Einn á viku má heimsækja ástvin

Til­slak­anir verða gerðar á heim­sókn­ar­banni á hjúkr­un­ar­heim­ilum 4. maí. Tekin verða lítil skref og var­lega. Einn náinn aðstand­andi má koma í heim­sókn til hvers og eins íbúa einu sinni í viku.

Anna Birna Jensdóttir.
Anna Birna Jens­dóttir. Mynd: Lögreglan

„Núna birtir til og við getum farið að lyfta brúnum og brosa aðeins,“ sagði Anna Birna Jens­dóttir frá sam­tökum fyr­ir­tækja í vel­ferð­ar­þjón­ustu á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Þar fór hún yfir nið­ur­stöður vinnu starfs­hóps um aflétt­ingu á heim­sókn­ar­banni á hjúkr­un­ar­heim­ilum. Farið verður var­lega í þessum efnum en fyrstu skrefin verða stigin 4. maí.

Um 2.800 manns eru á hjúkr­un­ar­heim­ilum á Íslandi og hver og flestir eiga þeir marga aðstand­endur, „svo þetta er gríð­ar­legt verk­efni sem við erum að fara út í.“

Strax 4. maí verður farið í til­slak­anir á heim­sókn­ar­bann­inu og hvert heim­ili mun svo aðlaga sig að þeim reglum með til­liti til stærðar heim­ilis og aðstæðna hverju sinni. Á sumum heim­ilum eru til dæmis enn tví­býli og taka þarf sér­stak­lega til­lit til þess.

[adspot]

Anna Birna sagði að aðeins einum nánum aðstand­anda í einu væri heim­ilt að heim­sækja hvern íbúa fyrstu tvær vik­urnar. Búast mætti við því að hver íbúi fá þá eina heim­sókn á viku fyrst í stað, oftar ef aðstæður á heim­il­unum og í sam­fé­lag­inu leyfa. „Við treystum því að ætt­ingjar fari að leið­bein­ingum sem verða gefnar út,“ sagði hún. „Það má ekk­ert út af bregða og við verðum að fara mjög var­lega.“

Ung­mennum á aldr­inum 14-18 ára er heim­ilt að koma í heim­sókn en ekki yngri börnum.

Hvert heim­ili mun halda utan um skrán­ingu og skipu­lags heim­sókna. Í dag verða send út boð til ætt­ingja um hvernig þeir eigi að bera sig að við að panta tíma. Starfs­fólk heim­il­anna munu svo raða þeim niður.

Fólk getur ekki komið í heim­sókn án þess að hafa til þess heim­ild. Fyr­ir­komu­lagið verður þannig þannig að starfs­menn munu taka á móti gesti og fylgja honum rak­leiðis að her­bergi íbú­ans. Gesti er svo fylgt út sömu leið, þá stystu sem mögu­leg er. Aðstand­endur mega ekki dvelja í sam­eig­in­legum rýmum og áfram er hvatt til þess að ræða við starfs­menn heim­il­anna í gegnum síma.

[adspot]

„Það er mik­il­vægt að njóta þess­arar stundar og vera bara í heim­sókn,“ sagði Anna Birna. „Njótið að hitta ykkar ást­vin – það er gjöf að fá að koma til baka, að koma í heim­sókn aftur og vera með sínum. Við verðum að meta það.“

Hún minnti á að allir yrðu áfram að virða tveggja metra regl­una og því væri ekki hægt að „kyss­ast og knús­ast“ að sinni.

Allir þeir sem koma í heim­sókn skulu gæta ítar­legra smit­varna, þvo hendur og spritta og mjög mik­il­vægt er að þeir sem eru lasnir komi ekki í heim­sókn.

Útfærslur á hverju heim­ili fyrir sig munu liggja fyrir eftir helgi. „Það er nota­legt að hugsa til þess að 4. maí verður brotið blað og tekin skref.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár