Klara farin í leyfi frá störfum sínum sem framkvæmdastjóri

Fram­kvæmda­stjóri KSÍ er far­inn í ótíma­bundið leyfi frá störfum. Birkir Sveins­son sviðs­stjóri KSÍ mun taka við skyldum fram­kvæmda­stjóra á meðan á því stendur.

Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ.
Klara Bjartmarz, fram­kvæmda­stjóri KSÍ. Mynd: Skjáskot/RÚV

Klara Bjartmarz, fram­kvæmda­stjóri Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ), er farin í leyfi frá störfum, að því er fram kemur í frétt Vísis í dag.

Guðni Bergsson, fyrr­ver­andi for­maður KSÍ, sagði starfi sínu lausu á sunnu­dag­inn og gerði stjórnin slikt hið sama í fyrra­dag. Klara greindi frá því í á mánu­dag að hún myndi halda áfram störfum sem fram­kvæmda­stjóri sam­bands­ins.

Hávær krafa hefur aftur á móti verið í sam­fé­lagi að Klara stigi einnig til hliðar en hún hefur starf­aði fyrir KSÍ síðan 1994.

Óákveðið hversu lengi leyfið muni standa

[links]Óskar Örn Guð­brands­son á sam­skipta­deild KSÍ vís­aði í sam­tali við Vísi á full­trúa stjórnar varð­andi nán­ari upp­lýs­ingar. Gísli Gíslason, annar tveggja vara­for­manna KSÍ, seg­ist í sam­tali við Vísi ekki ætla að gefa upp ástæðu leyfis Klöru. „En það undr­ast kannski engan í ljósi aðstæðan,“ segir Gísli. Hann segir að ekki sé búið að ákveða hversu lengi leyfið mun standa. „Við eigum eftir að ræða það við hana.“

Birkir Sveins­son, sviðs­stjóri KSÍ mun taka við skyldum Klöru á meðan hún er í leyfi, að því er fram kemur hjá Vísi.

Vinna fagfólks verði í forgangi

Stjórn KSÍ sam­þykkti á fundi sínum í fyrra­dag að boða með fjög­urra vikna fyr­ir­vara til auka­þings í sam­ræmi við 13. grein laga KSÍ. Stjórn, vara­full­trúar og lands­hluta­full­trúar ákváðu á sama tíma að segja af sér og munu skila umboði sínu í síð­asta lagi þegar til auka­þingis kemur.

Ásgeir Ásgeirs­son stjórn­ar­maður til­kynnti fyrr um kvöldið að hann segði sig frá trún­að­ar­störfum fyrir KSÍ sam­stundis. Í pistli sem hann rit­aði á Facebook sagði Ásgeir að drullan hefði dunið yfir hann án þess að hann hefði gert nokkuð af sér. „Ég get ekki boðið mér og minni fjöl­skyldu uppá þann við­bjóð sem hefur verið sagt um okkur í stjórn KSÍ.“

„Þessi nið­ur­staða er í sam­ræmi við áskor­anir Íslensks Topp­fót­bolta, óskir full­trúa félaga sem sent hafa áskorun um auka­þing og þrýst­ing frá sam­fé­lag­inu. Stjórnin hefur fundað með for­seta ÍSÍ um fram­gang máls­ins og um það hvernig best verður haldið um starf­semi KSÍ fram að auka­þingi svo starf­semin hald­ist órofin. Fundað verður með full­trúum UEFA og FIFA um stöðu máls­ins og fyr­ir­huguð stjórn­ar­skipti þannig að ekki þurfi að koma til afskipta knatt­spyrnu­sam­band­anna að starf­semi sam­bands­ins,“ sagði í til­kynn­ingu frá KSÍ. Þar kom einnig fram að vinna fag­hóps um end­ur­skoðun við­bragða við kyn­ferð­is­brotum og ofbeldi innan hreyf­ing­ar­innar og hvernig staðið var og verður að stuðn­ingi við þolendur yrði í for­gangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár