Flugfreyjur og flugþjónar fella nýjan kjarasamning

Félags­menn Flug­freyju­fé­lags Íslands hafa fellt nýjan kjara­samn­ing milli félags­ins og SA vegna Icelandair. Nið­ur­staðan var afger­andi. „Mikil von­brigði,“ segir for­stjóri flug­fé­lags­ins.

Félags­menn Flug­freyju­fé­lags Íslands hafa fellt nýjan kjara­samn­ing sem aðilar skrif­uðu undir hjá rík­is­sátta­semj­ara þann 25. júní síð­ast­lið­inn í atkvæða­greiðslu sem lauk í dag. Félagið mun nú meta þá mögu­leika sem eru í stöð­unni. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Icelandair sem send var út í dag.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá Flug­freyju­fé­lagi Íslands var á kjör­skrá 921. Atkvæði greiddu 786 eða 85,3 pró­sent. Alls sögðu 208 eða 26,46 pró­sent já og nei sögðu 571 eða 72,65 pró­sent. Auðir voru 7 eða 0,89 pró­sent. Viðræður við­semj­enda verði því teknar upp að nýju svo fljótt sem auðið er.

Kjörsókn góð

„Stjórn og samn­inga­nefnd FFÍ þakkar félags­mönnum fyrir sam­stöðu og stuðn­ing sem ríkt hefur síð­ustu mán­uði. Kjörsókn var mjög góð eða 85,3 pró­sent og sýnir það ábyrgð og áhuga félags­manna á starfs­kjörum sínum og vinnu­um­hverfi. Það að nýr kjara­samn­ingur hafi verið felldur með afger­andi hætti sýnir vel að félags­menn telja of langt gengið í þeim hag­ræð­ing­ar­kröfum sem fólust í nýjum samn­ingi. Stjórn og samn­inga­nefnd mun nú fara yfir málið og mæta á fund rík­is­sátta­semj­ara þegar til hans verður boðað með ríkan samn­ings­vilja líkt og áður,“ segir í til­kynn­ingu frá Flug­freyju­fé­lag­inu.

Segir niðurstöðuna vonbrigði

„Samn­ing­ur­inn var í sam­ræmi við þau mark­mið sem lagt var upp með um að auka vinnu­fram­lag en á sama tíma verja ráð­stöf­un­ar­tekjur flug­freyja og flug­þjóna. Þá stuðl­aði samn­ing­ur­inn að auknum sveigj­an­leika, bæði fyrir þróun leiða­kerfis Icelandair og jafn­framt sveigj­an­leika á vinnu­fram­lagi fyrir starfs­fólk,“ segir í til­kynn­ingu Icelandair.

Þá kemur fram að félagið hafi nú þegar gengið frá samn­ingum við flug­menn og flug­virkja en „eins og fram hefur komið eru lang­tíma­samn­ingar við flug­stéttir ein af for­sendum þess að félagið geti lokið fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins sem nú stendur yfir og hafið fyr­ir­hugað hluta­fjár­út­boð·.

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group, segir í til­kynn­ing­unni að þau hafi lagt allt kapp á að ná samn­ingum við Flug­freyju­fé­lag Íslands und­an­farnar vikur og mán­uði. „Með þessum samn­ingi gengum við eins langt og mögu­legt var til að koma til móts við samn­inga­nefnd FFÍ. Þessi samn­ingur hefði tryggt ein bestu kjör fyrir störf flug­freyja og flug­þjóna sem þekkj­ast á alþjóða­mark­aði en á sama tíma aukið sam­keppn­is­hæfni félags­ins til fram­tíðar. Þetta eru því mikil von­brigði. Nú verðum við að skoða þá mögu­leika sem eru í stöð­unni og munum gera það hratt og örugg­lega. Það hvílir mikil ábyrgð á okkur sem stjórna félag­inu að tryggja rekstr­ar­grund­völl þess til fram­tíðar og þar með verð­mæti fyrir þjóð­ar­búið og mik­il­væg störf, þar á meðal störf flug­freyja og flug­þjóna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár