Sturgeon til í að ræða frestun þjóðaratkvæðagreiðslu

Fyrsti ráð­herra Skotlands seg­ist vera til­búin til að fresta fyr­ir­hug­aðri þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði um sann­gjarnan tíma.

Nicola Sturgeon er til í að ræða málamiðlanir, en þó innan skynsamlegra marka. Hún segir ósanngjarnt af breskum stjórnvöldum að ætla að gata björgunarbát Skota, eftir að Brexit sökkti skipinu.
Nicola Sturgeon er til í að ræða mála­miðl­anir, en þó innan skyn­sam­legra marka. Hún segir ósann­gjarnt af breskum stjórn­völdum að ætla að gata björg­un­ar­bát Skota, eftir að Brexit sökkti skip­inu. Mynd: EPA

Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, seg­ist reiðu­búin til að fresta þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands gagn­vart Bretum um sann­gjarnan tíma. Ekki megi fresta atkvæða­greiðsl­unni lengi og alls ekki þar til eftir útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Kjarninn greindi frá því á mið­viku­dag að búist væri við því að Ther­esa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, neiti beiðni Skota um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði að sinni. Hún er sögð vilja bíða með slíka þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu fram yfir að nið­ur­staða útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu er ljós.

Sturgeon hafði áður lagt til að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um sjálf­stæði yrði haldin á ný árið 2018, áður en Bretland getur gengið frá samn­ingum við Evr­ópu­sam­bandið um útgöngu, það er Brexit. Í gær greindu breskir fjöl­miðlar frá því að hún gæti ímyndað sér að fresta atkvæða­greiðsl­unni um annað ár.

Skotar kusu síð­ast um sjálf­stæði í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu árið 2014 og höfn­uðu þá sjálf­stæði með naumum meiri­hluta. Í kjöl­far þess að Bretar völdu að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sum­arið 2015 hefur umræðan um sjálf­stæði Skotlands náð flugi á ný, enda greiddu Skotar atkvæði gegn útgöngu úr ESB.

[links]Sturgeon sagði í sjón­varps­við­tali að Theresa May hafi ekki verið sam­mála henni um þann tímara­mma sem Skotar hafi lagt til. „Það er þá hennar að segja hvaða tímara­mmi sé hent­ugur og ég er reiðu­búin að eiga það sam­tal um sann­gjarnan ramma,“ sagði Sturgeon.

Hún sagði einnig að það væri ekki boð­legt að fresta þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu fram yfir næstu þing­kosn­ingar í Skotlandi árið 2021. „Ég tel það ekki vera skyn­sam­legt því þá verður búið að slíta Skotland út úr ESB.“

„Ef hún er að tala um vorið 2019, nokkru síðar en ég hafði lagt til, þá gæti verið ráð­rúm til að ræða það. En fyrir mér er það ósann­gjarnt í grund­vall­ar­at­riðum af bresku rík­is­stjórn­inni, haf­andi sökkt bátnum með Brexit, að reyna að gera gat á björg­un­ar­bát Skotlands líka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár