Engri jafnréttisáætlun hefur verið skilað frá 365

Fjöl­miðla­fyr­ir­tækið 365 miðlar ehf. hefur ekki skilað Jafn­rétt­is­stofu jafn­rétt­is­á­ætlun, eins og lög kveða á um. Óbirt jafn­launa­út­tekt sem PwC gerði fyrir fyr­ir­tækið uppúr ára­mótum 2014 sýndi 4,9 pró­sent mun á grunn­launum karla og kvenna.

Jafn­launa­út­tekt sem gerð var fyrir RÚV árið 2012, á grund­velli jafn­rétt­is­á­ætl­unar rík­is­fjöl­mið­ils­ins, hefur heldur ekki verið birt sem skapað hefur óánægju meðal kven­kyns starfs­manna RÚV. Kjarninn fjall­aði um málið á dög­unum.

Í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla (nr. 10/2008) er kveðið um að öllum stofn­unum og fyr­ir­tækjum sé skylt að setja sér ein­hvers­konar jafn­rétt­is­á­ætlun, starfi þar fleiri en 25 starfs­menn. Markmið þess­ara laga er „að koma á og við­halda jafn­rétti og jöfnum tæki­færum kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynj­anna á öllum sviðum sam­fé­lags­ins“. Jafn­rétt­is­stofa heldur utan um þessar áætl­anir og hefur eft­ir­lit með því að sam­þykktum áætl­unum sé fylgt. Þar er Kristín Ást­geirs­dóttir í fram­kvæmda­stýra.

„Við höfum verið að gera rosa­legt átak und­an­farin tvö til þrjú ár í að kalla inn áætl­anir en höfum ein­fald­lega of litlar heim­ildir til að fylgja þessu [lög­unum] eftir,“ segir Kristín í sam­tali við Kjarnann. Síðast var kallað eftir jafn­rétt­is­á­ætlun frá 365 árið 2010 og þá hófst vinna við gerð áætl­unar, sem síðan lauk aldrei. Síðan hafa orðið manna­breyt­ingar innan 365. Svanur Val­geirs­son, sem starfað hefur sem mannauðs­stjóri hjá 365 síðan síðla árs 2013, kann­að­ist ekki við að skila þyrfti jafn­rétt­is­á­ætlun þegar hann var inntur eftir svörum.

Kristín segir Jafn­rétt­is­stofu reyna að fylgj­ast með því hvernig gangi að útbúa þessar áætl­anir. „Við höfum gert þetta í slumpum, tekið fyrir ein­staka geira og nú er að koma að fjöl­miðl­unum.“

Árvakur hf., útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, skil­aði jafn­rétt­is­á­ætlun árið 2011 en RÚV sam­þykkti jafn­rétt­is­á­ætlun sína í des­em­ber 2003, byggða á þágild­andi jafn­rétt­islögum frá árinu 2000.

Hlutfall kvenna áhyggjuefni


Í umsögn rann­sókn­ar­stofu í kvenna- og kynja­fræðum (RIKK) við Háskóla Íslands um frum­varp til laga um fjöl­miðla, sem urðu svo að fjöl­miðla­lögum 2011 segir meðal ann­ars að nið­ur­stöður rann­sókna á stöðu kvenna og karla í fjöl­miðlum hafi sýnt að veru­lega hallar á hlut kvenna, hvort sem um er að ræða konur sem starfs­menn á fjöl­miðlum eða konur sem við­mæl­endur eða umfjöll­un­ar­efni.

Kristín hefur sér­stakar áhyggjur af því að mikið virð­ist vanta við hlut­fall kven­kyns við­mæl­enda hjá íslenskum fjöl­miðlum. Þar virð­ist hlut­fallið vera fast í 30 og 70 pró­sent, sam­kvæmt könn­unum sem gerðar hafa verið.

„Það má segja að fjöl­miðlar gegni mjög veiga­miklu lýð­ræð­is­hlut­verki og eiga auð­vitað að vera til fyr­ir­myndar,“ segir Kristín. „Það er nátt­úr­lega lík­legt að jafn­ari skipt­ing kynj­anna meðal blaða­manna og frétta­manna hafi áhrif á frétt­irnar.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Verulega hallar á hlut kvenna í fjöl­miðlum, hvort sem litið er á fjölda starfs­manna eða við­mæl­enda í fjöl­miðlum.[/caption]

 

Úttektin gölluð og ókláruð


Svanur Val­geirs­son, mannauðs­stjóri hjá 365, stað­festi í sam­tali við Kjarnann að í upp­hafi árs í fyrra hafi jafn­launa­út­tekt verið gerð innan fyr­ir­tæk­is­ins og að í þeirri úttekt hafi kyn­bund­inn munur á grunn­launum starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins verið 4,9 pró­sent.

Vegna inn­byggðra galla í könn­un­inni hafi nið­ur­stöð­urnar ekki verið birtar. „Við gerðum þetta ekki nógu vel,“ segir Svanur. „Ég vildi helst ekki birta eitt­hvað sem ég hefði þurft að eyða meiri tíma í að útskýra heldur en að gera þetta upp á nýtt.“

Gall­arnir sem voru á úttekt­inni voru þeir að innan fyr­ir­tæk­is­ins hafi margir sömu starfs­heiti og að í þeim for­sendum sem settar voru vant­aði menntun sem breytu. Þess vegna hafi könn­unin verið gölluð. Einnig hafi verið gerðar miklar á breyt­ingar innan fyr­ir­tæk­is­ins eftir að úttektin var gerð og áður en nið­ur­stöð­urnar voru birtar. Þar ber sam­runi Tals við 365 hæst, svo að mati Svans var úttekt­inni ekki lokið.

„Þegar þetta kemur í ljós þá var for­stjór­inn hættur, fram­kvæmda­stjórar hættir og það voru gerðar breyt­ingar á rit­stjórn þegar Mikael [Torfason] aðal­rit­stjóri fór og Kristín [Þor­steins­dóttir] kom í stað­inn,“ útskýrir Svanur. „Svo þetta [4,9 pró­sent launa­munur] er alls ekki slæm nið­ur­staða, miðað við fyr­ir­tæki almennt.“

Óleið­réttur launa­munur á almennum vinnu­mark­aði var 19,9 pró­sent árið 2013, en með óleið­réttum launa­mun er átt við þann mun á launum karla og kvenna sem ekki er hægt að skýra með þeim breytum sem almennt eru tal breytum eins og menntun, starfs­hlut­fall, yfir­vinnu og starfs­reynslu.

Þá voru 75 pró­sent kvenna með heild­ar­laun undir með­al­tali árið 2014, en aðeins helm­ingur karla. Heilt yfir var með­al­tal heild­ar­launa var 555 þús­und krónur á mán­uði. Með­al­laun kvenna voru 486 þús­und en karlar höfðu 619 þús­und krónur að með­al­tali í heild­ar­laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár