Sjö ný smit á einum sólarhring

Tæplega 1.080 manns hafa náð bata af COVID-19 hér á landi. Enn fækkar mjög þeim sem eru í sótt­kví.

Staðfest smit af kór­ónu­veirunni eru orðin 1.727 hér á landi. Í gær voru þau 1.720 og hefur þeim því aðeins fjölgað um sjö síð­asta sól­ar­hring­inn. Í dag er 2.101 í sótt­kví en í gær var fjöld­inn 2.503. Alls hafa 16.726 lokið sótt­kví.

Í dag eru 642 ein­stak­lingar með virk COVID-19 smit en í gær var fjöld­inn 723. Elsti sjúk­ling­ur­inn er 103 ára gömul kona, íbúi á öldr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík.

1.077 hafa náð bata.

Alls hafa 37.386 sýni verið tekið hér á landi frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Þegar gefnar eru út upp­lýs­ingar um hve smit­uðum hefur fjölgað mikið frá deg­inum áður er það ekki alltaf svo að sam­bæri­leg tala birt­ist í súlu­riti dags­ins. Ástæðan er sú að birt­ing upp­lýs­inga um smit taka mið af því hvenær sýnið var tekið en ekki hvenær það var greint.

Enn er yfir helm­ingur þeirra sem grein­ist með sýk­ingu þegar í sótt­kví sem sótt­varna­læknir hefur sagt sýna mik­il­vægi þeirrar aðgerðar við að hefta útbreiðslu veirunnar.

Á sjúkra­húsi liggja 36 sjúk­lingar vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins, þar af átta á gjör­gæslu, sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is.

Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru átta látin.

Uppfærð spá

Í spálík­ani sér­fræð­inga Háskóla Íslands, sem upp­fært var í gær með gögnum til og með 13. apríl er gert er ráð fyrir því að á meðan þessi bylgja far­ald­urs­ins gangi yfir muni rúm­lega 1.700 manns á Íslandi vera greind með COVID-19, en talan gæti náð nær 2.100 manns sam­kvæmt svart­sýnni spá.

Gert er ráð fyrir að fjöldi greindra ein­stak­linga með virkan sjúk­dóm haf þegar náð hámarki en gæti orðið viku seinna sam­kvæmt svart­sýnni spá.

Þá er gert ráð fyrir að á meðan að þessi bylgja far­ald­urs­ins gangi yfir muni 110 manns þarfn­ast inn­lagnar á sjúkra­húsi, en gæti náð hátt í 150 manns.

Mesta álag á heil­brigð­is­þjón­ustu vegna sjúkra­húsinn­lagna verður fyrir miðjan apríl en þá er gert ráð fyrir að um það bil 60 ein­stak­lingar geti verið inniliggj­andi á sama tíma, en svart­sýnni spá er 90 ein­stak­lingar.

Gert er ráð fyrir því að á tíma far­ald­urs­ins muni um 24 ein­stak­lingar veikj­ast alvar­lega, þ.e. þurfa inn­lögn á gjör­gæslu, á tíma­bil­inu en svart­sýnni spá er 35 ein­stak­lingar.

Mesta álag á gjör­gæslu­deildir gæti orðið í annarri viku apríl, en þá er búist við því að 10 manns liggi þar inni á sama tíma, en sam­kvæmt svart­sýnni spá gætu það verið 18 manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár