Mynd: EPA

Óeirðaseggir flagga nýfasískum táknum

Tákn segja stundum meira en þús­und orð og eru þau góð leið til að senda skýr skila­boð. Í óeirð­unum í Washington í síð­ustu viku mátti sjá ara­grúa af ýmiss konar táknum.

Óeirða­seggir réð­ust inn í þing­húsið í Washington síð­ast­lið­inn mið­viku­dag og hafa myndir af þeim tröll­riðið sam­fé­lags­miðlum síðan á mið­viku­dag­inn. Fyrir áeggjan Banda­ríkja­for­seta, Donalds Trump, braust múg­ur­inn inn í þing­húsið – án þess að lög­reglan fengi rönd við reist.

Á þessum myndum, hvor sem litið er til þeirra sem mót­mæltu fyrir utan eða þeirra sem réð­ust inn í þing­húsið, má smá hin ýmsu tákn, fána eða merki sem vert er að beina sjónum að.

Suðurríkjafáninn

Suð­ur­ríkja­fán­inn hefur lengi verið umdeildur og skiptar skoð­anir eru á því hvaða þýð­ingu hann hefur fyrir fólk í dag. Suð­ur­ríkin var sér­stakt sam­bands­ríki syðstu ríkj­anna í Banda­ríkj­unum á árunum 1861 til 1865 eða þar til borg­ara­stríð­inu í Norð­ur­-Am­er­íku lauk með sigri Banda­ríkj­anna í norðri.

Fáninn er nú iðu­lega not­aður sem hat­ur­s­tákn og tákn­mynd fyrir yfir­burði hvíta kyn­stofns­ins. Hann var áber­andi í óeirð­unum í síð­ustu viku og ekki síst inni í þing­hús­inu sjálfu þegar einn úr hópi múgsins spíg­spor­aði með fán­ann um ganga húss­ins.

Maður arkaði um þinghúsið með suðurríkjafánann.
Maður ark­aði um þing­húsið með suð­ur­ríkja­fán­ann.

Kek fáninn

Sjá mátti kek fán­ann á meðal fólks í óeirð­unum en honum svipar til nas­ista­fán­ans – með tvö­földum krossi og merki í miðj­unni. Fáninn er tákn fyrir skáldað ríki sem kall­ast Kekistan. Hvítir þjóð­ern­is­sinnar stofn­uðu „ríkið“ á sam­skipta­síð­unni 4chan en í þessu skáld­aða ríkið ræður ríkjum guð með frosks­höfuð sem er tákn ringul­reiðar.

Frosk­ur­inn hefur verir not­aður á net­inu til að koma ákveðnum skila­boðum á fram­færi. Þá hafa nettröll notað frosk­inn til að hræra í umræðum á net­inu og beina spjótum sínum þá aðal­lega að frjáls­lyndu fólki og „rétt­læt­is­ridd­urum“.

Kek fáninn er keimlíkur nasistafánanum.
Kek fán­inn er keim­líkur nas­ista­fán­anum.

Refsarinn

Merki Refs­arans, eða The Punisher eins og hann kall­ast á ensku, sást á fánum og bún­ingum fólks í hópnum. Merkið vísar í teikni­mynda­per­sónu í Marvel heim­inum sem refsar glæpa­mönnum án dóms og laga. Hermenn í Banda­ríkj­unum byrj­uðu að nota merkið sem inn­blástur í byrjun 10. ára­tug­ar­ins og lög­reglan þar í landi í upp­hafi 21. aldar.

Gerry Conway, höf­undur Refs­arans, tjáði sig um þessa notkun á merk­inu síð­ast­liðið sumar en þá sagði hann að Refs­ar­inn væri full­trúi þeirra sem rétt­ar­kerfið hefur brugð­ist. „Mér hefur alltaf fund­ist það heimsku­legt og kald­hæðn­is­legt að lög­reglu­menn taki opnum örmum ein­hverju sem er í grund­vall­ar­at­riðum tákn­mynd útlaga.“ Athygli vakti í lok síð­asta árs þegar sjá mátti á þriggja ára gam­alli mynd af íslenskri lög­reglu­konu merki Refs­arans.

Merki Refsarans vísar í teiknimyndapersónu í Marvel heiminum sem refsar glæpamönnum án dóms og laga.
Merki Refs­arans vísar í teikni­mynda­per­sónu í Marvel heim­inum sem refsar glæpa­mönnum án dóms og laga.

Snörur og „Dagur reipisins“

Víða mátti sjá gálga í Washington á mið­viku­dag­inn. Margir Twitter-not­endur tengdu þá við sögu eftir William Luther Pierce sem nefn­ist The Turner Diaries. Fjallar hún um dag­bækur Earl Turner sem tekur þátt í upp­reisn gegn stjórn Banda­ríkj­anna sem dreif­ist síðar um heim allan. Sagan er vin­sæl meðal kyn­þátta­hat­ara.

Sér­stak­lega er vísað til nokk­urs sem kall­ast „dagur reip­is­ins“ en í sög­unni er það dag­ur­inn sem þeir sem líta á hvíta kyn­stofn­inn sem æðri öðrum yfir­taka stjórn lands­ins og myrða alla sem kall­ast „kyn­þátta­svik­arar“.

Nýnasistar

Tákn nýnas­ista skutu upp koll­inum í óeirð­unum en til að mynda mátti sjá mann í peysu merkt „Camp Auschwitz – Work brings freedom“ sem vísar í útrým­ing­ar­búðir nas­ista í seinni heims­styrkjöld­inni og í yfir­skrift búð­anna „Arbeit macht frei“ sem þýðir á íslensku „vinnan færir frelsi“.

Jafn­framt mátti sjá svo­kall­aðan hníf Hitler­sæsk­unnar. Í seinni heims­styrj­öld­inni varð Hitler­sæskan gríð­ar­lega fjöl­menn en heróp hreyf­ing­ar­innar var „Blut und Ehre“ eða „blóð og heiður“.

QAnon

Meðlimir QAnon létu sig ekki vanta. Sá umtal­að­asti er lík­leg­ast herra­mað­ur­inn með hornin og loð­feld­inn. Sá heitir Jake Angeli og er hann áber­andi per­sóna innan sam­tak­anna QAnon. Hefur hann verið nefndur Q-seið­maður.

QAnon er hreyf­ing sem aðhyllist ýmsar öfga­fullar sam­sær­is­kenn­ingar, til dæmis að rann­sókn sér­staks sak­sókn­ara í Banda­ríkj­unum á áhrifum Rússa í síð­ustu for­seta­kosn­ing­unum hafi í raun verið gerð til að afvega­leiða rann­sókn á barn­a­níðs­hring, að John F. Kenn­edy, fyrrum for­seti Banda­ríkj­anna, hafi svið­sett morðið á sjálfum sér og að kór­ónu­veiran sé annað hvort til­bún­ingur eða líf­efna­vopn sem búið var til af ill­gjörnum elít­u­m.

Jake Angeli er orðinn ein táknmynd óeirðanna.
Jake Angeli er orð­inn ein tákn­mynd óeirð­anna.

Norræn ásatrúartákn

Fyrr­nefndur Jake Angeli með hornin var skreyttur húð­flúrum með táknum ása­trúar á borð við val­hnút­inn, Ygg­drasil og hamar Þórs, Mjölni. Víða á inter­net­inu má finna harða gagn­rýni á teng­ingu þess­ara nor­rænu tákna við ras­isma og sam­sær­is­kenn­ingar. En þrátt fyrir mót­mæli hafa ýmsir öfga­hópar til hægri tekið táknin og beitt þeim í sína þágu.

Mjóa, bláa línan

Sjá mátti fána Banda­ríkj­anna með mjórri, blárri línu inni í þing­hús­inu í óeirð­unum. Línan táknar varn­ar­liðið sem stendur milli mannýgs óvinar og sið­menn­ing­ar­innar sem hann ógnar en tók á sig nei­kvæð­ari auka­merk­ingu eftir því sem á leið tutt­ug­ustu öld­ina, þegar þagn­ar­múr­inn innan lög­regl­unnar varð­andi mis­gjörðir sam­starfs­fé­laga varð lýðum kunnur.

Mjóa, bláa línan, sem var orðin að niðr­andi hug­taki í upp­hafi 21. aldar, var end­ur­reist árið 2014 með til­komu hreyf­ing­ar­innar Blue Lives Matter og til­raun var gerð til að ljá henni göfugan blæ en vegna aug­ljósu vís­un­ar­innar í mann­rétt­inda­hóp­inn Black Lives Matter og ólg­unnar í sam­fé­lag­inu yfir lög­reglu­of­beldi voru það aðal­lega öfga­hægri-hópar sem tóku táknið, og með­fylgj­andi fána, upp á sína arma. Því líta fæstir á mjóu, bláu, lín­una sem tákn fórn­fýsi, eins og Blue Lives Matter hreyf­ingin vill meina, og þeir sem bera merkið eru taldir lýsa yfir skil­yrð­is­lausum stuðn­ingi við lög­regl­una, sama hvað hún gerir.

Mjóu, bláu línunni var flaggað fyrir framan þinghúsið sem og inni í því.
Mjóu, bláu lín­unni var flaggað fyrir framan þing­húsið sem og inni í því.

Stoltir strákar

Proud boys, eða stoltir strákar á íslenskri tungu, eru sam­tök öfga-hægri­s­inn­aðra karl­manna en þeir létu sig ekki vanta í óeirð­unum. Meðal þess sem hreyf­ingin heldur fram er að karl­menn og vest­ræn menn­ing eigi undir högg að sækja. Hún upp­hefur ofbeldi og eigin kyn­þátt og kyn á kostnað minni­hluta­hópa.

Hreyf­ingin komst almenni­lega á kortið þegar Donald Trump Banda­ríkja­for­seti var beð­inn um að for­dæma hvíta þjóð­ern­is­sinna og aðra öfga­hópa á borð við Proud Boys. Trump sagði Proud Boys aftur á móti að „halda sig til hlés og vera í við­bragðs­stöðu“.

Þessi listi er engan veg­inn tæm­andi en gefur ákveðna hug­mynd um þá hópa og hreyf­ingar sem sam­an­komnar voru fyrir framan þing­hús Banda­ríkj­anna mið­viku­dag­inn 6. jan­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár