Skotar kjósi um sjálfstæði á ný á næstu tveimur árum

Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, vill halda aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands vet­ur­inn 2018-2019. Hún mun leita sam­þykkis skoska þings­ins í næstu viku.

Nicola Sturgeon.
Nicola Sturgeon. Mynd: EPA

Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, ætlar að leita sam­þykkis skoska þings­ins fyrir því að boða til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands. Hún sér fyrir sér að slík atkvæða­greiðsla færi fram ein­hvern tím­ann á tíma­bil­inu frá hausti 2018 til vors 2019, að minnsta kosti áður en útgöngu­samn­ingur úr Evr­ópu­sam­band­inu liggur fyrir.

[links]Þetta kom fram í ræðu Sturgeon í morgun. Hún segir að ákvörð­unin um að boða til ann­arrar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sé á for­ræði Skota, en engu að síður þarf að ræða og fá sam­þykki breskra stjórn­valda fyrir slíkri atkvæða­greiðslu eigi hún að vera bind­andi.

Tækni­lega séð gæti Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, sagt nei við slíkri bón frá Skotum, en póli­tískt séð yrði mjög erfitt fyrir stjórn­völd að neita því alfarið. May hefur ekki gefið til kynna hvað hún myndi gera, en tals­maður hennar sagði í dag að það væri vitað að meiri­hluti fólks í Skotlandi vildi ekki aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Aðeins rúm tvö ár séu frá því að þeir kusu gegn sjálf­stæði og önnur atkvæða­greiðsla yrði sundr­andi og myndi valda efna­hags­legum skaða á versta mögu­lega tíma.

Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um sjálf­stæði Skotlands fór fram í sept­em­ber árið 2014, þá kusu 55% Skota gegn sjálf­stæði en 45% með sjálf­stæði. Ein stærsta ástæða þess að sjálf­stæði Skotlands varð ekki ofan á þá var að Skotum var sagt að þeir yrðu að sækja aftur um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu sem sjálf­stætt ríki. Skotar eru að meiri­hluta til Evr­ópu­sinn­aðir og meiri­hluti Skota greiddi atkvæði gegn útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Nicola Sturgeon sagði í dag að almenn­ingur í Skotlandi yrði að fá val á milli harðrar útgöngu úr ESB, svo­kallað hard Brexit, og sjálf­stæðis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár