Líkir afléttingum og takmörkunum á víxl við pyntingar á stríðsföngum

Hildur Sólveig Sig­urð­ar­dóttir odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bæj­ar­stjórn Vest­manna­eyja hvetur stjórn­völd til þess að stíga var­lega til jarðar í ákvörð­unum um mögu­legar sótt­varna­ráð­staf­anir inn­an­lands.

Óvissa ríkir um hvort hægt verður að halda mannmargar samkomur á borð við Þjóðhátíð í Eyjum á næstu vikum. Að taka ákvörðun um það bíður ríkisstjórnarinnar.
Óvissa ríkir um hvort hægt verður að halda mann­margar sam­komur á borð við Þjóð­há­tíð í Eyjum á næstu vikum. Að taka ákvörðun um það bíður rík­is­stjórn­ar­innar. Mynd: Úr safni

Hildur Sólveig Sig­urð­ars­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í bæj­ar­stjórn Vest­manna­eyja, hvetur stjórn­völd til þess að stíga „var­lega og ígrundað til jarðar“ varð­andi frelsis­tak­mark­anir þegna lands­ins, því þær séu ákveðin ógn í sjálfu sér.

Bæj­ar­full­trú­inn líkir aflétt­ingum sótt­varna­ráð­staf­ana og tak­mörk­unum á víxl við pynt­ingar á stríðs­föngum, í grein sem hún ritar á Vísi í dag, undir fyr­ir­sögn­inni „Þjóð­há­tíð er menn­ing­ar­arfur og stolt Vest­manna­ey­inga“.

Þar gagn­rýnir Hildur Sólveig umræðu um Þjóð­há­tíð Vest­manna­eyja, sem stefnt er að því að halda um Versl­un­ar­manna­helg­ina. Hún segir í grein­inni að við hvert ár sem hátíðin sé lögð niður verði erf­ið­ara að við­halda þeirri hefð að halda hana og minnir á að um helstu fjár­öflun ÍBV íþrótta­fé­lags sé að ræða.

Örlög Þjóðhátíðar í hendi stjórnvalda

Eins og fram hefur komið í dag ætlar Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir að senda minn­is­blað með til­lögum að hertum aðgerðum inn­an­lands til stjórn­valda í dag og mun rík­is­stjórnin funda um þær á morgun. Skiptar skoð­anir hafa verið settar fram víða í dag um það hvort þörf sé á því að herða tak­mark­anir í sam­fé­lag­inu með ein­hverjum hætti, í ljósi útbreiddrar bólu­setn­ingar á Íslandi.

[adspot]

Oddvita sjálf­stæð­is­manna í Vest­manna­eyjum virð­ist hreint ekki lít­ast á að hart verði stigið til jarðar, enda myndi slíkt stefna Þjóð­há­tíð í Eyjum í upp­nám.[links]

Hildur grípur til lík­inga­máls til þess að færa rök fyrir skað­legum áhrifum þess að grípa aftur til íþyngj­andi tak­mark­ana í sam­fé­lag­inu.

„Sótt­varn­ar­tak­mark­anir og aflétt­ingar á víxl líkj­ast að vissu leyti ákveðnum pynt­ing­ar­að­ferðum sem nýttar hafa verið gegn stríðs­föngum þar sem súr­efni til fang­ans er tak­markað þar til hann getur vart meir en fær svo að anda, fær von um líf (og tæki­færi til að leysa frá skjóð­unni), loks þegar ljósið við enda gang­anna er gefið er það svo jafn­harðan slökkt aftur og vonin hverfur. Slíkar aðgerðir, að veita fólki frelsi bara til að taka það aftur jafn­harðan hljóta að taka sinn toll af almenn­ingi sem heil­brigð­is­kerfið verður eflaust í langan tíma að vinna úr,“ skrifar Hildur Sólveig í grein sinni á Vísi.

Kallar eftir hófsemi

Þar minnir hún einnig á að rúm­lega 85 pró­sent þeirra sem eru 16 ára og eldri á Íslandi hafa verið full­bólu­sett og segir að bólu­setn­ing­arnar dragi veru­lega úr dán­ar­tíðni vegna COVID-19. Tak­mark­anir þurfi fyrst og fremst að taka mið af stöðu og afkasta­getu heil­brigð­is­þjón­ust­unnar.

Í nið­ur­lagi grein­ar­innar kallar bæj­ar­full­trú­inn eftir „hóf­semi í umræðu og ákvörð­unum“, bæði um Þjóð­há­tíð og sótt­varna­ráð­staf­anir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár