Skotland í mál við bresku stjórnina

Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, hefur stað­fest að skosk stjórn­völd ætla að reyna að taka þátt í dóms­mál­inu gegn breskum stjórn­völdum um Brexit, útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu. 

Dómstóll í London komst að þeirri nið­ur­stöðu í síð­ustu viku að stjórn­völd gætu ekki hafið útgöngu­ferlið, sem kennt er við 50. grein Lissabon-sátt­mála ESB, án þess að bera það undir þingið fyrst. Þessu hafa bresk stjórn­völd áfrýjað, og var greint frá því í dag að málið verði rekið fyrir Hæsta­rétti í byrjun des­em­ber.

Sturgeon stað­festi í dag að form­lega yrði óskað eftir því að skosk stjórn­völd yrðu aðili að mál­inu. Skotar kusu gegn útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu, og þing­menn Skoska þjóð­ar­flokks­ins, sem vann stór­sigur í síð­ustu þing­kosn­ingum, hafa sagt að þeir myndu lík­lega ekki kjósa með útgöngu úr ESB ef til atkvæða­greiðslu kemur í þing­inu. „Virkjun 50. grein­ar­innar mun svipta skosku þjóð­ina og skosk fyr­ir­tæki rétt­indum og frelsi sem þau búa nú við. Það getur ein­fald­lega ekki stað­ist að bresk stjórn­völd geti tekið þessi rétt­indi af fólki þegar for­sæt­is­ráð­herr­ann segir það, án þess að það sé rætt í þing­inu,“ sagði Sturgeon meðal ann­ars í dag. Það ætti að þurfa að setja lög um málið á þing­inu, og að auki eigi að fá sam­þykki skoska þjóð­þings­ins fyrir virkjun 50. grein­ar­innar.

„Ég við­ur­kenni og virði rétt­indi Englands og Wales til þess að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið. En það er ekki hægt að ýta til hliðar lýð­ræð­is­legum vilja skosku þjóð­ar­innar og skoska þjóð­þings­ins eins og hann skipti ekki máli.“ Úrslit þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar um útgöngu hafi í raun verið miklu skýr­ari og meira afger­andi í Skotlandi en ann­ars staðar, 24 pró­sentu­stiga munur var á þeim sem vilja vera áfram innan ESB og þeirra sem vilja yfir­gefa sam­bandið. „Svo að for­sæt­is­ráð­herr­ann verður að standa við lof­orð sitt um að koma fram við Skotland sem jafn­ingja innan Bret­lands og hlusta á vilja skosku þjóð­ar­innar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár