Fimm eftirminnileg skipsströnd

Meðal stærstu frétta árs­ins er strand flutn­inga­skips­ins Ever Given í Súes-skurði. Engan sak­aði í strand­inu og ekki varð vart við olíu­leka en það sama var ekki upp á ten­ingnum í þeim skips­ströndum sem hér hafa verið tekin saman.

Töluverð olía lak úr skipinu MV Wakashio en það strandaði skammt frá Máritíus í fyrra.
Töluverð olía lak úr skip­inu MV Wakashio en það strand­aði skammt frá Máritíus í fyrra. Mynd: EPA

Heims­byggðin hefur haft augun á skip­inu Ever Given upp á síðkastið og strandi þess í Súes-skurð­inum. Hið tæp­lega 400 metra langa skip sat þar fast í um sex sól­ar­hringa. Efna­hags­leg áhrif strands­ins eru gríð­ar­leg enda fara um tólf pró­sent af vöru­flutn­ingum heims­ins um Súes-skurð­inn. [links]

Ekki nóg með að töf hafi orðið á send­ingum heldur bein­línis skemmd­ist vara sem sat föst í gámum í skipum beggja vegna skurðs­ins og dýr á leið til slátr­unar þurftu að húka við slæman kost í skipum sem biðu eftir því að kom­ast leiðar sinnar.

Ef horft er á jákvæðu hlið­arnar þá sak­aði engan í strand­inu sem er ekki sjálf­gefið þegar um skips­strand er að ræða. Kjarninn tók saman fimm eft­ir­minni­leg skips­strönd í kjöl­far strands Ever Given. Mannfall varð í sumum þeirra og í öðrum voru áhrifin á líf­ríkið á strand­stað gríð­ar­leg vegna olíu­leka.

1. Exxon Valdez

Þann 24. mars árið 1989 sigldi olíu­skipið Exxon Valdez í strand í Prince William sundi í Alaska. Strandið er ef til vill jafn þekkt og raun ber vitni vegna þess hve mikil olía lak úr skip­inu með til­heyr­andi áhrifum á líf­ríkið í grennd­inni. Talið er að um 250 þús­und sjó­fuglar hafi drep­ist vegna olíu­lek­ans, tæp­lega þrjú þús­und otrar, um 300 selir, 250 skalla­ernir, 22 háhyrn­ingar og millj­arðar laxa­hrogna. Þúsundir tóku þátt í hreins­un­ar­starfi á strand­stað.

Þrátt fyrir að strand Exxon Valdez sé mörgum minn­is­stætt og það alræmt vegna allrar olí­unnar sem lak úr skip­inu, þá hafa umfangs­meiri olíu­lekar orðið á síð­ustu ára­tugum. Mestu olíu­lek­arnir eiga það þó sam­eig­in­legt að hafa orðið vegna árekstra skipa en ekki vegna strands. Olíu­lek­inn vegna strands Exxon Valdez er sá mesti sem orðið hefur í Banda­ríkj­unum ef frá er tal­inn olíu­lek­inn sem varð frá Deepwater Horizon olíu­bor­p­all­inum í Mexík­óflóa árið 2010.

2. Víkartindur

„Nítján skip­brots­menn af þýska flutn­inga­skip­inu víkart­indi björg­uð­ust giftu­sam­lega um borð í þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar, TF-LÍF, eftir að skipið strand­aði skammt frá Þjórs­ár­ósi um klukkan 20:30 í gær­kvöldi.“ Á þessum orðum hófst for­síðu­frétt Morg­un­blaðs­ins fimmtu­dag­inn 6. mars 1997, morg­un­inn eftir strand Víkart­inds en Eimskip hafði skipið þá á leigu.

Eftir að vél skips­ins hafði bilað, dag­inn sem skipið strand­aði, tók það að reka að landi. Varð­skipið Ægir mætti á vett­vang en skip­stjóri Víkart­inds hafn­aði hins vegar aðstoð Land­helg­iss­gæsl­unnar. Að lokum gaf skip­stjór­inn eftir og Ægir hóf til­raunir við að koma taug í skipið. Aðstæður voru væg­ast sagt ekki góðar og í seinni til­raun Ægis til að koma taug í Víkart­ind fékk varð­skipið á sig brot­sjó með þeim afleið­ingum að einn báts­manna Ægis hafn­aði í sjónum og lést.

Líkt og áður segir tókst að bjarga öllum úr áhöfn Víkart­inds með hjálp þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar. „Það er hæpið að björg­un­ar­sveitir í landi hefðu komið mönn­unum í land án þyrl­unnar, fyrr en skipið rak að landi. Þyrlan sann­aði sig með glæsi­brag,“ sagði Jón Her­manns­son, svæð­is­stjóri björg­un­ar­að­gerða, í áður­nefndri frétt Morg­un­blaðs­ins. Aðstæður voru enda mjög slæmar og björg­un­ar­menn í landi sáu ekki skipið þegar skip­verjar voru hífðir um borð í þyrl­una þrátt fyrir að skipið væri aðeins um 100 til 150 metrum frá landi.

Samkvæmt rann­sókn­ar­skýrslu um strandið var „miklu meng­un­ar­slysi“ forðað með vel heppn­aðri dæl­ingu á olíu úr skip­inu en talið er að um 95 pró­sent af olíu skips­ins hafi verið dælt úr því. Þannig tókst að afstýra bráða­meng­un­ar­slysi eins og það er orðað í skýrsl­unni en mikil vinna fór auk þess í að tína rusl úr fjör­unni í nágrenni skips­ins, svo sem timbur, pappír og annað slíkt sem hafði rekið á land.

Árið 2018 sagði Frétta­blaðið frá því að það sem eftir væri af Víkart­indi hefði komið upp úr sand­inum, 21 ári eftir strand.

3. Wilson Muuga

Aðfar­arnótt 19. des­em­ber 2006 strand­aði flutn­inga­skipið Wilson Muuga við Hvalsnes á Suð­ur­nesjum. Skipið var þá á leið frá Grund­ar­tanga til Rúss­lands. Samkvæmt umfjöllun um strandið í bók­inni Ísland í ald­anna rás, 2001-2010 þá bil­aði svo­nefndur gýrókompás með þeim afleið­ingum að skipið beygði sjálf­krafa og án við­vör­unar í átt að landi þegar það var statt skammt sunnan við Sand­gerði.

Danska varð­skipið Triton sigldi í átt að strand­stað en skipið var þá næst strand­inu og óskað var eftir því að það færi á stað­inn til að kanna aðstæður. Skip­herra varð­skips­ins ákvað að setja út björg­un­ar­bát og hefja flutn­ing á áhöfn Wilson Muuga frá borði. Aðstæður til björg­un­ar­starfa voru erf­iðar, vindur var hvass og öldu­hæð eftir því. Björg­un­ar­bát­ur­inn varð vél­ar­vana og honum hvolfdi með þeim afleið­ingum að allir um borð fóru í sjó­inn, alls átta skip­verjar.

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar var þá þegar á leið á strand­stað og hóf áhöfn hennar leit að skip­verj­unum átta. Sjö þeirra fund­ust en einn báts­maður af varð­skip­inu hafði lát­ist eftir að flot­galli hans rifn­aði og fyllt­ist af sjó. Félagar hans höfðu haldið honum á floti um tíma en örmögn­uð­ust og misstu hann frá sér. Eftir að skip­verjum varð­skips­ins hafði verið bjargað hófust flutn­ingar á áhöfn Wilson Muuga í land með þyrl­unni og varð henni allri bjargað.

Skipið mátti dúsa á strand­stað í um fjóra mán­uði uns það var loks dregið í burtu. Olíu hafði þá verið dælt úr því en í tönkum skips­ins voru um 120 tonn af svartolíu og 25 tonn dísilolíu.

4. Costa Concordia

Örfáum klukku­stundum eftir að Costa Concordia lagði úr höfn í viku­langa sigl­ingu um Mið­jarð­ar­hafið kom babb í bát­inn. Skip­stjór­inn hafði ákveðið að sigla nær eyj­unni Giglio undan ströndum Toskana hér­aðs til þess að gleðja far­þega sína, enda eyjan fal­leg. Skip­stjór­inn sigldi of nærri eyj­unni og stærð­ar­innar gat kom á skrokk skips­ins eftir að það sigldi utan í grjót á grynn­ingum undan ströndum eyj­ar­innar.

Vatn tók að flæða inn í skipið og vél­ar­rúm þess fór á kaf. Við það sló einnig raf­magni út um borð. Vegna vinda tók stjórn­laust skipið að reka aftur í átt til eyj­ar­innar Giglio. Skipið tók svo niður skammt frá landi og lagð­ist á hlið­ina. Flestir far­þeg­ana komust í björg­un­ar­báta en rým­ing skips­ins var erfið sökum þess hve mikið skipið hall­aði í sjónum. Í slys­inu fór­ust alls 32. Alls voru 3.206 far­þegar um borð þegar það strand­aði en 1.023 í áhöfn.

Skipinu var komið á flot og það dregið til Genóa þar sem það var rifið í brota­járn.

Francesco Schettino, skip­stjóri Costa Concordia, var að lokum dæmdur til 16 ára fang­els­is­vistar vegna slyss­ins. Skip­stjór­inn var harð­lega gagn­rýndur fyrir það að hafa komið sér frá borði áður en búið var að koma öllum far­þegum og öðrum í áhöfn í björg­un­ar­báta. Á meðan rétt­ar­höld yfir skip­stjór­anum stóðu yfir á hann að hafa haldið því fram að hann hafi bein­línis fallið útbyrðis þegar skipið var að leggj­ast á hlið­ina, beint ofan í björg­un­ar­bát sem síðan hafi siglt með hann til lands, þvert á óskir hans sjálfs.

Skipinu, eða flaki þess, var komið á flot rúmum tveimur árum eftir að það strand­aði. Það var dregið til hafnar í Genóa sem liggur norð­ar­lega á Ítalíu, við Lígúr­íu­hafið. Þar var skipið rifið í brota­járn.

5. MV Wakashio

Það eru ekki nema rúmir átta mán­uðir síðan síð­astt varð alvar­legur olílu­eki vegna skips­strands. Í júlí í fyrra strand­aði skipið MV Wakashio skammt undan ströndum Máritíus. Um 4.000 tonn af olíu voru í tönkum skips­ins og um 1.000 tonn hið minnsta eru talin hafa farið í sjó­inn í kringum strand­stað.

Í umfjöllun BBC er olíu­lek­inn ekki sagður mik­ill í sam­an­burði við aðra olíu­leka sem orðið hafa á und­an­förnum ára­tugum en að áhrifin verði engu að síður mikil og lang­vinn. Allt í kringum strand­staðin eru mikil kór­al­rif sem eru mik­il­væg fyrir líf­ríki hafs­ins. Þá hafa sér­fræð­ingar áhyggjur af því að olían í haf­inu muni hraða kór­al­bleik­ingu.

Skipið klofn­aði í ágúst í fyrra og var fremri hluta þess sökkt. Nú stendur yfir nið­ur­rif á þeim hlluta skips­ins sem ekki var sökkt en til stendur að end­ur­vinna það sem hægt er að end­ur­vinna af skip­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár