Húsnæðisbætur verða greiddar út frá Sauðárkróki

Tólf til fjórtán ný störf verða til á nýrri þjón­ustu­skrif­stofu Vinnu­mála­stofn­unar á Sauð­ár­króki. Það „skemmdi ekki fyrir“ að hægt var að finna skrif­stof­unni stað í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, þar sem rík­is­stjórnin hefur lofað að fjölga störfum.

Tólf til fjórtán manns munu vinna við að greiða út hús­næð­is­bætur í nýju kerfi sem tekur gildi í byrjun næsta árs. Ný skrif­stofa verður sett á lagg­irnar hjá Vinnu­mála­stofnun sem sér um bæt­urnar. Hún verður stað­sett á Sauð­ár­króki.

Gissur Pét­urs­son, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, segir að fleiri staðir hafi komið til greina þegar farið var að skoða hvar þessi nýja skrif­stofa ætti að vera. „Ég var mik­ill tals­maður þess að þessu yrði fund­inn staður ein­hvers staðar á lands­byggð­inni. Það er mín skoðun að það falli sjaldan til verk­efni hjá rík­inu sem eru eins vel til þess fallin.“ Það hafi verið skoðað hvort hægt væri að bæta þess­ari skrif­stofu við á ein­hvern þeirra staða sem Vinnu­mála­stofnun er þegar með starf­semi á. Það hafi gef­ist mjög vel að vera með skrif­stofur á lands­byggð­inni þar sem raf­ræn þróun leyfi það að þjón­ustu­ein­ing sé ekki þar sem kúnn­arnir séu. 

Gissur segir hins vegar að reynslan hafi sýnt að svona sér­hæfður vinnu­staður af þess­ari stærð­argráðu þarfn­ist öfl­ugs bak­lands. Því hafi fljótt orðið ljóst að ekki myndi henta að finna skrif­stof­unni stað á Hvamms­tanga eða Skaga­strönd, þar sem séu þjón­ustu­skrif­stofur.

„Þá fórum við svona að skoða og það vill nú svo til að þarna á Sauð­ár­króki er önnur stofnun sem heyrir undir vel­ferð­ar­ráðu­neytið sem er Íbúða­lána­sjóður, sem er að minnka við sig og fækka fólki og það varð nið­ur­staðan að við myndum stíga inn í það eftir sam­töl við þá stofnun.“

„Skemmdi ekki fyrir“ að vera í Norðvesturkjördæmi

Gissur segir að ákvörð­unin um stað­setn­ingu skrif­stof­unnar hafi verið tekin í sam­ráði við vel­ferð­ar­ráðu­neytið. Spurður að því hvort þessi ákvörðun sé tekin með hlið­sjón af lof­orðum rík­is­stjórn­ar­innar um að fjölga störfum í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, segir hann að það „skemmdi ekki fyrir“. Með til­liti til lof­orða stjórn­valda hafi Vinnu­mála­stofnun verið að reyna að styrkja starf­semi sína á Hvamms­tanga.

Rík­is­stjórnin til­kynnti um það rétt fyrir síð­ustu jól að ákveðið hefði verið að „styrkja inn­viði, atvinnu­líf og sam­fé­lag á Norð­ur­landi vestra með marg­vís­legum aðgerðum.“ Mark­miðið var að skapa þjóð­hags­legan ávinn­ing og aðstæður svo að góðum fram­tíð­ar­störfum á svæð­inu fjölgi. Þessi ákvörðun vakti athygli og umtal, eins og Kjarninn greindi frá í frétta­skýr­ingu þá.

Til­gangur aðgerða stjórn­valda var að snúa við nei­kvæðri byggða­þróun á Norð­vest­ur­landi. Íbúum þar hefur fækkað tals­vert og hag­vöxtur er minni en víða ann­ars staðar.

Engu að síður hefur atvinnu­leysi verið minnst eða næst­minnst á þessu svæði síð­ustu tíu árin. Þá er fjórð­ungur allra starfa á Norð­ur­landi vestra í opin­berri þjón­ustu, eða 26%. Hvergi var hlut­fall opin­berrar þjón­ustu hærra en á Norð­ur­landi vestra árið 2013, sam­kvæmt skýrslu Byggða­stofn­unar sem kom út í fyrra.

Kostar 140 að koma kerfinu á laggirnar

Það er Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, sem fer með íbúða­mál og ákvað að fela Vinnu­mála­stofnun fram­kvæmd hús­næð­is­bóta, en frum­varp um hús­næð­is­bætur var sam­þykkt í þing­inu fyrir sum­ar­frí. Samkvæmt því hækka bæt­urnar og ríkið tekur yfir hefð­bundnar húsa­leigu­bætur í stað sveit­ar­fé­laga, sem munu áfram sjá um sér­stakar húsa­leigu­bætur.

Samkvæmt upp­lýs­ingum úr vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu er kostn­aður vegna hús­næð­is­bót­anna 140 millj­ónir króna vegna rekstrar- og stofn­kostn­aðar á þessu ári. Þá er áætlað að það muni kosta 111 millj­ónir króna árlega að reka hús­næð­is­bóta­kerfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár