Er lausnin stríð? Trump boð­aði frið og hót­aði á víxl á blaða­manna­fundi eftir loft­árásir Írana á tvær banda­rískar her­stöðvar í Írak. Dæmi eru um að for­setar stór­auki vin­sældir sínar til skamms tíma með stríði. Mynd: Shutterstock

Korter í stríð

Allir virðast hafa grætt á átökunum milli Írans og Banda­ríkjanna. Stríð mun til skamms tíma þjappa almenningi saman að baki leið­toganum, bæði í Íran og Banda­ríkjunum. Gunnar Hrafn Jónsson kort­leggur leiðina að stríðs­átökum sem geta farið úr böndunum.

Stríð virtist nánast óumflýjanlegt eftir að Bandaríkja­stjórn felldi æðsta hers­höfðingja Írans í óvæntri loftárás en von er um stundar­frið eftir takmarkaða hefndar­aðgerð Írana sem kostaði að sögn engin mannslíf. Ástandið er hins vegar nú orðið svo eldfimt að það virðist aðeins tíma­spursmál hvenær blóðsút­hellingar hefjist fyrir alvöru. Öflugir hagsmunir knýja á um stríð og herskáir bandamenn Trumps virðast ekki ætla að linna látum fyrr en allt fer í bál og brand.

Það má segja að stríð á milli Banda­ríkjanna og Írans hafi verið í kortunum allt frá árinu 1979 þegar sjálf­skipuðum konungi landsins var steypt af stóli í byltingu sem leiddi strang­trúaða klerka til valda. Konungur sá hafði lengi verið leppur ráðamanna í Washington og stjórnað landinu með harðri hendi í óþökk alls þorra almennings. Hann átti allt sitt ríkidæmi að þakka útsendurum CIA sem hjálpuðu honum að ræna völdum af lýðræðis­lega kjörnum forsætis­ráðherra árið 1953.

Fyrir vikið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár