Rektor í sóttkví vegna smits hjá starfsmanni í Aðalbyggingu Háskóla Íslands

Jón Atli Bene­dikts­son rektor og tveir aðrir starfs­menn HÍ þurfa að fara í sótt­kví eftir að starfs­maður skól­ans greind­ist með COVID-19 um helg­ina. Rektor segir að þetta sýni að þrátt fyrir að nýsmitum fari fækk­andi sé far­aldr­inum langt í frá lokið.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands Mynd: Bára Huld Beck

Jón Atli Bene­dikts­son rektor Háskóla Íslands og tveir aðrir starfs­menn sem starfa í Aðal­bygg­ingu skól­ans eru komnir í sótt­kví, en um helg­ina var stað­fest smit hjá einum starfs­manni sem þar starfar. Rektor greindi frá þessu í orð­send­ingu til stúd­enta og starfs­fólks skól­ans í dag.

„Gripið hefur verið til allra nauð­syn­legra ráð­staf­ana í sam­starfi við smitrakn­ing­arteymi almanna­varna og sótt­varna­læknis til að hindra útbreiðslu smits­ins og gæta þannig fyllsta öryggis starfs­fólks og nem­enda,“ segir Jón Atli í bréfi sínu, sem lesa má á vef Háskóla Íslands.

[adspot]

Rektor segir að þetta sýni að þrátt fyrir að nýsmitum fari til allrar ham­ingju fækk­andi inn­an­lands sé far­aldr­inum langt í frá lokið.

„Ég vil því hvetja ykkur öll, kæra sam­starfs­fólk og nem­endur, til að nota raf­ræna kosti til fund­ar­halda og fylgja reglum sótt­varn­ar­yf­ir­valda í einu og öllu. Gætum áfram fyllsta hrein­lætis og höldum að minnsta kost eins metra lág­marks­bili á milli okkar. Ef við finnum fyrir minnstu ein­kennum eigum við í öllum til­vikum að halda okkur heima. Einnig vil ég hvetja starfs­fólk til að nota fjar­fundi eins og kostur er til að lág­marka smit­hættu,“ segir Jón Atli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár