl­farið seldi Jarð­varmi síðan helm­ing hluta­fjár í HS orku til breska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Ancala Partners, sem sér­hæfir sig í inn­viða­fjár­fest­ingum í Evr­ópu og er að stóru leyti fjár­magnað af breskum líf­eyr­is­sjóð­um. Áður en að það var gert tók Jarð­varmi þó 30 pró­sent hlut HS Orku í Bláa lón­inu út úr orku­fyr­ir­tæki og seldi til nýs félags í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, Blá­varma slhf., á 15 millj­arða króna. Miðað við það verð er heild­ar­virði Bláa lóns­ins 50 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár