Ríkasta eina prósentið þénar þorra fjármagnstekna á Íslandi

Ein­stak­lingar á Íslandi þén­uðu 95,3 millj­arða króna í fjár­magnstekjur í fyrra. Þar af þén­aði rík­asta eitt pró­sent lands­manna tæpa 42 millj­arða króna, eða 44 pró­sent þeirra.

Mynd: Pexels.com
Mynd: Pexels.com

Tekju­hæsta eitt pró­sent lands­manna þén­aði sam­tals tæpa 42 millj­arða króna í fjár­magnstekjur á árinu 2015. Alls eru um að ræða 1.922 fram­telj­endur, 629 sam­skatt­aða og 1.293 ein­hleypa. Þessi hópur þén­aði alls 44 pró­sent af öllum fjár­magnstekjum sem íslenskir skatt­greið­endur þén­uðu í fyrra. Það þýðir að 99 pró­sent þjóð­ar­innar skipti með sér 56 pró­sent fjár­magnstekna í fyrra. Þetta kemur fram í stað­tölum skatta vegna árs­ins 2015, sem birtar voru á vef Rík­is­skatt­stjóra fyrr í vik­unni.

Heild­ar­fjár­magnstekjur ein­stak­linga, sam­kvæmt stað­töl­unum, voru 95,3 millj­arðar króna. Fjár­magnstekjur eru tekjur sem ein­stak­lingar hafa af fjár­magns­eign­um sín­um. Þ.e. ekki laun­um. Þær tekjur geta verið ýmis kon­ar. Til dæmis tekjur af vöxtum af inn­láns­reikn­ingum eða skulda­bréfa­eign, tekjur af útleigu hús­næð­is, arð­greiðsl­ur, hækkun á virði hluta­bréfa eða hagn­aður af sölu fast­eigna eða verð­bréfa.

Ef tekj­urnar eru útleystar, þannig að þær standi eig­anda þeirra frjálsar til ráð­stöf­un­ar, ber að greiða af þeim 20 pró­sent fjár­magnstekju­skatt sem rennur óskiptur til rík­is­ins. Ljóst er að ein­ung­is ­lít­ill hluti af fjár­magnstekjum var útleystur í fyrra. Skattur á fjár­magnstekjur var 38,8 millj­arðar króna í fyrra og jókst úr 30,6 millj­örðum króna árið 2014. Alls greiddu íslensk heim­ili, ein­stak­lingar og sam­skatt­aðir, 16,7 millj­arða króna. Til við­bótar greiddu fyr­ir­tæki, sjóðir og rík­is­sjóður rúm­lega 20 millj­arða króna í fjár­magnstekju­skatt.

Fjármagnstekjur hrundu í Hruninu

Fjár­magnstekjur lands­manna hrundu eftir banka­hrun­ið. Á ár­unum 2007, þegar þær náðu hámarki, námu þær 244,9 millj­örðum króna. Þar af runnu 147,3 millj­arðar króna til tekju­hæsta pró­sents lands­manna, eða rúm 60 ­pró­sent. Ljóst er að þorri þeirrar upp­hæðar var vegna gríð­ar­legrar hækk­unar á virði hluta­bréfa á íslenska mark­aðn­um, en sú bóla náði hámarki sum­arið 2007. Í kjöl­farið seytl­aði loftið hins vegar hratt út úr henni og við fall íslensku ­bank­anna haustið 2008 hvarf um 93 pró­sent af mark­aðsvirði hluta­bréfa.

Á árunum 2010 til 2012 voru fjár­magnstekjur mun lægri, eða á bil­inu 59,2 til 66,4 millj­arðar króna. Á þeim árum runnu um 35 pró­sent fjár­magnstekna til rík­asta eins pró­sents lands­manna. Árið 2013 juk­ust þær ­tölu­vert og voru 78,5 millj­arðar króna. Þar af runnu 31,6 millj­arðar króna til­ efsta eins pró­sents rík­ustu lands­manna.

Árið 2014 tóku fjár­magnstekjur svo aftur kipp og fóru í 90,5 millj­arða króna. Hlut­deild rík­asta pró­sents lands­manna í þess­ari eigna­aukn­ingu hækk­aði einnig umtals­vert, fór úr 40 pró­sentum í um 47 pró­sent.

Heild­ar­fjár­magnstekj­urnar juk­ust enn á árinu 2015, og voru 95,3 millj­arðar króna. Tæplega 44 pró­sent þeirra tekna fóru til rík­asta pró­sent lands­manna.

Þeir lands­menn sem telj­ast til þess eins pró­sents sem er með­ hæstu tekj­urnar fá langstærstan hluta af tekjum sínum vegna arð­semi eigna ­sinna. Heild­ar­tekjur þeirra voru 88 millj­arðar króna í fyrra. Þar af komu 42 millj­arðar króna til vegna fjár­magnstekna.

Ríkustu taka til sín mest af nýjum auð

Kjarninn greindi frá því á þriðju­dag að hrein eign lands­manna hafi auk­ist um 1.384 millj­arða króna - eða tæp­lega tvö­fald­ast - frá árs­lokum 2010 og fram að síð­ustu ára­mótum, sam­kvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands um eig­inr og skuldir ein­stak­linga. Helsta ástæða þess að auður hefur auk­ist er vegna þess að eigið fé Íslend­inga í fast­eignum þeirra hefur tvö­fald­ast á tíma­bil­inu. Hækkun á fast­eigna­verði og lækkun skulda útskýrir því 82 pró­sent af allri eig­in­fjár­aukn­ingu Íslend­inga á þessum sex árum.

En auð­ur­inn sem verður til skipt­ist ekki jafnt á milli hópa í sam­fé­lag­inu. Af þeirri hreinu eign sem orðið hefur til frá 2010 hafa 527,4 millj­arðar króna runnið til þeirra tíu pró­sent Íslend­inga, alls 20.251 ein­stak­linga, sem eiga mest. Það þýðir að tæp­lega fjórar af hverjum tíu krónum sem orðið hafa til af nýjum auð á þessum sex árum hafa farið til rík­asta hóps lands­manna.

Fjöldamörg mótmæli hafa verið haldin á Íslandi á undanförnum árum þar sem ójöfn skipting gæða hefur verið gagnrýnd.
Fjölda­mörg mót­mæli hafa verið haldin á Íslandi á und­an­förnum árum þar sem ójöfn skipt­ing gæða hefur verið gagn­rýnd.

Í fyrra jókst auður þess­arar tíundar um 185 millj­arða króna, eða um 9,1 milljón krónur að með­al­tali á hvern ein­stak­ling sem til­heyrir henni. Alls fór 43 pró­sent af allri nýrri hreinni eign til þessa hóps á árinu 2015. Á sama tíma og þessi rúm­lega 20 þús­und manna hópur átti hreina eign - þ.e. eignir eftir að skuldir höfðu verið dregnar frá - upp á 1.880 millj­arða króna í lok síð­asta árs skuld­aði fátæk­ari helm­ingur þjóð­ar­innar sem hafði tekjur í fyrra - rúm­lega 100 þús­und manns - 211 millj­arða króna umfram eignir sínar. Munurinn á eig­in­fjár­stöðu fátæk­ari helm­ings Íslend­inga og rík­ustu tíu pró­senta þjóð­ar­innar var því 2.091 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót.

Alls nam eigið fé Íslend­inga 2.949 millj­örðum króna um síð­ustu ára­mót og jókst um 430 millj­arða króna á árinu. Ríkasta tíund lands­manna átti 1.880 millj­arða króna af þess­ari eign, eða 64 pró­sent. Hinn rúmi þriðj­ung­ur­inn skipt­ist niður á 90 pró­sent þjóð­ar­innar. Ef næsta tíund fyrir neðan er tekin með, og reiknuð er hlut­fall rík­asta fimmt­ungs lands­manna í öllu eigið fé Íslend­inga, kemur í ljós að sá hópur, 40.502 ein­stak­lingar, á 87 pró­sent af öllu eigin fé lands­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár