Þórólfur: Þarf að svara því hvað sé ásættanlegt að margir veikist og látist

Þórólfur Guðnason segir að þegar verið sé að vega og meta hvort ásætt­an­legt sé að hleypa veirunni á meiri skrið inn­an­lands þurfi líka að svara því hvað sé ásætt­an­legt að margir sýk­ist og lát­ist í fram­hald­inu. Þetta þurfi að horfast í augu við.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Bára Huld Beck

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að þegar verið sé að vega og meta hvort ásætt­an­legt sé að „hleypa veirunni meira á skrið hér inn­an­lands“ þurfi fyrst að skil­greina nokkra hluti og svara erf­iðum spurn­ingum; hver sé ásætt­an­legur fjöldi sýk­inga, hvað sé ásætt­an­legt að margir legg­ist inn á sjúkra­hús og hvað sé ásætt­an­legt að margir láti lífið eftir kór­ónu­veirusmit.

Þetta sagði Þórólfur, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag, spurn­ingar sem fáir treysti sér til að svara, en þessar spurn­ingar þurfi að horfast í augu við og svara þegar verið sé að ræða til­slak­anir sem gætu haft það í för með sér að veiran yrði útbreidd­ari í sam­fé­lag­inu.

Hann sagð­ist undr­ast það að heyra það í umræð­unni að stefna sótt­varna­yf­ir­valda hér­lendis sé ekki skýr, því hann hafi hafi talið að hún væri nokkuð skýr. Sótt­varna­læknir sagði að stefnan væri sú að fletja kúr­f­una niður eins mikið og hægt væri með inn­an­lands­að­gerðum og aðgerðum á landa­mærum og sömu­leiðis hefðu sótt­varna­yf­ir­völd hefðu sagt að þau vildu reyna að koma í veg fyrir að veiran bær­ist hingað til lands með aðgerðum á landa­mærum sem væru eins áhrifa­ríkar og lítið íþyngj­andi og hægt er.

„Það verður auð­vitað erfitt að finna þann balans,“ sagði Þórólfur og bætti því við að það væri ómögu­legt að koma alfarið í veg fyrir að hætta væri á að smit bær­ist inn í landið, en hægt væri að reyna að tak­marka það eins og hægt er. „Við erum að vinna með líkur,“ sagði Þórólfur.

Í gær­dag greind­ist ekki eitt ein­asta smit hér á landi og fjöldi virkra smita inn­an­lands hefur sigið jafnt og þétt und­an­farnar vikur. „Ég held að það sé hollt að muna það núna þegar umræðan er að aukast mjög mikið og gagn­rýni á það sem verið er að gera að sú staða sem við erum í núna er fyrst og fremst vegna þeirra aðgerða sem við höfum verið að grípa til,“ sagði Þórólfur, sem fór yfir nokkra punkta sem hann vildi koma á fram­færi í ljósi umræð­unnar um COVID-19 hér á landi að und­an­förnu.

Enginn ábyrgur aðili gefið út að faraldurinn sé vægari nú

Töluvert hefur verið rætt um það að far­ald­ur­inn sé ef til vill væg­ari en hann var fyrr á árinu. Þórólfur segir að hægt sé að full­yrða að það séu ekki merki um það, hvorki hér­lendis né erlendis. „Það eru engir ábyrgir aðilar sem hafa gefið það út,“ sagði Þórólfur.

Lækkandi dán­ar­hlut­fall sýktra eftir því sem liðið hefur á árið hefur verið nokkuð til umræðu en Þórólfur segir að ýmsir þættir geti skýrt það, meðal ann­ars það að ungt fólk sé stærri hluti smit­aðra og að þeir sem eru við­kvæmir fyrir haldi sig frekar til hlés.

Sótt­varna­læknir segir fulla ástæðu til að taka COVID-19 alvar­lega, þar sem að und­an­förnu hafi lang­tíma­á­hrif sjúk­dóms­ins á fólk verið að koma frekar í ljós. Áhrifin kunni að vera meiri á fólk til langs tíma en áður var haldið.

„Alvar­leiki þessa far­ald­urs er ekki ein­ungis mældur í fjölda dauðs­falla,“ sagði Þórólfur og bætti við að dán­ar­hlut­fallið væri þó lægra en talið hefði verið í vetur, þegar sum­staðar var ráð­gert að það væri jafn­vel 2-3 pró­sent. Á Íslandi, þar sem um 2.000 manns hafa smit­ast hafa tíu lát­ist eftir COVID-19 smit og sam­svarar það 0,5 pró­sent dán­ar­hlut­falli.

Á upp­lýs­inga­fund­inum sagði Þórólfur ítrekað að það mætti þakka sótt­varna­að­gerðum fyrir þá góðu stöðu sem við erum í núna. Staðan í öðrum löndum sé sú að þar sé far­ald­ur­inn í vexti og þar sé verið að grípa til hert­ari aðgerða, bæði inn­an­lands víða og á landa­mærum.

„Við eigum að hrósa happi yfir þeirri stöðu sem er á far­aldr­inum hér á landi í dag og halda áfram að nýta okkur þá reynslu og þekk­ingu sem okkur hefur áskotn­ast í bar­átt­unni hingað til,“ sagði Þórólfur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár