Þjóðskrá afhendir upplýsingar um meðlimi í trú- og lífsskoðunarfélögum

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál mat það svo að net­föng væru ekki við­kæmar per­sónu­upp­lýs­ingar.

Þjóðskrá Íslands mun frá og með 1. des­em­ber næst­kom­andi afhenda trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lögum upp­lýs­ingar um skráða með­limi í trú­fé­lög, net­föng þeirra og skrán­ing­ar­beiðnir ef félögin óska þess.

Þessi ákvörðun er tekin á grund­velli úrskurðar úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál nr. 804/2019. Í úrskurð­inum er Þjóðskrá Íslands gert að afhenda lífs­skoð­un­ar­fé­lag­inu Siðmennt aðgang að skrán­ing­ar­beiðnum núver­andi félags­manna sinna. Í úrskurð­inum var það mat nefnd­ar­innar að net­föng ein­stak­linga teld­ust almennt ekki til við­kvæmra upp­lýs­inga um einka­mál­efni þeirra.

Frá þessu er greint á vef Þjóð­skrár.

Þjóðskrá Íslands hafði áður ákveðið að hætta afhend­ingu trú­fé­laga­lista eftir að mat á heim­ildum stofn­un­ar­innar til slíkra afhend­inga með hlið­sjón af lögum um per­sónu­vernd nr. 90/2018 hafði farið fram hjá stofn­un­inni. Til­kynnti Þjóðskrá Íslands trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lögum um þá ákvörðun í októ­ber 2018.

„Rétt er að geta þess að umrædd ákvörðun er til skoð­unar hjá Per­sónu­vernd þar sem óskað var eftir áliti Per­sónu­verndar um ákvörðun Þjóð­skrár Íslands. Þjóðskrá Íslands veitti andsvör 17. apríl síð­ast­lið­inn en álit Per­sónu­verndar liggur ekki fyrir. Þegar álit Per­sónu­verndar liggur fyrir gæti Þjóðskrá Íslands þurft að end­ur­meta hvort breyta þurfi umræddum afhend­ingum,“ segir á vef Þjóð­skrar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár