Segir salernisvandræði ferðamanna „hegðunarvandamál“

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, segir það ekki aðeins skort á fjár­magni sem valdi vand­ræðum við upp­bygg­ingu ferða­manna. Þar komi fleiri þættir til, til dæmis skipu­lags­mál, skortur á und­ir­bún­ingi og skortur á verk­tökum.

Ragn­heiður Elín er í við­tali í Frétta­blað­inu í dag. Hún segir vinnu við að fækka und­an­þágum frá virð­is­auka­skatti í ferða­þjón­ustu vera hafna. Hvala­skoð­un­ar­ferðir hafi verið teknar inn í kerfið, bað­staðir verði settir inn og þá séu eftir rútur og leigu­bílar. „Varðandi þrepin þá tek ég undir það sem komið hefur fram en við þurfum að fara kannski gæti­legar í þeim efnum þar sem við erum í sam­keppni við útlönd og það þarf að passa að við séum sam­keppn­is­hæf. Fram­tíð­ar­stefnan er að vera bara með eitt virð­is­auka­skatt­þrep sem gildir almennt fyrir alla og án und­an­þága. Þannig kerfi vil ég sjá,“ segir hún.

Umræðan sem hún vísar til er það að Vigdís Hauks­dóttir og Jón Gunn­ars­son þing­menn hafa lýst því yfir að þau telji rétt að hækka virð­is­auka­skatt á ferða­þjón­ustu. Þessu hefur ferða­þjón­ustan mót­mælt, og Ragn­heiður Elín segir að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra vinni með Samtökum ferða­þjón­ust­unnar í þessum málum.

Ragn­heiður Elín segir að um tíu pró­sent af þeirri fjár­hæð sem ákveðið var að veita í upp­bygg­ingu ferða­manna­staða hafi farið í að byggja upp sal­ern­is­að­stöðu víða um land. Hún segir fréttir um sal­ern­is­mál ferða­manna hafa vakið athygli því þær hafi komið frá stöðum þar sem sal­ern­is­mál séu alveg í lagi. „Þetta er þá bara eitt­hvert hegð­un­ar­vanda­mál sem ég bara veit ekki hvernig á að leysa og það eru ferða­þjón­ustu­að­ilar sem þurfa að taka á þessu máli með sínum gestum. ÞEtta er bara meira eins og upp­eld­is­mál,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár