Össur: Rót vandans liggur hjá Ragnheiði Elínu, sem hefur engu komið í verk

„Stað­reyndin er því miður sú að rót vand­ans liggur í henni sjálfri. Á tveimur og hálfu ári hefur Ragn­heiður Elín engu komið í verk til að tryggja tekju­streymi til að byggja upp inn­viði á ferða­manna­stöðum. Hún hefur hins vegar átt í lang­vinnum úti­stöðum við ferða­þjón­ust­una um leiðir til þess,“ skrifar Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, um Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra.

Össur gagn­rýnir Ragn­heiði Elínu harð­lega í færslu á Facebook-síðu sinni og segir meðal ann­ars að sem betur fer séu ráð­herrar eins og hún eins­dæmi.

Ragn­heiður Elín segir í Frétta­blað­inu í dag að það sé merki um hegð­unar- og upp­eld­is­vanda­mál frekar en annað að ferða­menn skuli ganga örna sinna úti í nátt­úr­unni. Hún segir jafn­framt að upp­bygg­ing inn­viða ferða­þjón­ust­unnar sé ekki aðeins spurn­ing um fjár­magn, heldur margt fleira.

Össur segir um frétt­irnar frá því í morgun að í tvö og hálft ár í emb­ætti hafi „nær ekk­ert gerst“ í upp­bygg­ingu á ferða­manna­stöðum. Á meðan fjölgi ferða­mönnum stöðugt og inn­viðir séu víða að springa. „Eina „afrek“ hennar er hinn stein­dauði nátt­úrupassi sem allir, jafnt hennar flokkur sem ferða­þjón­ustan, skutu á bólakaf enda alvit­laus­asta hug­mynd sem fram hefur komið í ára­tugi.“



„Hegð­un­ar­vanda­mál“ Ragn­heiðar Elín­ar­Þrá­inn Ber­tels­son segir að ráð­herrar af kalí­ber Ragn­heiðar Elínar séu sjald­gæfir. ...

Posted by Össur Skarp­héð­ins­son on Tuesday, July 21, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár