Einungis 35 prósent styðja ríkisstjórnina

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist 38,4 pró­sent. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist enn lægri, eða 35 pró­sent. Til sam­an­burðar mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur 56,1 pró­sent í fyrstu mæl­ingu eftir að hún tók við í febr­úar 2009 og stuðn­ingur við rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar 59,9 pró­sent þegar hann var fyrst mældur í byrjun júní 2013. Þetta kemur fram í nýrri könnun frá MMR.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærsti flokkur lands­ins með 24,6 pró­sent fylgi og dalar á milli kann­anna. Vinstri græn mæl­ast með 22 pró­sent og Píratar með 13,6 pró­sent, sem er minna en báðir flokkar höfðu í síð­ustu könnun MMR. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir við sig og mælist nú með 12,5 pró­sent fylgi. Það gerir Sam­fylk­ingin líka og mælist nú með sjö pró­sent fylgi. Viðreisn heldur áfram að mæl­ast á svip­uðum slóðum og í und­an­förnum könn­unum – með 6,8 pró­sent fylgi— og er tölu­vert frá kjör­fylgi sínu. Björt fram­tíð virð­ist vera eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem græðir á stjórn­ar­sam­starf­inu í könn­unum og fylgi flokks­ins mælist nú meira en Við­reisnar, eða sjö pró­sent. Munurinn er þó vel innan skekkju­marka. Athygli vekur að ef kosið yrði í dag myndi flokkur fólks­ins fá 3,6 pró­sent atkvæða.

Þótt stuðn­ingur við rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar mælist mun minni en stuðn­ingur við síð­ustu tvær rík­is­stjórnir þegar þær voru að hefja stjórn­ar­tíð sína þá er hann fjarri því að ná lág­punktum þeirra rík­is­stjórna þegar kemur að stuðn­ingi. Vinstri­st­jórn­inn mæld­ist til að mynda með ein­ungis 22,8 pró­sent stuðn­ing í októ­ber 2010 og rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs mæld­ist með 26 pró­sent stuðn­ing í sömu viku og Wintris-málið kom upp í fyrra.

Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 12. til 26. jan­úar 2017 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 910 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri. Allar nið­ur­stöður hafa ein­hver vik­mörk sem miðað við 1000 svar­endur geta verið allt að +/-3,1 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár