Eitt ár er frá árásinni á þing­hús Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Ár frá árásinni á bandaríska þingið – Biden segir Trump hafa reynt að gera út af við lýðræðið

Árið 2021 átti að marka nýtt upp­haf en hófst með látum þegar hópur fólks réðst inn í þing­húsið í Washington. En hver er staðan í dag, ári eftir árás­ina?

6. jan­úar 2021 réðst stór hópur stuðn­ings­manna Donalds Trump, frá­far­andi Banda­ríkja­for­seta, að þing­hús­inu í Washington þegar öld­unga­deild­ar­þingið var í þann mund að ganga frá form­legri stað­fest­ingu úrslita for­setaskosn­ing­anna 2020 þar sem Joe Biden hrós­aði sigri. Biden ávarp­aði banda­rísku þjóð­ina í dag þar sem hann sagði Trump ábyrgan fyrir árásinni á þing­húsið og sakar hann um að hafa reynt að gera út af við lýð­ræði í Banda­ríkj­unum.

Kamilla Harris varaforseti og Joe Biden forseti fluttu ávörp í þinghúsinu í dag, ári eftir að hópur stuðningsmanna Donalds Trump réðst inn í þinghúsið.
Kamilla Harris vara­for­seti og Joe Biden for­seti fluttu ávörp í þing­hús­inu í dag, ári eftir að hópur stuðn­ings­manna Donalds Trump réðst inn í þing­húsið.

„Hann reyndi að koma í veg fyrir frið­sam­leg valda­skipti ættu sér stað þegar æstur múgur réðst á þing­húsið. En þeim mistókst. Þeim mistókst. Og á þessum degi þegar við minn­umst þess verðum við að tryggja að árás eins og þessi ger­ist aldrei aftur,“ sagði Biden í ávarpi sínu þar sem hann var afar harð­orður í garð Trump. „Löskuð sjálfs­mynd hans skipti hann meira máli en lýð­ræðið eða stjórn­ar­skráin okkar, hann getur ekki við­ur­kennt tap,“ sagði Biden einnig, en ræðu hans í heild sinni má sjá hér:

Yfir 700 ákærðir fyrir aðild að árásinni

Frá því að úrslit for­seta­kosn­ing­anna 2020 voru ljós tal­aði Trump, auk hluta repúblik­ana, um kosn­inga­svindl án þess að sýna fram á sönn­un­ar­gögn máli sínu til stuðn­ings. Þess í stað hvatti hann stuðn­ings­menn sína til að þrýsta á þingið að stað­festa ekki nið­ur­stöðu kosn­ing­anna.

Daginn sem öld­unga­deild­ar­þingið stað­festi kjör Biden hélt Trump fjölda­fund við Hvíta húsið þar sem hann hvatti stuðn­ings­menn sína til að „bjarga landi þeirra“. Stuðn­ings­menn tóku hann á orð­inu og réð­ust inn í þing­húsið, sumir vopn­aðir í hefð­bundnum skiln­ingi en fleiri vopn­aðir snjall­símum þar sem atburð­ar­rásinni var streymt á sam­fé­lags­miðlum.

Þingmenn földu sig og læstu sig inni í her­bergjum þing­húss­ins þegar mót­mæl­end­urnir æddu um gang­ana og hót­uðu að drepa bæði Nancy Pelosi þing­for­seta og Mike Pence vara­for­seta. Trump hvatti að lokum stuðn­ings­menn sína til að hverfa frá. „Ég finn fyrir sárs­auka ykkar og veit að þið eruð særð. Við gengum í gegnum kosn­ingar sem var stolið af okkur. Ég veit hvernig ykkur líður, en þið verðið að fara heim núna, og farið heim í friði ,“ sagði hann í mín­útu­löngu mynd­skeiði sem hann birti á sam­fé­lags­miðlum.

Fimm lét­ust í árásinni á þing­húsið og á annað hund­rað særð­ust. Trump var ákærður fyrir emb­ætt­is­brot í kjöl­far inn­rás­ar­innar en ákæran var felld í öld­unga­deild­inni þar sem repúblikanar eru með meiri­hluta.

Þúsundir tóku þátt í óeirð­unum og yfir 700 þeirra sem voru hand­teknir voru ákærðir fyrir þátt sinn í inn­rásinni á þing­húsið, allt frá því að fara inn í bygg­ingu þar sem aðgangur var bann­aður til ofbeld­is­brota. 71 dómur hefur verið kveð­inn upp í tengslum við óeirð­irnar, þar af voru 56 dæmdir fyrir að ganga fylktu liði að þing­hús­inu, fyrir að taka þátt í mót­mælum eða fyrir að umkringja þing­húsið.

31 hefur hlotið fang­els­is­dóm fyrir aðild að óeirð­unum, 50 skil­orðs­bundin dóm, 38 vory dæmd til að sinna sam­fé­lags­þjón­ustu, 18 sættu stofu­fang­elsi í einn til þrjá mán­uði og 16 voru dæmd til að greiða sekt, allt frá 1.000 til 5.000 doll­ara.

„Qanon-seiðmaðurinn“ afplánar 41 mánaðar fangelsisdóm

Stuðn­ings­menn Trump virt­ust margir kunna vel við sig í þing­hús­inu, ekki síst Jacob Chansley, sem kall­aði sjálfan sig „Qanon-seið­mann­inn“ og varð fljótt að eins konar tákn­gerv­ingi árás­ar­innar. Chansley var hand­tek­inn 9. jan­úar og var upp­haf­lega birt ákæra í sex liðum, meðal ann­ars fyrir að setj­ast í ræðu­stól Mike Pence vara­for­seta.

Qanon-seiðmaðurinn varð fljótt að tákngervingi árásarinnar á þinghúsið.
Qanon-seið­mað­ur­inn varð fljótt að tákn­gerv­ingi árás­ar­innar á þing­húsið.

Í febr­úar birti hann afsök­un­ar­beiðni á fram­ferði sínu í árásinni en lýsti jafn­framt von­brigðum sínum yfir því að Trump hafi ekki náðað stuðn­ings­menn sem tóku þátt í inn­rásinni áður en hann lét form­lega af emb­ætti. „Ég biðst afsök­unar á að hafa vakið óhug. Það var rangt. Punktur,“ sagði meðal ann­ars í afsök­un­ar­beiðni Chansley. Hann ját­aði aðild sína að inn­rásinni og hlaut 41 mán­aðar fang­els­is­dóm.

Mál „Suðurríkjafánaveifarans“ tekið fyrir í júní

Kevin Seefried vakti athygli fyrir að þeys­ast um ganga þing­húss­ins með stærð­ar­innar fána Suð­ur­ríkj­anna. Fáninn hefur lengi verið umdeildur og skiptar skoð­anir eru á því hvaða þýð­ingu hann hefur fyrir fólk í dag. Suð­­ur­­ríkin var sér­­stakt sam­­bands­­ríki syðstu ríkj­anna í Banda­­ríkj­unum á árunum 1861 til 1865 eða þar til borg­­ara­­stríð­inu í Norð­­ur­-Am­er­íku lauk með sigri Banda­­ríkj­anna í norðri. Fán­inn er nú iðu­lega not­aður sem hat­ur­s­tákn og tákn­mynd fyrir yfir­burði hvíta kyn­stofns­ins.

Kevin Seefried arkaði um ganga þinghússins með Suðurríkjafánann og Aaron Mostofsky tyllti sér á bekk, umvafinn loðfeldi auk skjaldar og vestis sem hann stal af þinglögreglumanni.
Kevin Seefried ark­aði um ganga þing­húss­ins með Suð­ur­ríkja­fán­ann og Aaron Mostof­sky tyllti sér á bekk, umvaf­inn loð­feldi auk skjaldar og vestis sem hann stal af þinglög­reglu­manni.

Seefried var hand­tek­inn ásamt syni sínum 14. jan­úar . Sam­eig­in­leg ákæra var birt feðg­unum í apríl. Kevin er ákærður í fimm liðum fyrir að fara inn í þing­húsið með ólög­mætum hætti og á yfir höfði sér 20 ára fang­els­is­vist. Dómur hefur ekki verið kveð­inn upp en málið verður tekið fyrir í júní. Kevin Seefried neitar allri sök.

Maðurinn sem settist í stól Pelosi neitar sök

Richard Barnett, sem braust inn á skrif­stofu Nancy Pelosi og kom sér mak­inda­lega fyrir við skrif­borð hennar áður en hann gekk þar ber­seks­gang, var hand­tek­inn tveimur dögum eftir árás­ina og var í rúma þrjá mán­uði í gæslu­varð­haldi.

Barnett er meðal ann­ars ákærður fyrir að bera raf­byssu inn í þing­húsið og sak­sókn­arar töldu hann ógn við sam­fé­lagið. Barnett var lát­inn laus í lok apríl en sætir enn sjö ákærum en ekki liggur fyrir hvenær mál hans verður tekið fyrir. Barnett neitar allri sök.

Richard Barnett hefur verið ákærður í sjö liðum fyrir að ryðja sér leið inn á skrifstofu Nancy Pelosi þingforseta.
Richard Barnett hefur verið ákærður í sjö liðum fyrir að ryðja sér leið inn á skrif­stofu Nancy Pelosi þing­for­seta.

Réttarhöld yfir „hellisbúanum“ hefjast síðar í mánuðinum

Aaron Mostof­sky vakti athygli í þing­hús­inu, ekki síst fyrir klæða­burð sinn þar sem hann vafði sig inn í loð­feld og fékk við­ur­nefnið „hell­is­bú­inn“ fyrir vikið. Þar að auki tók hann vesti og skjöld frá þinglög­reglu­manni og fyrir það á hann yfir höfði sér allt að 10 ára fang­elsi.

„Ég held ekki að 75 millj­ónir hafi kosið Trump - ég held að það hafi verið nær 85 millj­ónum. Ég held að viss ríki sem hafa verið rauð lengi hafi orðið blá og þeim rænt, líkt og New York,“ sagði Mostof­sky í við­tali sem vísað er í yfir­lýs­ingu FBI.

Mostof­sky var hand­tek­inn 12. jan­úar og hefur honum verið birt ákæra í átta liðum. Rétt­ar­höld yfir honum verða síðar í þessum mán­uði. Mostof­sky neitar sök.

Biden forðast að nota nafn Trump

Trump fylgd­ist með ávarpi Biden í dag frá heim­ili sínu á Flórída. Í yfir­lýs­ingu þar sem reiðin skín í gegn segir Trump að Biden hafi notað hans nafn „til að ala á frek­ari sundr­ung“ í Banda­ríkj­unum. Ávarp Biden í dag var „póli­tískt leik­rit“ að mati Trump og segir hann Biden hafa mis­tek­ist í einu og öllu. Þá skaut hann einnig á fjöl­miða, sagði þá sam­seka í því sem kallað er „Stóra lygin“. „Í raun og veru er „Stóra lygin“ kosn­ing­arnar sjálfar,“ segir í yfir­lýs­ingu Trump.

Biden hefur hingað til forð­ast að tala beint um for­vera sinn í starfi og tók lík­lega með­vit­aða ákvörðun um það í dag að nefna hann ekki á nafn heldur tala ein­ungis um „fyrr­ver­andi for­seta“. „Fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna hefur spunnið lyga­vef um kosn­ing­arnar árið 2020. Hann gerði það því völd eru honum mik­il­væg­ari en verð­leikar, af því að hann telur eigin hags­muni mik­il­væg­ari en hags­muni þjóð­ar­innar,“ sagði Biden.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár