Versta kynþáttahatrið í Bretlandi hatur Skota á Englendingum

Nigel Farage, leið­togi breska sjálf­stæð­is­flokks­ins UKIP, segir að versta kyn­þátta­hat­rið sem á sér stað í Bret­landi sé hatur Skota á Eng­lend­ingum.

Þetta sagði hann í heim­sókn í Hartlepool í dag, þar sem hann var spurður út í skoð­ana­könnun sem sýndi að 28 pró­sent stuðn­ings­manna flokks­ins við­ur­kenndu að hafa for­dóma gegn fólki af öðrum kyn­þáttum en það er sjálft. Farage sagði að hann vildi ekki atkvæði ras­ista og sagði að til væru aðrir flokkar sem fólk gæti kosið í þeim erinda­gjörðum.

Hann ræddi málið við BBC Radio 5, útvarps­stöð Breska rík­is­út­varps­ins. Þá sagði hann: „Mesta kyn­þátta­hat­rið sem ég hef séð í breskum stjórn­málum á sér stað norðan við landa­mærin hjá Skoska þjóð­ar­flokknum (SNP), þar sem hat­rið gegn Englandi er að ná ótrú­legum hæðum og ég myndi halda að ef BBC hefur áhyggjur af kyn­þátta­hatri ætti stofn­unin að líta þangað...Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn er opin­ber­lega rasískur. Andúðin gegn Eng­lend­ingum og orð­bragðið sem er notað um og gagn­vart Eng­lend­ingum eru algjör­lega ótrú­leg.“

Hann sagði síðar að póli­tískir and­stæð­ingar UKIP hefðu rang­lega dæmt flokk­inn sem rasískan, og að þeim dómum hefði betur verið beint að SNP. Þegar hann var svo spurður hvort hann væri ekki í afneitun gagn­vart kyn­þátta­hatri innan flokks­ins sagði hann fjöl­miðla vera með það á heil­anum að reyna að mála flokk­inn upp sem slíkan flokk, og að hann væri orð­inn þreyttur á því. „Það er með öllu órétt­læt­an­legt, afskap­lega ósann­gjarnt og leiðir til þess að fólk sem er sam­mála UKIP er nán­ast feimið við að tala um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár