Laun æðstu stjórnenda Íslandsbanka og Lyfju verða felld undir kjararáð

Þeir sem stýra fyr­ir­tækjum í meiri­hluta­eigu íslenska rík­is­ins þurfa að lúta því við­miði að grunn­laun þeirra verði að vera lægri en laun for­sæt­is­ráð­herra. Ríkið eign­að­ist fyrir skemmstu Íslands­banka og Lyfju.

Launa­kjör bæði Birnu Ein­ars­dóttur, banka­stjóra Íslands­banka, og Sig­ur­björns Gunn­ars­sonar, fram­kvæmda­stjóra Lyfju, munu falla undir kjara­ráð í nán­ustu fram­tíð, sam­kvæmt upp­lýs­ingum innan úr stjórn­sýsl­unni. Þrotabú Glitnir var eig­andi beggja fyr­ir­tækj­anna en hefur nú afhent rík­inu þau. Vilji er til að selja þau bæði en þangað til þurfa æðstu stjórn­endur fyr­ir­tækj­anna að lúta sömu reglum og aðrir stjórn­endur fyr­ir­tækja sem eru í meiri­hluta­eigu rík­is­ins. Fyrir Birnu þýðir það að laun hennar munu lækka mikið.

Þegar launa­kjör Birnu og Sig­ur­björn fær­ast undir kjara­ráð mun ráðið taka ákvörðun um hver laun þeirra eiga að verða, og miða þá við að hvor­ugt verði með hærri grunn­laun en for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Þær breyt­ingar sem verða á kjörum þeirra munu hins vegar ekki taka gildi fyrr en að loknum þeim upp­sagn­ar­fresti sem við­kom­andi stjórn­endur hafa samið um við stjórnir þeirra fyr­ir­tækja sem þeir stýra. Því gæti verið nokkur bið á því að launa­kjör for­stjóra Íslands­banka og fram­kvæmda­stjóra Lyfju muni verða ákvörðuð af kjara­ráði. Ef rík­inu tekst að selja bæði fyr­ir­tækin hratt gæti vel verið að það muni aldrei verða.

Enginn má vera hærri en forsætisráðherra

Lögum um kjara­ráð var breytt í ágúst 2009. Þá ákvað rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, í kjöl­far hruns­ins og þeirra aðhalds­að­gerða sem rík­is­sjóður þurfti að grípa til, að kjara­ráð myndi einnig „ákveða laun og starfs­kjör fram­kvæmda­stjóra hluta­fé­laga og ann­ars konar félaga, einka­rétt­ar­eðlis, sem eru að meiri hluta í eigu rík­is­ins og félaga sem eru að meiri hluta í eigu félaga sem undir þessa máls­grein falla.“

Samkvæmt lög­unum á kjara­ráð að gæta þess að „ákveða laun og starfs­kjör fram­kvæmda­stjóra hluta­fé­laga og ann­ars konar félaga, einka­rétt­ar­eðlis, sem eru að meiri hluta í eigu rík­is­ins og félaga sem eru að meiri hluta í eigu félaga sem undir þessa máls­grein falla.“

Laun for­sæt­is­ráð­herra eru 1.391 þús­und krónur á mán­uði í kjöl­far úrskurðar kjara­ráðs í nóv­em­ber í fyrra.

Steinþór lengi barist fyrir hærri launum

Einn þeirra stjórn­enda sem þurft hefur að sætta sig við laun sem eru í grunn­inn lægri en laun for­sæt­is­ráð­herra er Steinþór Pálsson, banka­stjóri rík­is­bank­ans Lands­banka. Bæði Steinþór og banka­ráð Lands­bank­ans hafa ítrekað óskað eftir því að laun hans verði hækkuð sökum þess að Lands­bank­inn sé svo stór banki og ábyrgð banka­stjór­ans svo mikil að annað sé ekki til­hlýði­legt. Bankaráð hefur meðal ann­ars sent bréf til kjara­ráðs þar sem stóð að Steinþór hefði náð „fram­úr­skar­andi árangri í stjórnun og rekstri bank­ans.“ Hann vinni á bil­inu 100-120 klukku­stundir á mán­uði til við­bótar við hefð­bundna dag­vinnu. Auk þess hefur banka­ráðið kraf­ist þess að kjara­ráð ákveði sér­staka leið­rétt­ingu á launum Stein­þórs frá og með 1. júní 2010. Lands­bank­inn hefur lagt til hliðar fé til að greiða Stein­þóri fyrir slíka aft­ur­virka hækkun ef ske kynni að til hennar myndi koma. Af því hefur ekki orðið.

Kjararáð hefur hins vegar hækkað laun Stein­þórs mikið á und­an­förnum árum, og sam­tals um 36 pró­sent frá miðju ári 2014. Hann fær nú tölu­vert hærri heild­ar­laun en for­sæt­is­ráð­herra þó að grunn­laun hans séu enn lægri. Grunn­laun Stein­þórs eru 1.056.291 króna á mán­uði. Þegar yfir­vinna og álag hefur verið talið með eru laun hans hins vegar um 1.950 þús­und krónur á mán­uði. Auk þess hefur hann fengið hluta­bréfatengdar greiðslur til við­bótar þeim launum sem ákvörðuð hafa verið af kjara­ráði.

Höskuldur mun stinga af í launum

Íslands­banki hefur ekki birt árs­reikn­ing sinn fyrir árið 2015 og því liggja ekki fyrir opin­berar upp­lýs­ingar um laun Birnu Ein­ars­dóttur í fyrra. Á árinu 2014 var hún hins vegar með 3,2 millj­ónir króna á mán­uði auk þess sem hún fékk 4,8 millj­ónir króna í bón­us­greiðslur. Því er ljóst að laun hennar munu skerð­ast umtals­vert þegar ákvörðun um laun Birnu fær­ist frá stjórn Íslands­banka til Kjara­ráðs. Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, er með mun hærri laun en báðir kollegar hans í hinum tveimur stóru bönk­unum. Hann var með 4,3 millj­ónir króna á mán­uði á árinu 2014. Auk þess hefur verið tekið upp kaupauka­kerfi í Arion banka sem skilar Höskuldi umtals­verðri við­bót. Ríkið á ein­ungis 13 pró­sent hlut í Arion banka og það sem upp á vantar verður ekki afhent rík­inu sem hluti af stöð­ug­leika­fram­lagi þrota­bús Kaup­þings. Hösk­uldur þarf því ekki að ótt­ast umtals­verða launa­lækkun á næst­unni.

Sú áhuga­verða staða er nú uppi að Lyfja, stærsta apó­tek­a­keðja lands­ins sem rekur 30 apó­tek um land allt, er komin að fullu í eigu íslenska rík­is­ins eftir að eign­ar­hlutur þrota­bús Glitnis í fyr­ir­tæk­inu var afhentur sem hluti af stöð­ug­leika­fram­lagi þess. Það þýðir að Sig­ur­björn Gunn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Lyfju, mun einnig þurfa að lúta ákvörðun kjara­ráðs þegar kemur að launum hans. Í árs­reikn­ingi Lyfju fyrir árið 2014 kemur fram að tveir fram­kvæmda­stjórar í sam­stæð­unni og stjórn móð­ur­fé­lags hennar hafi sam­tals verið 53 millj­ónir króna á því ári. Ekki er til­greint sér­stak­lega hvað Sig­ur­björn er með í laun.

Ríkissjóður hefur verið úrskurðaður hæfur

Það liggur ekki alveg fyrir hvenær launa­kjör ofan­greindra stjórn­enda fær­ast undir kjara­ráð. Í fjár­lögum árs­ins 2016 var sam­þykkt að Íslands­banki myndi verða fram­seldur til Banka­sýslu rík­is­ins. Það hefur enn ekki gerst þótt að hlutur þrota­bús Glitnis í bank­anum hafi verið afhentur stjórn­völdum. Sá hlutur er sem stendur vistaður í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu á meðan að Sam­keppn­is­eft­ir­litið tekur afstöðu til til­kynn­ingar sem því hefur borist vegna færslu bank­ans til Banka­sýsl­unnar.

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur hins vegar þegar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Rík­is­sjóður Íslands, og Banka­sýsla rík­is­ins, séu hæf til að eiga virkan eign­ar­hlut í Íslands­banka og fjár­mála­fyr­ir­tækjum í hans eigu. Sú ákvörðun var birt síð­ast­lið­inn fimmtu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár