Meira en þúsund fjölskyldur beðið um hjálp

Efna­hags­þreng­ingar sem fylgt hafa heims­far­aldr­inum hafa orðið til þess að 40 pró­sent fleiri fjöl­skyldur hafa leitað eftir aðstoða Hjálp­ar­starfs kirkj­unnar síð­ustu mán­uði.

Hjálparstarf kirkjunnar einbeitir sér m.a. að aðstoð við barnafjölskyldur.
Hjálp­ar­starf kirkj­unnar ein­beitir sér m.a. að aðstoð við barna­fjöl­skyldur. Mynd: Kristina Paukshtite/Pexels

Yfir þús­und fjöl­skyldur leit­uðu aðstoðar hjá Hjálp­ar­starfi kirkj­unnar frá byrjun mars og til októ­ber­loka á þessu ári. Aukn­ingin er yfir 40 pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra er 743 fjöl­skyldur ósk­uðu eftir efn­is­legri aðstoð. Líklega er fjölg­unin sam­bæri­leg þegar kemur að jóla­að­stoð­inni sem veitt er í des­em­ber í formi inn­eigna í mat­vöru­versl­unum, jóla- og skógjöfum fyrir börn og fatn­aði.

„Það varð mikil aukn­ing á umsóknum um aðstoð í kjöl­far banka­hruns­ins en aukn­ingin nú er vissu­lega meiri en við höfum séð síð­ustu ár,“ segir Kristín Ólafs­dóttir, fræðslu­full­trúi Hjálp­ar­starfs­ins, í sam­tali við Kjarnann.

[adspot]

Í grein­ingu sér­fræð­inga­hóps ASÍ, BHM og BSRB kemur fram að vís­bend­ingar séu um að efna­hags­leg áhrif COVID-far­ald­urs­ins komi harð­ast niður á lág­launa­hópum á Íslandi. Konur eru sér­stak­lega útsettar fyrir áhrifum kóf­s­ins en einnig ungt fólk og inn­flytj­endur. Hópur segir að þegar megi sjá merki þess hér á landi að ójöfn­uður fari vax­andi vegna heims­far­ald­urs­ins.

„Við vitum auð­vitað ekki hvernig atvinnu­leysið mun þró­ast og efna­hags­á­standið almennt,“ segir Kristín um hvernig hún meti stöð­una framundan. „Það er mín til­finn­ing og rann­sóknir hafa einnig bent til þess að þeir sem eru í erf­iðri stöðu fyrir verða í enn erf­ið­ari stöðu þegar það kreppir að og hafa þess vegna enn minni tæki­færi til að spyrna sér upp aftur. Við verðum að gera ráð fyrir að þetta ástand sé ekki búið.“

Hjálp­ar­starf kirkj­unnar er í sam­starfi við önnur hjálp­ar­sam­tök víðs­vegar um landið og í sam­ráði við þau ein­beitir það sér að fjöl­skyldu­fólki, þ.e. fólki með börn á sínu fram­færi.

Spurð hvort að sama fólkið þurfi jafn­vel á aðstoð að halda í mörg ár segir Kristín að reynslan sýni að það sé fólk í sömu aðstæðum sem þurfi aðstoð ár eftir ár. „Það eru ekki alltaf sömu ein­stak­ling­arnir en það eru ákveðnar aðstæður sem valda því að fólk þarf að leita til okkar.“

Húsnæðisliðurinn að sliga fólk

Þrír félags­ráð­gjafar eru starf­andi hjá Hjálp­ar­starfi kirkj­unnar. Þeir veita fólki sem sæk­ist eftir aðstoð stuðn­ing, ráð­gjöf og leið­sögn og meta þörf hverrar fjöl­skyldu fyrir sig fyrir aðstoð. Kristín segir að sá útgjalda­liður sem helst sé að sliga fólk, nú sem áður, sé kostn­aður við hús­næði. Fólk með örorku, ein­stæðir for­eldrar, inn­flytj­endur og lág­launa­fólk séu þeir hópar sem hvað erf­ið­ast eiga með að ná endum saman. „Í fleiri ár og jafn­vel ára­tugi er það hár hús­næð­is­kostn­aður sem verður til þess að fólk lendir í miklum fjár­hags­vand­ræðum,“ segir Kristín.

Hún bendir á að það sé hlut­verk stjórn­valda að tryggja vel­ferð fólks og aðstoð Hjálp­ar­starfs kirkj­unnar sé alltaf neyð­ar­að­stoð. Starfið sé í sífelldri þróun og taki breyt­ingum eftir því hvar þörfin er mest hverju sinni.

Í sept­em­ber hófst í þriðja sinn verk­efnið Stattu með sjálfri þér sem miðar að sjálf­styrk­ingu kvenna sem allar eiga það sam­eig­in­legt að vera með örorku, hafa börn á sínu fram­færi og að hafa þurft að leita á náðir Hjálp­ar­starfs­ins í lengri tíma. Verk­efnið stendur í tvö ár og yfir fimmtán konur eru þátt­tak­endur að þessu sinni.

Árang­ur­inn af verk­efn­inu hefur verið frá­bær að sögn Krist­ínar. „Þá er ég ekki endi­lega að meina að hann sé mæl­an­legur í pen­ingum hjá hverri og einni konu heldur að þeim líður betur. Þetta miðar auð­vitað allt að því – að kon­unum líði betur og að þær verði virk­ari í sínu eigin lífi og innan sinnar fjöl­skyldu. Hafi meiri trú á sjálfri sér. Það skilar miklu til fjöl­skyld­unnar í heild. Við viljum leggja okkar af mörkum svo að fólk geti kom­ist út úr sínum erf­ið­leikum. Þó að félags­ráð­gjaf­arnir okkar séu ekki göldróttir þá geta þeir sann­ar­lega veitt góð ráð.“

Sjálf­boða­liðar eru mjög mik­il­vægir í allri starf­semi Hjálp­ar­starfs kirkj­unnar og und­an­farið hefur verið í nógu að snú­ast hjá þeim sem og félags­ráð­gjöf­unum við að und­ir­búa jóla­að­stoð­ina. Vegna sam­komu­tak­mark­ana þurfti að skipu­leggja hana með öðrum hætti en hingað til. Fata­mið­stöðin hefur til að mynda ekki verið opin vegna sótt­varna­að­gerða. En nú í des­em­ber hefur fólk getað komið í mið­stöð­ina eftir fatn­aði fyrir börnin og jafn­vel getað fengið inn­eign­ar­kort í barna­fata­versl­anir.

Í fjölda mörg ár hefur fólk sem á þarf að halda getað fengið inn­eign­ar­kort í mat­vöru­versl­unum hjá Hjálp­ar­starf­inu í des­em­ber. Það er stærsti lið­ur­inn í aðstoð sam­tak­anna fyrir jól ár hvert. Í ár er fólk nú beðið að koma og sækja inn­eign­ar­kortin sem og jóla­gjafir fyrir börnin á fyr­ir­fram ákveðnum tíma og á mis­mun­andi stöðum til að lág­marka smit­hættu.

Vantar tengslanetið

Flestir þeirra sem leita til Hjálp­ar­starfs­ins eru Íslend­ingar en fólk af erlendum upp­runa er þó í meiri­hluta þeirra sem fá notuð föt hjá sam­tök­unum. „Þetta er fólk sem er ekki með sterkt tengsla­net hér á landi. Það getur ekki leitað til frænku og frænda til að fá notuð barna­föt. Þetta er hópur sem má ekki gleym­ast, fólk sem er jafn­vel nýlega komið hingað og þekkir ekki sín rétt­indi og hvert það getur leitað eftir aðstoð þegar eitt­hvað bjátar á.“

Til að styðja við þennan hóp heldur Hjálp­ar­starfið úti sauma­verk­efni fyrir konur af erlendum upp­runa sem hafa lítið tengsla­net hér á landi. Það byrj­aði smátt í sniðum en nú eru þátt­tak­endur orðnir hátt í hund­rað. Margir vel­vilj­aðir ein­stak­lingar gáfu sauma­vélar og nokkrar versl­anir gefa efni. Konurnar koma saman og sauma og styrkja sam­tímis böndin sín á milli. Pokarnir sem þær sauma eru svo seldir hjá Hjálp­ar­starf­inu og ágoð­inn fer aftur inn í verk­efnið.

Aðstæður alls staðar versnað

Auk þessa mikla inn­an­lands­starfs er Hjálp­ar­starfið einnig í sam­vinnu­verk­efnum í Eþíópíu og Úganda. „Þar hefur far­ald­ur­inn vissu­lega haft nei­kvæðar afleið­ingar líka,“ segir Kristín. „Framundan er mikið verk til að kom­ast aftur á sama stað og við vorum fyrir far­ald­ur­inn. Aðstæður hafa versnað alls staðar.“

Spurð hvort að þessi mikla áskorun sé ekki yfir­þyrm­andi fyrir starfs­fólk og sjálf­boða­liða Hjálp­ar­starfs­ins svarar Kristín: „Við trúum því að aðferða­fræðin okkar, hjálp til sjálfs­hjálpar og sam­vinnan, virki vel. Það þýðir ekk­ert annað en að halda áfram. Og við finnum fyrir miklum stuðn­ingi og vel­vild, bæði almenn­ings og fyr­ir­tækja. Það er alveg greini­legt að Íslend­ingum finnst hlut­verk Hjálp­ar­starfs­ins vera brýnt núna. Og það er aukin þörf, við finnum það.“

Heima­síða Hjálp­ar­starfs kirkj­unnar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár