Þórólfur ætlar ekki að bíða eftir faraldri innlagna „því þá er of seint í rassinn gripið“

Við erum að fara inn í óvissu, segir sótt­varna­læknir og telur óskyn­sam­legt að tala með þeim hætti að hægt verði að taka upp „eðli­legt líf“ eftir nokkrar vikur. „Það er bara ekki þannig.“

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

„Enn og aftur stöndum við frammi fyrir nýjum veru­leika í bar­átt­unni við veiruna,“ sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn við upp­haf upp­lýs­inga­fundar almanna­varna og land­læknis í dag. Það eru orð að sönnu. Mikill meiri­hluti lands­manna er bólu­settur en frá mán­aða­mótum, þegar aflétt­ingar inn­an­lands höfðu tekið gildi og hætt var að skima bólu­setta á landa­mær­unum, hafa greinst 236 smit inn­an­lands. Á einni viku hafa greinst 213 smit. Á þriðja hund­rað manns eru eft­ir­liti hjá COVID-göngu­deild Land­spít­al­ans og útlit fyrir að ein­hverjir þurfi bráð­lega á sjúkra­húsinn­lögn að halda. Á spít­al­anum liggur nú einn inni vegna COVID-19. Sá er, líkt og meiri­hluti þeirra sem hafa greinst að und­an­förnu, bólu­settur.

[links]„Hegðun veirunnar hefur verið marg­breyti­leg og hún sýnir okkur enn eitt and­lit sitt núna,“ sagði Víðir. „Stöðugt nýjar áskor­anir og enda­lausar vanga­veltur um hvað við getum gert og hvað við erum til­búin að gera.“

Aðgerðir inn­an­lands er svarið sem Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir leggur til. Þeim var aflétt með öllu 26. júní – fyrir aðeins 26 dögum. „Málið er að við kunnum þetta,“ sagði Víðir. „Við vitum alveg hvað það er sem þarf að gera og lítið annað í stöð­unni en að takast á við þetta, halda áfram þess­ari bar­áttu sem engan enda virð­ist ætla að taka.“

Baráttan mun standa í ein­hverja mán­uði til við­bótar, sagði sótt­varna­læknir, og aðgerðir verða við lýði þar með í ein­hverri mynd. Far­aldr­inum ljúki ekki fyrr en honum ljúki alls staðar í heim­inum. „Það er eins og menn á Íslandi telji að það sé nóg að hefta útbreiðslu hér og þá sé COVID lokið. Það er bara ekki þannig.“

Við þurfum „virki­lega að horfast í augu við“ að þetta verði ekki nokk­urra vikna bar­átta og að þeim tíma loknum getum við tekið upp okkar fyrra líf. „Að mínu mati er óskyn­sam­legt að hugsa þannig.“

[adspot]

Sú bylgja sem nú er hafin, fjórða bylgjan í far­aldr­inum, er greini­lega í veld­is­vexti að mati Þórólfs. Í gær greindust 78 með veiruna inn­an­lands og hafa sjaldan verið jafn margir á einum sól­ar­hring frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Öll smitin sem greinst hafa að und­an­förnu eru af völdum delta-afbrigðis veirunnar og við rað­grein­ingar hafa fund­ist nokkuð mörg und­ir­af­brigði hennar. Sum má rekja beint til landamær­anna en önnur hafa komið „ógreind þangað yfir og svo dreifst áfram um landið.“

Delta, delta og aftur delta

Þórólfur sagði vitað að delta-afbrigðið er meira smit­andi en önnur og einnig valdi það senni­lega alvar­legri veik­indum.

Hann sagði ljóst að bólu­efnin væru ekki að veita eins góða vörn gegn afbrigð­inu og áður hafði verið talið þó að virkni efn­anna sé enn talin um 90 pró­sent hvað alvar­leg veik­indi varði.

Benti hann í þessu sam­hengi á nýjar upp­lýs­ingar frá Ísrael um að vernd bólu­setn­inga gegn delta sé minni en talið hafi verið. Enn sem komið er liggja engar nákvæmar tölur um þetta fyrir enda stöndum við mitt í þró­un­inni, sagði Þórólfur, „í raun­tíma“.

Þórólfur kann­aði einnig stöð­una hjá kol­legum sínum ann­ars staðar í Evrópu. Þeir segja delta-afbrigðið í mik­illi sókn, bæði bólu­settir og óbólu­settir séu að sýkj­ast og farið sé að gæta fjölg­unar í sjúkra­húsinn­lögnum vegna þessa.

Þetta þýðir, að mati hans, að þrátt fyrir útbreidda bólu­setn­ingu geti smit breiðst hratt og mikið út hér á landi og þar með gætum við farið að sjá aukn­ingu í inn­lögnum á sjúkra­hús. Áhættan sé hins vegar ekki þekkt í augna­blik­inu en mun skýr­ast á næstu vikum.

Víðtæk útbreiðsla frá landamærunum

„Hvert er þá matið á far­aldr­inum núna?“ spurði Þórólfur og hélt áfram. „Það er ljóst að eftir að slakað var á landa­mær­unum hafa margir komið hingað með veiruna sem hefur hrundið af stað víð­tækri útbreiðslu inn­an­lands.“ Þetta hefur gerst þrátt fyrir að ferða­menn hafi verið með vott­orð um bólu­setn­ingu eða fyrri sýk­ingu. „Þrátt fyrir góða þátt­töku hér í bólu­setn­ingum hefur veiran náð að dreifa sér ótrú­lega hratt inn­an­lands sem bendir til að virkni bólu­efn­anna sé minni gegn delta-afbrigð­inu.“

Við vitum ekki hvort að sýk­ingar hjá bólu­settum muni leiða til alvar­legra veik­inda, sagði hann og vissu­lega væri hægt að full­yrða að bólu­efnin væru að vernda marga. Óvissan sé hins vegar mest hjá eldra fólki og þeim sem eru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma.

[adspot]

„Hvað er þá til ráða á þess­ari stundu?“ spurði Þórólfur svo og minnti á að ein aðgerðin, að krefja bólu­setta og fólk með vott­orð um fyrri sýk­ingu, um að fram­vísa nei­kvæðu PCR-prófi við kom­una til lands­ins tæki gildi næsta þriðju­dag. Einnig væru ferða­menn með tengsla­net inn­an­lands hvattir til að fara í skimun eftir kom­una til lands­ins og halda sig til hlés þar til nið­ur­staða er ljós. Þetta muni von­andi lág­marka frek­ari dreif­ingu veirunnar yfir landa­mærin en ef ekki, gæti þurft að hefja skimanir á þeim í ein­hverri mynd á ný.

„En þetta mun ekki eitt og sér stöðva dreif­ing­una sem er í gangi inn­an­lands,“ sagði Þórólfur. Hann hefur því skrifað minn­is­blað til heil­brigð­is­ráð­herra þar sem hann leggur til að teknar verði upp tak­mark­anir inn­an­lands á ný, svo „hefta megi veiruna og koma í veg fyrir alvar­legar afleið­ingar hennar“.

Vitum öll hvað þarf að gera

Líkt og fyrri dag­inn vildi sótt­varna­læknir ekki tíunda hvað í minn­is­blað­inu stendur á fund­inum, stjórn­völd eigi enn eftir að taka afstöðu til þeirra, „en við vitum hins vegar öll hvaða sam­fé­lags­legu aðgerðir hafa virkað til þessa og eðli­legt að nýta sér þá reynslu“.

Við erum að fara inn í óvissu, sagði hann einnig og bætti við að skyn­sam­legt væri að grípa hart inn í núna og reyna að koma í veg fyrir fleiri smit heldur en að bíða „eftir að við fáum ein­hvern far­aldur inn­lagna. Því þá er of seint í rass­inn gripið.“

Þórólfur sagði að ítrekað hefði verið að ný afbrigði veirunnar gætu breytt far­aldr­inum. Að þau gætu haft áhrif á virkni bólu­efn­anna. „Við eru að upp­lifa þetta núna en megum ekki láta það slá okkur út af lag­inu.“ Þróun far­ald­urs­ins nú væri „okkur öllum von­brigði“ en við yrðum að muna að sam­staðan hafi verið okkar styrkur hingað til og „mun verða það áfram“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár