Stundin nálgast

Mikill titr­ingur er í banda­rískum stjórn­málum vegna rann­sóknar FBI, CIA og Banda­ríkja­þings á tengslum Rússa við fram­boð Donalds Trumps. Öll spjót verða á James Comey þegar hann verður yfir­heyrður í beinni útsend­ingu síðar í vik­unni.

James Comey var forstjóri bandarísku alríkislögreglunnar þar til hann var látinn taka pokann sinn nýverið.
James Comey var for­stjóri banda­rísku alrík­is­lög­regl­unnar þar til hann var lát­inn taka pok­ann sinn nýverið. Mynd: EPA

Gríð­ar­legur titr­ingur er nú á sviði stjórn­mál­anna í Banda­ríkj­unum, en á fimmtu­dag­inn mun James Comey, hinn brottrekni fyrr­ver­andi stjórn­andi alrík­is­lög­regl­unnar FBI, koma fyrir þing­nefnd Banda­ríkja­þings og gefa skýrslu. Allt mun þetta fara fram fyrir opnum tjöldum. Spurn­ingar og svör í beinni útsend­ingu. Nú er sú stund að nálg­ast, og sífellt að koma fram ný púsl í mynd­ina af þess­ari atburða­rás sem er til rann­sóknar.

Brottrekinn

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti rak Comey, eftir að hafa fengið minn­is­blað í hendur frá dóms­mála­ráðu­neyti Jeff Sessions, þar sem mælt var með því að hann yrði lát­inn fara. Robert Mueller, fyrr­ver­andi yfir­maður FBI, tók við rann­sókn­inni í kjöl­farið.

Washington Post greindi síðar frá því, að í minn­is­blaði Comey, af fundi hans með Trump, 14. febr­úar á þessu ári, kæmi fram að Trump hafi beðið hann um að hætta rann­sókn á fyrr­ver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjaf­anum Micheal Flynn, en hann hætti störfum eftir 20 daga í emb­ætti, 13. febr­úar.

Donald Trump hefur ítrekað neitað því að Rússar hafi verið að skipta sér af kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum, og hefur sagt rann­sókn FBI, leyni­þjón­ust­unnar CIA og rann­sókn­ar­nefnda Banda­ríkja­þings, „norna­veiðar“.

Afhjúpun breytir öllu

Eftir afhjúpun frétta­vefs­ins The Intercept, frá því í gær, blasir nú við stað­fest­ing á því að rúss­nesk yfir­völd, eða nánar til­tekið leyni­þjón­usta rúss­neska hers­ins, var að gera tölvu­árásir á kosn­inga­kerfið í Banda­ríkj­unum, og reyna þannig að hafa áhrif á fram­kvæmd kosn­ing­anna.

Fjallað var um gögnin á vefnum í gær, en 25 ára gömul kona, Rea­lity Leigh Winner að nafni, sam­kvæmt frétta­vef CNN, hefur verið ákærð vegna lek­ans til The Intercept.

Hún starf­aði sem verk­taki hjá Pluri­bus International Cor­poration í Georg­íu­ríki, en ákæran er gefin út af sak­sókn­ara dóms­mála­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna. Í frétt CNN er hún sögð hafa við­ur­kennt að hafa lekið gögn­unum við yfir­heyrslu en hún var hand­tekin 3. júní síð­ast­lið­inn.

Mörg atriði til rannsóknar

En hvað er það sem FBI, CIA og þing­nefndir Banda­ríkja­þings eru að rann­saka?

Í stórum dráttum snýst rann­sóknin, eins og henni hefur verið lýst í fjöl­miðlum hér í Banda­ríkj­unum, um að kafa ofan í gögn og sann­anir sem nú liggja fyrir um tengsl milli Rússa og fram­boðs Donalds Trumps. Grunur leikur á því að Rússar hafi beitt sér, einkum með tölvu­árásum - líkt og nú hefur verið sagt frá varð­andi leyni­þjón­ustu rúss­neska hers­ins - til að hafa áhrif á fram­gang kosn­ing­anna.

Því hefur verið heitið, að öllum steinum verði velt við í rann­sókn­inni til að draga sann­leik­ann fram. Hér að neðan eru nokkrir helstu þætt­irnir sem eru til rann­sóknar, og lík­legt er að verði ræddir í opinni yfir­heyrslu Comeys.

Sessions dóms­mála­ráð­herra hefur ákveðið að draga sig alveg frá því ef til þess kemur að dóms­mála­ráðu­neyti hans fari að rann­saka tengsl fram­boðs Don­alds Trumps við Rússa, en fyrir liggur þó að Comey var rek­inn eftir rök­stuðn­ing frá ráðu­neyti hans. Rann­sóknin á Rúss­lands­tengsl­unum var ekki nefnd sem ástæða, í rök­stuðn­ingi fyrir brott­rekstr­inum, en greini­legt er þó að rann­sóknin er að valda miklum titr­ingi í Hvíta hús­inu.

Nú þegar hefur Mich­ael Flynn, sem gegndi stöðu þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafa, sagt af sér vegna tengsla sinna við Rússa, eins og áður segir.

Hann greindi Micheal Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, ekki frá því að hann hefði rætt um við­skipta­þving­anir á hendur Rússum við sendi­herra Rúss­lands í Banda­ríkj­un­um, Sergey I. Kis­lyak. Sá maður hefur komið sér upp víð­tækum tengslum við helsta bak­land Trumps, og sat meðal ann­ars fundi með Sergey Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra, í opin­berri heim­sókn hans í Hvíta húsið í síð­asta mán­uði.

Hinn 28. febr­úar í fyrra var Sessions fyrsti þing­maður Repúblik­ana til að lýsa form­lega yfir stuðn­ingi við fram­boð Don­alds Trumps.

Hinn 3. mars greindi Trump frá því að Sessions yrði aðal­ráð­gjafi hans í örygg­is- og varn­ar­málum í fram­boð­in­u.

Orðrómur um að tölvu­árásir hafi átt sér stað á Demókra­ta­flokk­inn og helstu stjórn­endur fram­boðs Hill­ary Clinton var stað­festur með yfir­lýs­ingu 14. júní frá Demókröt­u­m.

Hinn 18. júlí hitti Sessions sendi­herra Rússa, fyrr­nefndan Sergey I. Kis­lyak, á fundi, eftir aðal­fund Repúblik­ana.

Fjórum dögum síð­ar, 22. júlí, eru tölvu­póstar kosn­inga­stjóra Demókrata og Hill­ary Clint­on, ásamt fleirum, birtir á vef Wiki­leaks.

Hinn 25. júlí lýsir banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI því yfir að rann­sókn sé hafin á tölvu­árás­un­um. Sama dag segir Don­ald Trump í beinni útsend­ingu, í ræðu. „Rúss­ar, ef þið eruð að hlusta, ég vona að þið getið birt eitt­hvað af þessum 30 þús­und tölvu­póstum sem Hill­ary eydd­i”.

Hinn 8. sept­em­ber hitti Sessions sendi­herr­ann aft­ur, að þessu sinni á skrif­stofu sinni í Was­hington D.C. Mán­uði síðar lýsir Barack Obama, þáver­andi Banda­ríkja­for­seti, því yfir að Rússar séu að skipta sér af lýð­ræð­is­legum fram­gangi kosn­inga í Banda­ríkj­un­um. Don­ald Trump er síðan kos­inn Banda­ríkja­for­seti, 8. nóv­em­ber.

Hinn 29. des­em­ber bregst Obama við tölvu­árásum Rússa með refsi­að­gerðum og vísar rúss­neskum erind­rekum úr land­i.

Á svip­uðum tíma ræddi Mich­ael Flynn við Kis­lyak í síma, og þar voru meðal ann­ars við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum til umfjöll­un­ar. Sím­talið var hler­að.

Hinn 10. jan­úar á þessu ári var Sessions í þing­inu í Banda­ríkj­un­um, og svar­aði spurn­ingum eið­svar­inn. Hann sagð­ist aldrei hafa verið í sam­skiptum við Rússa. Það var sum sé lygi.

Sessions er skip­aður dóms­mála­ráð­herra 8. febr­ú­ar.

Flynn segir af sér 13. febr­úar.

Was­hington Post greinir frá því 1. mars að Sessions hefði átt fund­i með sendi­herra Rússa, þvert á það sem hann hafði áður haldið fram. Don­ald Trump lýsir strax yfir stuðn­ingi við Sessions og segir um norna­veiðar að ræða. Hann hafi ekk­ert rangt gert.

Hinn 28. maí síð­ast­lið­inn birt­ust fréttir af því að Jared Kushner, tengda­sonur Trumps og einn hans nán­asti ráð­gjafi, hafi hitt Kislyak á fundum skömmu eftir að Trump var kos­inn for­seti og óskað eftir því að leyni­leg sam­skipta­leið yrði búin til milli Hvíta húss­ins og Kreml. Kushner hefur ekki neitað frétt­unum, og Trump hefur heldur ekki gert það beint, en sagt að rann­sóknin á Rússa­tengsl­unum byggi ekki á neinu.

Kushner átti síðan einnig fundi með rúss­neskum banka­manni sem er meðal nán­ustu ráð­gjafa Pútíns, en FBI hefur þegar fram­kvæmt hús­leitir í höf­uð­stöðvum Repúblik­ana og lagt þar hendur á gögn sem mögu­lega geta sýnt fjár­hags­leg tengsl við Rússa.

Skýrslu­gjöf Comeys á eftir að verða sögu­legur við­burður í banda­rískum stjórn­málum, óháð því hvernig fram­vinda mála verður eftir hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár