Trump gefur ekki upp hvort hann muni una niðurstöðunni

Hillary Clinton hefur styrkt stöðu sína veru­lega með eftir þrjá sjón­varp­s­kapp­ræðu­þætti, en þeim síð­asta lauk í nótt. Donald J. Trump hélt áfram full­yrð­inga­flumi sínum, sem að mati fjöl­miðla í Banda­ríkj­unum er lítt tengdur veru­leik­anum.

Donald J. Trump, for­seta­efni Repúblik­ana í Banda­ríkj­unum, sagð­ist í kapp­ræðum hans og Hillary Clinton, for­seta­efni Demókrata, ekki geta treyst sér til full­yrða að ekki verði „svindlað“ í kosn­ingum. Þriðju og síð­ustu níu­tíu mín­útna sjón­varp­s­kapp­ræð­urnar milli þeirra tveggja fóru fram í Uni­versity of Nevada í Las Vegas í nótt.

„Ég mun líta á það þegar þar að kem­ur,“ sagði Trump, þegar spyrill­inn Chris Wallace spurði hann hvort hann muni una nið­ur­stöðu kosn­ing­anna. „Það sem ég hef séð er svo slæmt [...] Fjöl­miðl­arnir eru svo spilltir,“ sagði Trump, og bætti við að hann teldi kjós­endur sjá í gegnum þetta.

Hillary mót­mælti þessu harð­lega, og sagði Trump marg­ít­rekað hafa talað um að nið­ur­stöður í deilu­málum hans hefðu verið svindl þegar þær féllu ekki hans megin. Þetta hefði átt við um Trump Uni­versity, sem reynd­ist hálf­gerð svika­mylla eftir dóms­nið­ur­stöðu þar um, og einnig þegar þegar hann hefði tapað kosn­ingum í ein­stökum ríkjum í for­vali Repúblik­ana. „Þetta er það sem Trump gerir,“ bætti Hillary við. Hún sagði afstöðu Trumps vera bæði alvar­lega, fyrir lýð­ræð­is­hefð í land­inu, og sorg­lega.

Chris Wallace spurði Trump einnig hvort hann myndi halda í heiðri 240 ára hefð í Banda­ríkj­unum um valda­skipti fari fram frið­sam­lega, hvernig sem kosn­ing­arnar færu. Trump sagð­ist ekki vilja svara því.

Fordæmalausar kappræður

Sjón­varp­s­kapp­ræð­unum fyrir kosn­ing­arnar 8. nóv­em­ber er nú lokið, og eru flestir á því að Hillary hafi komið mun betur út úr þeim en Trump, sem beitti gífyrðum og sífelldum end­ur­tekn­ingum í mál­flutn­ingi sínu, í öllum þátt­unum.

Gengi Trumps í könn­unum hefur farið veru­lega niður á við frá því kapp­ræð­urnar hófust, og metur vef­ur­inn FiveT­hir­tyEight nú 87,3 pró­sent líkur á sigri Hillary en 12,6 pró­sent líkur á sigri Trump. Áður en kapp­ræð­urnar hófust voru lík­urnar metna 52 pró­sent með Hillary en 48 pró­sent með Trump. Fram­ganga hans á und­an­förnum vikum, ekki síst eftir að Washington Post birti mynd- og hljóð­upp­töku af því þegar hann tal­aði með nið­ur­lægj­andi hætti um konur árið 2005, virð­ist hafa gert honum erfitt fyrir í kosn­inga­bar­átt­unni, svo ekki sé meira sagt. Ásakanir í það minnsta sex kvenna, um að hann hafi áreitt þær kyn­ferð­is­lega, hafa enn fremur fengið mikla athygli, en Trump hefur alfarið neitað því að hafa áreitt þær, og lét hafa eftir sér í kapp­ræð­unum í nótt að hann þekkti þessar konur ekk­ert. „Ég hef ekki einu sinni beðið kon­una mína afsök­unar, enda gerði ég ekk­ert. Ég veit ekk­ert hvað konur þetta eru,“ sagði Trump.

Hillary heldur ró sinni

Á meðan Trump hefur vaðið áfram, oft með full­yrð­inga­flaumi sem stað­reynda­vakt New York Times telur ekki eiga við nein rök að styðj­ast, hefur Hillary haldið ró sinni og reynt að halda sig við mál­efnin og áherslu­mál sín. Umræðan hefur þó oft verið næstum stjórn­laus, í þessum kapp­ræðum, sem er gjör­ó­líkt því sem van­inn hefur verið með sjón­varp­s­kapp­ræð­urnar fyrir fyrri for­seta­kosn­ingar í Banda­ríkj­unum. Meg­in­á­stæðan er sú að Trump hefur beitt þeirri aðferða­fræði að grípa fram í, og skjóta stuttum gríp­andi setn­ingum inn í orð­ræðum, oft sam­heng­is­laust. Fyrir vikið hefur það verið nefnt að kapp­ræð­urnar nú séu for­dæma­lausar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár