Laun bankastjóra Landsbankans hafa hækkað um 36 prósent

Mán­að­ar­laun Stein­þórs Páls­sonar, banka­stjóra Lands­bank­ans, hafa hækkað um 36 pró­sent frá því um mitt ár 2014. Með nýjum sér­úr­skurði kjara­ráðs í byrjun des­em­ber voru laun hans hækkuð um 20 pró­sent. Morg­un­blaðið greindi frá því í morgun að laun Stein­þórs hefðu hækkað um 41 pró­sent með nýj­ustu ákvörðun kjara­ráðs fyrr í þessum mán­uði. Það reynd­ist ekki rétt sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef kjara­ráðs. Laun Stein­þórs eftir hækk­un­ina eru 1.950 þús­und krónur á mán­uði.

Fé lagt til hliðar til að leiðrétta laun bankastjóra

Lands­bank­inn er að nán­ast öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins og þess vegna ákvarðar kjara­ráð laun Stein­þórs en ekki hinna banka­stjór­anna. Þetta er í þriðja sinn sem laun banka­stjór­ans hafa verið hækkuð frá banka­hruni.

Bankaráð og stjórn­endur Lands­bank­ans hafa verið ósátt með þetta fyr­ir­komu­lag og telja að þau kjör sem bank­inn geti boðið séu ekki sam­keppn­is­hæg við kjör stjórn­enda í stærri fyr­ir­tækjum á fjár­mála­mark­aði. Banka­ráðið sendi meðal ann­ars erindi til Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) þar sem það kvart­aði yfir gild­andi fyr­ir­komu­lagi og taldi það geta brotið í bága við stjórn­ar­skrá og samn­ing­inn um Evrópska efna­hags­svæð­is­ins. ESA ákvað hins vegar ekki að að haf­ast neitt í mál­inu.

Stjórn Lands­bank­ans ákváð fyrir nokkrum árum að leggja til hliðar fé vegna leið­rétt­ingu launa Stein­þórs. Í árs­skýrslu bank­ans vegna árs­ins 2012 voru 47 millj­ónir króna færðar sem var­úð­ar­færsla vegna „hugs­an­legra leið­rétt­inga eða aft­ur­virkra breyt­inga á launum og starfs­kjörum banka­stjóra á árunum 2011 og 2012“. Ekkert hefur hins vegar verið lagt til hliðar vegna þeirrar leið­rétt­ingar frá árinu 2013.

Sjö fram­kvæmda­stjórar Lands­bank­ans, sem heyra ekki undir lög um kjara­ráð, voru með hærri laun en bank­an­stjór­inn í fyrra. Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri Arion banka var með 4,3 millj­ónir króna á mán­uði árið 2014 og Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, með um þrjár millj­ónir króna á mán­uði. Bæði Arion banki og Íslands­banki hafa auk þess tekið upp kaupauka­kerfi sem juku tekjur banka­stjóra þeirra.

Steinþór kominn í efsta prósentið

Laun stjórn­enda í fjár­mála­kerf­inu skera sig úr þegar þau eru borin saman við laun flestra ann­arra starfs­hópa. Hagstofa Íslands greindi frá því fyrr í des­em­ber að helm­ingur Íslend­inga þén­aði minna en 400 þús­und krónur á mán­uði í fyrra en eitt pró­sent lands­manna var með meira en 1,8 milljón króna á mán­uði. Steinþór er sam­kvæmt þeim við­miðum kom­inn í hóp þeirra eitt pró­sent lands­manna sem hafa hæstu launa­tekj­urnar.

Heild­ar­tekjur lands­manna voru að með­al­tali 421 þús­und krónur á árinu 2014 og hækk­uðu um 6,6 pró­sent frá árinu áður.

Fréttin hefur verið upp­færð vegna upp­lýs­inga frá Lands­bank­anum um að upp­haf­leg frétt Morg­un­blaðs­ins, sem vísað var til, hafi ekki verið nákvæm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár