Kaup- og söluréttur Landsbankans í Húsasmiðjunni metinn á 225 milljónir króna

Félag í eigu Lands­bank­ans hefur eign­fært kaup- og sölu­rétt sinn í félagi um rekstur Húsa­smiðj­unnar á 225 millj­ónir króna. Félagið, Holta­vegur 10 ehf., seldi rekstur Húsa­smiðj­unnar til Bygma Gruppen A/S fyrir 760 millj­ónir króna í byrjun árs 2012. Samhliða söl­unni hélt félagið eftir 30 pró­sent kaup­rétti í félagi Bygma um rekstur Húsa­smiðj­unnar. Sá réttur, ásamt sölu­rétt á hlutnum, er nú met­inn á 225 millj­ónir króna í bókum félags­ins. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Holta­vegs 10 ehf. fyrir árið 2014 sem skilað var inn til árs­reikn­ing­ar­skráar í vik­unni.

Um tólf milljarða króna afskriftir


Lands­bank­inn tók yfir Húsa­smiðj­una í októ­ber 2009. Þá var allt hlutafé afskrifað og bank­inn breytti 10,2 millj­örðum króna af skuldum í nýtt hlutafé. Um var að ræða 70 pró­sent af öllum vaxta­ber­andi skuldum Húsa­smiðj­unnar við lána­stofn­anir. Fyr­ir­tæk­inu var síðan komið fyrir innan Vestia ehf. sem var síðar selt til Fram­taks­sjóðs Íslands (FSÍ). Í jan­úar 2012 breytti Lands­bank­inn einum millj­arði króna til við­bótar af skuldum Húsa­smiðj­unnar í nýtt hlutafé og við það eign­að­ist Hömlur ehf., félag í eigu bank­ans, eign­ar­hlut í fyr­ir­tæk­inu. Það keypti síðar hlut FSÍ og átti þá Holtaveg 10 að öllu leyti.

Rekstur fyr­ir­tæk­is­ins var loks seldur til danska bygg­ing­ar­vöruris­ans Bygma í upp­hafi árs 2012 fyrir 760 millj­ónir króna auk þess sem Bygma tók yfir 2,5 millj­arða króna skuldir. Samhliða var nafni gömlu Húsa­smiðj­unnar breytt í Holtaveg 10 ehf. og tölu­vert af draugum for­tíðar skildir eftir þar inni. Á meðal þess var mögu­leg end­ur­á­lagn­ing skatta og mögu­lega sam­keppn­is­sekt. Þessir draugar hafa kostað félagið skild­ing­inn. Á und­an­förnum árum hefur Holta­vegur 10 greitt rúman millj­arð króna í end­ur­á­lagn­ingu skatta og vegna sam­keppn­is­sektar. Því hafa allar eignir félags­ins, að með­töldu sölu­and­virð­inu vegna rekst­urs Húsa­smiðj­unnar, farið í að greiða skatta og sektir.

[caption id="attachment_25236" align="alignnone" width="656"] Lands­bank­inn er end­an­legur eig­andi Holta­vegs 10 ehf. Bankinn á því kaup- og sölu­rétt á 30 pros­ent hlut í Húsa­smiðj­unni.[/caption]

Söluandvirðið allt í skatta og sektir


Fyrsta stóra áfallið reið yfir í lok árs 2011 þegar emb­ætti rík­is­skatt­stjóra til­kynnti að Húsa­smiðjan skuld­aði rúm­lega 700 millj­ónir króna í skatta vegna svo­kall­aðs öfugs sam­runa sem fyrrum eig­endur hennar höfðu ráð­ist í. Í slíkum sam­runa felst að eign­ar­halds­fé­lag er sett á fót og það kaupir rekstr­ar­fé­lag með lánsfé. Eign­ar­halds­fé­lagið er síðan látið renna inn í rekstr­ar­fé­lagið og þar með er skuld­unum sem stofnað var til við kaupin komið inn í rekst­ur­inn sem þær voru not­aðar til að kaupa.

Landsbankinn er endanlegur eigandi Holtavegs 10 ehf. Bankinn á því kaup- og sölurétt á 30 prosent hlut í Húsasmiðjunni.
Lands­bank­inn er end­an­legur eig­andi Holta­vegs 10 ehf. Bankinn á því kaup- og sölu­rétt á 30 pros­ent hlut í Húsa­smiðj­unni.

Til­kynn­ing um end­ur­á­lagn­ingu skatt­anna kom þegar langt var liðið á sölu­ferli Húsa­smiðj­unnar, en Bygma var þá við að kaupa hana. Vegna skatta­vand­kvæð­anna var rekstur Húsa­smiðj­unnar settur yfir á nýja kenni­tölu, 2,5 millj­arðar króna af skuldum hennar líka og nýja kennitalan seld til Bygma fyrir 760 millj­ónir króna.

Eftir í gömlu Húsa­smiðj­unni voru skildar eignir sem voru metnar á 240 millj­ónir króna og kaup­verðið, 760 millj­ónir króna. Þetta var meðal ann­ars skilið eftir til að borga skatta­skuld­ina og mögu­lega sekt vegna sam­keppn­is­brota. 2011.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið til­kynnti síðan í fyrra­sumar að gamla Húsa­smiðjan hefði náð sátt við sam­keppn­is­yf­ir­völd sem fól í sér að hún við­ur­kenndi að hafa brotið sam­keppn­is­lög með umfangs­miklu ólög­mætu sam­ráði við Byko. Þar sem gamla Húsa­smiðjan við­ur­kenndi brot sitt og var til­búin að gera sátt taldi Sam­keppn­is­eft­ir­litið rétt­læt­an­legt að leggja á félagið lægri stjórn­valds­sekt en ella. Það var því ákveðið að hún yrði 325 millj­ónir króna. Málið er afrakstur marg­hátt­aðra aðgerða, meðal ann­ars hús­leita og sím­hler­anna, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið réðst í vorið 2011 vegna gruns um sam­keppn­is­brot hjá Húsa­smiðj­unni, Byko og Úlfinum.

Þessi sekt var greidd á árinu 2014, sam­kvæmt árs­reikn­ingi Holta­vegs 10 ehf.

Vildu endurheimta hluta afskrifta ef betur gengi


Samhliða söl­unni á rekstri Húsa­smiðj­unnar til Bygma var gert sam­komu­lag um að Holtasel 10, félag í eigu rík­is­bank­ans Lands­banka, ætti kaup­rétt á 30 pró­sent hlut í félag­inu sem stofnað var utan um rekst­ur­inn. Hægt er að nýta rétt­inn á tíma­bil­inu 1. maí 2015 til 30. apríl 2020.

Til­gang­ur­inn var sá að gefa Lands­bank­anum tæki­færi til að end­ur­heimta hluta af þeim millj­arða­skuldum gömlu Húsa­smiðj­unnar sem hann hafði afskrifað ef rekst­ur­inn á nýju kenni­töl­unni gengi betur. Útfærslan er bæði með kaup­rétti og kaup­skyldu og því kemur ekki til að Lands­bank­inn, eða félög í hans eigu, eigi þennan tæpa þriðj­ungs­hlut til lang­frama.

Rekstur Húsa­smiðj­unnar hefur ekki verið mjög ábata­samur þessi fyrstu ár eftir að Bygma keypti hann. Árið 2012 tap­aði fyr­ir­tækið 179 millj­ónum króna og árið 2013 175 millj­ónum króna. Fyr­ir­tækið hefur ekki skilað inn árs­reikn­ingi vegna árs­ins 2014.

Í nýbirtum árs­reikn­ingi Holta­vegs 10 er þessi kaup- og sölu­réttur eign­færður í fyrsta sinn og sagður 225 milljón króna virði. Verð­mið­inn miðar við 18 pró­sent ávöxt­un­ar­kröfu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár