Hinir ríku halda áfram að verða miklu ríkari á Íslandi

Eigið fé Íslend­inga hefur tvö­fald­ast á sex árum. Fjórar af hverjum tíu krónum sem verða til af nýjum auði á Íslandi fara til rík­ustu tíundar lands­manna, alls 20 þús­und fjöl­skyldna. Sam­an­lagt á rík­asti fimmt­ungur lands­manna 87 pró­sent af öllu eigin fé.

Ísland hefur upp­lifað mik­inn efna­hags­bata á und­an­förnum árum. Alls hefur hrein eign lands­manna auk­ist um 1.384 millj­arða króna frá árs­lokum 2010 og fram að síð­ustu ára­mótum, eða tæp­lega tvö­fald­ast. Helsta ástæða þess að auður hefur auk­ist er vegna þess að eigið fé Íslend­inga í fast­eignum þeirra hefur tvö­fald­ast á tíma­bil­inu. Hækkun á fast­eigna­verði og lækkun skulda útskýrir því 82 pró­sent af allri eig­in­fjár­aukn­ingu Íslend­inga á þessum árum.

En auð­ur­inn sem verður til skipt­ist ekki jafnt á milli hópa í sam­fé­lag­inu. Af þeirri hreinu eign sem orðið hefur til frá 2010 hafa 527,4 millj­arðar króna runnið til þeirra tíu pró­sent Íslend­inga, alls 20.251 fjöl­skyldna (ein­stak­linga og sam­skatt­aðra), sem eiga mest. Það þýðir að tæp­lega fjórar af hverjum tíu krónum sem orðið hafa til af nýjum auð á þessum árum hafa farið til rík­asta hóps lands­manna.

Í fyrra jókst auður þess­arar tíundar um 185 millj­arða króna, eða um 6,8 milljón krónur að með­al­tali á hverja fjöl­skyldu sem til­heyrir henni. Alls fór 43 pró­sent af allri nýrri hreinni eign til þessa hóps á árinu 2015. Á sama tíma og þessi hópur átti hreina eign - þ.e. eignir eftir að skuldir höfðu verið dregnar frá - upp á 1.880 millj­arða króna í lok síð­asta árs skuld­aði fátæk­ari helm­ingur þjóð­ar­innar sem hafði tekjur í fyrra - rúm­lega 100 þús­und manns - 211 millj­arða króna umfram eignir sínar. Munurinn á eig­in­fjár­stöðu fátæk­ari helm­ings Íslend­inga og rík­ustu tíu pró­senta þjóð­ar­innar var því 2.091 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Þetta kemur fram í tölum yfir eigna- og skulda­stöðu ein­stak­linga sam­kvæmt skatt­fram­tölum sem Hagstofa Íslands birti í gær­morgun.

Hinir ríkustu eiga 64 prósent

Alls nam eigið fé Íslend­inga 2.949 millj­örðum króna um síð­ustu ára­mót og jókst um 430 millj­arða króna á árinu. Í tölum Hag­stof­unnar er þeim ein­stak­lingum og sam­skött­uðum sem eru á vinnu­mark­aði skipt niður í tíu hópa eftir því hversu miklar tekjur þeirra eru.

Ríkasta tíund lands­manna átti 1.880 millj­arða króna af þess­ari eign, eða 64 pró­sent. Hinn rúmi þriðj­ung­ur­inn skipt­ist niður á 90 pró­sent þjóð­ar­innar. Ef næsta tíund fyrir neðan er tekin með, og reiknuð er hlut­fall rík­asta fimmt­ungs lands­manna í öllu eigið fé Íslend­inga, kemur í ljós að sá hópur, 40.502 fjöl­skyldur, á 87 pró­sent af öllu eigin fé lands­manna.

Leiðrétting ríkisstjórnarinnar færði 80 milljarða króna úr ríkissjóði til hluta Íslendinga sem voru með verðtryggð lán á árunum 2008 og 2009. Þessi aðgerð var dropi í hafið í bættri eignastöðu Íslendinga. Hækkun fasteignaverðs hefur aukið hana um hundruð milljarða króna á undanförnum árum.
Leið­rétt­ing rík­is­stjórn­ar­innar færði 80 millj­arða króna úr rík­is­sjóði til hluta Íslend­inga sem voru með verð­tryggð lán á árunum 2008 og 2009. Þessi aðgerð var dropi í hafið í bættri eigna­stöðu Íslend­inga. Hækkun fast­eigna­verðs hefur aukið hana um hund­ruð millj­arða króna á und­an­förnum árum.

Á sama tíma var hrein eign fátæk­ari helm­ings þjóð­ar­innar nei­kvæð um 211 millj­arða króna á síð­asta ári. Þ.e. þessi rúm­lega eitt hund­rað þús­und manna hópur skuld­aði 211 millj­örðum krónum meira en hann átti. Staða þess helm­ings lands­manna sem átti minnst batn­aði þó umtals­vert á síð­asta ári, eða um 58 millj­arða króna. Þar af voru 20,6 millj­arðar króna vegna hækk­unar á eigin fé í fast­eignum á árinu 2015, vegna mik­illar hækk­unar á fast­eigna­verði sem átt hefur sér stað á und­an­förnum árum.

Tvær þjóðir

Það sést glögg­lega á tölum Hag­stof­unnar að það búa tvær þjóðir á Íslandi: sú sem er launa­fólk og skuldar og sú sem hefur fjár­magnstekjur og á miklar eignir.

Fjár­magnstekjur eru allar vaxta­tekjur auk sölu­hagn­aðar, arðs og tekna af atvinnu­rekstri. Í fyrra höfðu Íslend­ingar alls 114,2 millj­arða króna í slíkar tekjur. Þar af fóru 79,2 millj­arðar króna til rík­ustu tíu pró­senta lands­manna og 13,3 millj­arðar króna til þeirrar tíundar sem á eftir kom. Því höfðu þessi tveir hópar, 20 pró­sent lands­manna, 81 pró­sent af öllum fjár­magnstekjum í fyrra.

Sá helm­ingur Íslend­inga sem átti minnst hafði sam­tals sjö millj­arða króna í fjár­magnstekjur á árinu 2015.

Ríkustu Íslend­ing­arnir áttu einnig nán­ast öll verð­bréf á Íslandi í fyrra. Verðbréf eru hluta­bréf í inn­lendum eða erlendum hluta­bréfum, skulda­bréf og aðrir slíkir fjár­mála­gjörn­ingar.

Alls nam verð­bréfa­eign þjóð­ar­innar 422,3 millj­örðum króna í lok árs í fyrra og hafði þá auk­ist um 38,3 millj­arða króna á einu ári. Ríkasta tíu pró­sent Íslend­inga átti 361,5 millj­arða króna í verð­bréfum um síð­ustu ára­mót og því liggur fyrir að 86 pró­sent allra verð­bréfa var í eigu þess hóps. Af þeirri 38,3 millj­arða króna virð­is­aukn­ingu verð­bréfa sem varð í fyrra fóru 35,5 millj­arðar króna, eða 93 pró­sent, til rík­ustu 20 þús­und Íslend­ing­anna á vinnu­mark­aði.

Misskipting auðs aukist á undanförnum áratugum

Árið 1997 átti rík­asta tíund lands­manna 56,3 pró­sent af öllu eigin fé í land­inu. Tíu árum síðar hafði eigið fé Íslend­inga fjór­fald­ast, enda banka- og eigna­bóla þá þanin til hins ítrasta, og rík­ustu tæp­lega 20 þús­und Íslend­ing­arnir áttu 2,5 sinnum meira eigið fé en öll þjóðin hafði átt sam­an­lagt tíu árum áður. Þá nam hlut­deild þess­arar rík­ustu tíundar í heildar eigin fé Íslend­inga 62,8 pró­sentum.

Eftir banka­hrunið tap­aði stór hluti lands­manna miklu af eignum sínum. Það átti sér­stak­lega við um þá sem áttu ekki mikið annað en t.d. eigið fé í hús­næði. Þótt ríkir Íslend­ingar hafi einnig tapað miklu áttu þeir enn mikið eigið fé í lok árs 2009. Alls lá 77,3 pró­sent alls eigin fjár hjá rík­ustu tíund lands­manna á þeim tíma. Ríkasti fimmt­ungur lands­manna átti á þeim tíma 103 pró­sent af öllu eigin fé lands­manna. Það þýðir að restin, 80 pró­sent lands­manna, var sam­an­lagt með nei­kvætt eigið fé.

Síðan hefur hlut­falls­leg eign þeirra á eigin fé lands­manna dreg­ist saman, sér­stak­lega sam­hliða mik­illi aukn­ingu á eign allra hópa í fast­eignum sínum. Alls hefur eigið fé í fast­eignum Íslend­inga auk­ist úr 1.146 millj­örðum króna í 2.285 millj­arða króna frá lokum árs 2010 og fram að síð­ustu ára­mótum.

Nokkur hund­ruð millj­arðar króna eru til­komnir vegna skulda­nið­ur­færslna sem áttu sér stað í gegnum 110 pró­sent leið, sér­tæka skulda­að­lögun og svo 80 millj­arða króna leið­rétt­ingu sitj­andi rík­is­stjórnar. En meg­in­þorri hinnar bættu stöðu er vegna þess að fast­eigna­verð hefur hækkað gríð­ar­lega hratt á örfáum árum, og langt umfram verð­bólgu.

Hlutfallsreikningur segir lítinn hluta sögu

Í frétt Hag­stof­unnar um birt­ingu taln­anna er lögð áhersla á að eig­in­fjár­staða allra fjöl­skyldu­gerða hafi hlut­falls­lega batnað á árinu 2015. Þar segir m.a. að eig­in­fjár­staða ein­stæðra for­eldra hafi batnað um 50 pró­sent og ein­stak­linga um 17,1 pró­sent. Eig­in­fjár­staða hækki mest milli ára í ald­urs­hópnum 25-39 ára, þar sem hún fer úr 55 í 111 millj­arða króna.

Alls voru 76 pró­sent allra fjöl­skyldna í land­inu með jákvæða eig­in­fjár­stöðu í lok síð­astar árs en 22 pró­sent þeirra með nei­kvæða eig­in­fjár­stöðu, þ.e. skuld­uðu meira en þær áttu.

En hlut­falls­reikn­ingur segir oft lít­inn hluta sög­unn­ar. Sá mikli efna­hags­bati sem Ísland hefur upp­lifað und­an­farin ár hefur vit­an­lega bætt eigna­stöðu allra hópa. Og þótt að ungt barna­fólk virð­ist vera sig­ur­veg­arar þess efna­hags­bata þegar aukn­ing á hreinni eign er reiknuð í hlut­falls­aukn­ingu þá er sá hópur það ekki þegar auk­inn auður er mældur í bein­hörðum krón­um. Því þá kemur í ljós að þeir sem eru rík­astir fá langstærstan hluta þess við­bót­ar­auðs sem varð til á síð­asta ári.

Skýr­ingin hefur verið upp­færð með þeim hætti að tíund­irnar end­ur­spegli ekki ein­stak­linga heldur fjöl­skyldur (ein­stak­linga og sam­skatt­aða). Auk þess hefur útreikn­ingur á með­al­tals­aukn­ingu á nafn­virði eigna efsta tekju­hóps­ins verið upp­færður. Í upp­haf­legu frétt­inni var hann 9,1 millj­ónir króna en er nú 6,8 millj­ónir króna. Ástæðan er upp­haf­lega láð­ist að taka með fjölgun ein­inga á milli ára í efstu tíund­inni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár