Þriðji stærsti flokkurinn í Danmörku vill ekki í ríkisstjórn

Kristian Thulesen Dahl for­maður Dansk Fol­ke­parti, Danska Þjóð­ar­flokks­ins er í dönskum fjöl­miðlum stundum kall­aður þriðji mað­ur­inn. Nafn­giftin á þó ekk­ert skylt við heims­fræga kvik­mynd Orson Welles heldur er nafnið dregið af því að Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn er þriðji stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins. Samkvæmt nýj­ustu spám fær flokk­ur­inn 33 þing­menn í þing­kosn­ing­unum 18. júní næst­kom­andi, fékk 22 full­trúa í kosn­ing­unum 2011. Gangi þessar spár eftir er flokk­ur­inn sann­kall­aður hástökkvari í dönskum stjórn­málum, en hann sæk­ist ekki eftir aðild að rík­is­stjórn.

Stofnendurnir komu úr Framfaraflokki Glistrups


Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn varð til haustið 1995. Stofn­end­urnir voru fjórir fyrr­ver­andi félagar úr Fram­fara­flokki Mogens Glistr­ups. Í Fram­fara­flokknum hafði allt logað í ill­deilum, eins og reyndar oft áður, sem lauk með því að vara­for­mað­ur­inn Pia Kjærs­gaard sagði skilið við flokk­inn ásamt Kristian Thulesen Dahl og tveimur öðrum þing­mönnum flokks­ins. Pia Kjærs­gaard fór með for­mennsku í Fram­fara­flokknum á meðan stofn­and­inn Mogens Glistrup afplán­aði fang­els­is­dóm vegna skattsvika en hana greindi á við for­mann­inn um fjöl­mörg mál. Brott­hvarf fjór­menn­ing­anna mark­aði upp­hafið að enda­lokum Fram­fara­flokks­ins.

Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn (DF) bauð fyrst fram til þings árið 1998 og fékk þá 13 þing­menn af þeim 179 sem sæti eiga á Fol­ket­inget. Pia Kjærs­gaard var fyrsti for­maður flokks­ins og gegndi því starfi til hausts­ins 2012. Í kosn­ing­unum 2001 fékk flokk­ur­inn 12 pró­sent atkvæða og 22 þing­menn kjörna. Var þar með orð­inn þriðji stærsti flokkur lands­ins. Þrátt fyrir þessa vel­gengni taldi flokks­for­ystan sig þó engan veg­inn til­búna til rík­is­stjórn­ar­þátt­töku en gerð­ist hins­vegar stuðn­ings­flokkur minni­hluta­stjórnar Venstre (sem er hægri miðju­flokkur) og Íhalds­flokks­ins Konservative, undir for­ystu Anders Fogh Rasmuss­sen.

[caption id="attachment_30757" align="align­right" width="800"] Pia Kjærs­gaard stillir sér upp ásamt eig­in­manni sínum í útgáfu­hófi. Mynd: EPA[/caption]

Pia Kjærsgaard stillir sér upp ásamt eiginmanni sínum í útgáfuhófi. Mynd: EPA
Pia Kjærs­gaard stillir sér upp ásamt eig­in­manni sínum í útgáfu­hófi. Mynd: EPA

Þótt DF styddi rík­is­stjórn­ina sýndi flokks­for­ystan þó klærnar þegar svo bar undir. Árið 2006 bar stjórn­ar­and­staðan upp van­traust­s­til­lögu á Lars Barfoed, sem þá var ráð­herra neyt­enda­mála. Van­traustið tengd­ist kjöt­hneyksl­inu svo­kall­aða og sner­ist um dag­stimpla á kjöti og slöku mat­væla­eft­ir­liti. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn studdi ekki van­traustið en eftir að skýrsla rík­is­end­ur­skoð­unar vegna máls­ins leit dags­ins ljós skömmu síðar, dró flokk­ur­inn stuðn­ing sinn við ráð­herr­ann til baka og hann neydd­ist til að segja af sér.

Stjórn Venstre og Íhalds­flokks­ins, hélt velli í kosn­ing­unum 2005 og 2007 og sat til árs­ins 2011, allan tím­ann með stuðn­ingi Danska Þjóð­ar­flokks­ins, sem fékk 25 þing­menn í kosn­ing­unum 2007 en missti þrjá í sept­em­ber­kosn­ing­unum 2011. Stjórn Venstre og Íhalds­flokks­ins féll í þeim kosn­ingum og við tók stjórn undir for­ystu Helle Thorning-Schmidt for­manns Sós­í­alde­mókrata.

Nýr formaður árið 2012


Pia Kjærs­gaard sagði af sér for­mennsku í Danska Þjóð­ar­flokknum árið 2012 og Kristian Thulesen Dahl tók við. Hann er 45 ára og með háskóla­próf í við­skipta­fræði og lögum, varð þing­maður Fram­fara­flokks­ins árið 1994 en stofn­aði ári síðar Danska Þjóð­ar­flokk­inn ásamt Piu Kjærs­gaard og fleirum.

Kristian Thulesen Dahl nýtur mik­ils álits og þykir koma vel fyrir í fjöl­miðlum. Fylgi flokks­ins tók stökk upp á við eftir að hann sett­ist í for­manns­stól­inn og er spáð 33 þing­mönnum í kom­andi kosn­ingum. Mesta fylgi frá upp­hafi.

Hvers konar flokkur er Danski Þjóðarflokkurinn?


Þótt Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn hafi verið stuðn­ings­flokkur rík­is­stjórnar Venstre og Íhalds­flokks­ins frá 2001 til 2011 er hvorki hægt að draga hann í vinstri eða hægri dilk í dönskum stjórn­málum. Flokk­ur­inn er fylgj­andi ströngum reglum um inn­flytj­endur, lætur sig mál­efni og vel­ferð aldr­aðra og þeirra sem standa höllum fæti miklu varða, vill herta refsi­lög­gjöf og er gagn­rýn­inn á Evr­ópu­sam­bands­sam­starfið sem flokk­ur­inn styður þó.

Sumt í stefnu flokks­ins fellur vel að stefnu Sós­í­alde­mókrata enda segir Kristian Thulesen Dahl að flokkur sinn sé á sumum sviðum lengra til vinstri en Sós­í­alde­mókratar. Ýmis stefnu­mál flokks­ins eru hins­vegar lík­ari þeim sem Venstre hafa á sinni stefnu­skrá. Kristian Thulesen Dahl hefur að und­an­förnu lagt áherslu á að flokkur sinn sé hreint ekki neinn hægri­flokkur og hefur lýst vilja til að starfa með Sós­í­alde­mókröt­umí fram­tíð­inni, án þess þó að útskýra það frekar.

[caption id="attachment_30759" align="align­right" width="727"] Helle Thorning Schmidt, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur og for­maður Sós­í­alde­mókrata, háir nú harða kosn­inga­bar­áttu til að halda völdum í land­inu. Mynd: EPA[/caption]

Við erum ekki tilbúin í ríkisstjórn segir formaðurinn


Á þessu ári verða liðin 20 ár frá stofnun Danska Þjóð­ar­flokks­ins. Þótt kannski sé það ekki eins­dæmi er sjald­gæft að jafn stór flokkur sem hefur auk þess haft úrslita­á­hrif á stjórn­ar­myndun oftar en einu sinni, sæk­ist ekki eftir rík­is­stjórn­ar­setu. Hvað veldur er spurt.

Helle Thorning Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur og formaður Sósíaldemókrata, háir nú harða kosningabaráttu til að halda völdum í landinu. Mynd: EPA
Helle Thorning Schmidt, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur og for­maður Sós­í­alde­mókrata, háir nú harða kosn­inga­bar­áttu til að halda völdum í land­inu. Mynd: EPA

Svar flokks­for­yst­unnar hefur alla tíð verið að flokk­ur­inn sé ein­fald­lega ekki til­bú­inn og hafi auk þess meiri áhrif með sterkri stöðu utan stjórnar en innan. En getur svona stór flokkur enda­laust skotið sér undan þeirri ábyrgð sem fylgir setu í rík­is­stjórn og er ekki hætt við að kjós­endur snúi á end­anum baki við flokki sem ekki hefur metnað til að stýra lands­mál­unum, nema þá úr aft­ur­sæt­inu? Kristian Thulesen Dahl segir að kjós­endur flokks­ins viti vel að hann reyni ekki að skjóta sér undan ábyrgð og hafi aldrei gert.

Hvenær verður Danski Þjóðarflokkurinn tilbúinn?


Þessa spurn­ingu lagði blaða­maður Weekendavisen fyrir for­mann­inn Kristian Thulesen Dahl fyrir nokkrum dögum. Svar for­manns­ins var á þá leið að sá dagur nálg­að­ist. Svo bætti hann við að fyrir nokkrum árum hefði hann sagt að á því yrði all löng bið. En eng­inn fengi stöðvað tím­ans rás og ef flokk­ur­inn yrði jafn stór eftir kosn­ing­arnar og kann­anir sýna nú yrði flokks­for­ystan vita­skuld að hugsa sinn gang.

For­mað­ur­inn hefur þó ætíð verið mjög gæt­inn í orðum þegar talið hefur borist að hugs­an­legri stjórn­ar­þátt­töku og litlu svarað. Það er hins­vegar talið til marks um að afstaða flokks­for­yst­unnar sé að breyt­ast að Pia Kjærs­gaard fyrr­ver­andi for­maður, sem enn er þar í innsta hring, hefur í tvígang und­an­farna daga sagt í blaða­við­tölum, að „það væri nú gaman að verða menn­ing­ar­mála­ráð­herra.“ Þetta hafa margir frétta­menn túlkað sem stefnu­breyt­ingu og að kannski sé þess skammt að bíða að Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn eign­ist sína fyrstu ráð­herra. Hvort þetta gengur eftir verður ekki svarað fyrr en að loknum kosn­ingum sem nú nálg­ast óðfluga

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár