Segir ummæli í Vigdísarskýrslunni vera atvinnuróg, meiðyrði og svívirðingar

Þor­steinn Þor­steins­son, aðal­samn­inga­maður Íslands við end­ur­skipu­lagn­ingu bank­anna, er harð­orður út í skýrslu meiri­hluta fjár­laga­nefndar sem birt var á mánu­dag. Í bréfi hans til nefnd­ar­innar segir hann vegið að starfs­heiðri sínum með niðr­andi ummælum.

Guðlaugur Þór Þórðarson og Vigdís Hauksdóttir kynntu skýrsluna á mánudag.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Vigdís Hauks­dóttir kynntu skýrsl­una á mánu­dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þor­steinn Þor­steins­son, aðal­samn­inga­maður íslenska rík­is­ins við end­ur­reisn við­skipta­bank­anna, segir að skýrsla meiri­hluta fjár­laga­nefndar, „Einka­væð­ing bank­anna hin síð­ari“, vegi alvar­lega að starfs­heiðri sínum með ýmsum niðr­andi ummælum. „Sem leik­maður geri ég mér þó ekki grein fyrir hvort þau ummæli, sem að mínu mati eru atvinnurógur, meið­yrði og sví­virð­ingar, varði við lög.“ Þetta kemr fram í bréfi sem Þor­steinn sendi fjár­laga­nefnd og for­seta Alþingis í dag.

Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, vara­for­maður nefnd­ar­innar, kynntu skýrsl­una fyrir frétta­mönnum á mánu­dag. Í henni eru lagðar fram fjöl­margar ásak­anir gagn­vart þeim stjórn­mála­mönnum, emb­ætt­is­mönnum og sér­fræð­ingum sem unnu að end­ur­reisn banka­kerf­is­ins á árinu 2009. Á einum stað hennar segir m.a. að skjölin sem skýrslan byggi á sýni „und­ar­legan ótta samn­inga­manna við kröfu­haf­ana og van­meta­kennd gagn­vart hátt laun­uðum lög­fræð­inga­her þeirra. Þau sýna sér­kenni­lega áráttu íslenska samn­inga­fólks­ins til að gæta hags­muna við­semj­enda sinna og tryggja að þeir bæru ekki skarðan hlut frá borði.“

Jóhannes Karl Sveins­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður sem kom að samn­ings­gerð­inni,sagði við RÚV ígær að hann teldi að ávirð­ing­arnar sem settar séu fram í skýrsl­unni séu sví­virði­legar. „ Þarna er vikið orðum að samn­inga­mönnum og samn­inga­fólki, þarna er undir fjöldi fólks, ráðu­neyt­is­fólks, emb­ætt­is­manna og ann­arra sér­fræð­inga þarna komu að. Mér fannst þetta algjör sví­virða og sér í lagi vegna þess að það var ekki talað við einn ein­asta mann sem að þessu hafði komið og hefði getað útskýrt málið fyrir þeim sem sömdu þessa skýrslu,“ sagði Jóhannes Karl.

Guð­laugur Þór baðst í gær afsök­unar á því að orða­lag í skýrsl­unni sé þannig að hægt sé að skilja það sem „árásir eða gagn­rýni á emb­ætt­is­menn og sér­fræð­inga sem komu að málum og sinntu verkum sínum af sam­visku­sem­i“. Hann boð­aði einnig að orða­lag skýrsl­unnar verði end­ur­skoð­að. „Gild­is­hlaðin orð eða annað sem valdið getur mis­skiln­ingi verður fjar­lægt þannig að efn­is­leg umræða fari fram.“ Aldrei hafi verið ætlun meiri­hluta fjár­laga­nefndar að vega að starfs­heiðri ein­stak­linga sem eiga ekki annað skilið en þakkir fyrir sín störf. Vigdís hefur ekki beðist afsök­unar á orða­lagi skýrsl­unnar.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um skýrsl­una í frétta­skýr­ingu á þriðju­dag.

Fjölmargar ásakanir

Fjöl­margar ásak­anir eru settar fram í skýrsl­unni. Í henni seg­ir að rík­­is­­stjórn Jóhönnu Sig­­urð­­ar­dótt­­ur, og sér­­stak­­lega fjár­­­mála­ráðu­­neytið undir stjórn Stein­gríms J. Sig­­fús­­son­­ar, í sam­­starfi við emb­ætt­is­­menn og Seðla­­banka Íslands, hafi ákveðið að hefja aðför gegn neyð­­ar­lög­unum í febr­­úar 2009 með það að mark­miði að færa kröf­u­höfum föllnu bank­anna betri end­­ur­heimt­­ir. Í þess­­ari aðför var ákveðið að hundsa þau drög að stof­­nefna­hags­­reikn­ingum nýju bank­anna þriggja sem birt voru á heima­­síðu Fjár­­­mála­eft­ir­lits­ins (FME) 14. nóv­­em­ber 2008. Í skýrsl­unni er síðan reiknað út að rík­­is­­sjóður hafi tekið á sig 296 millj­­arða króna í áhættu í þágu kröf­u­hafa með þessum aðgerð­­um.

Í frétta­til­kynn­ingu vegna útkomu skýrsl­unnar sagði að skýrslan taki „af allan vafa um áhættu skatt­greið­enda sem átti sér stað við afhend­ingu bank­anna til kröf­u­hafa.[...]Ekki verður önnur ályktun dregin en að samn­inga­­gerðin afi að stórum hluta gengið út á að frið­­þægja kröf­u­haf­ana með því að afhenda þeim eign­­ar­hald á bönk­­un­­um.“

Lyk­il­at­riði í kynn­ingu á skýrsl­unni, sem notað var til að draga þessa álykt­un, er fund­ar­gerð stýrinefndar rík­is­stjórn­ar­innar og ráð­gjafa henn­ar, Hawk­point, frá 10. mars 2009. Í frétta­til­kynn­ingu sem send var út vegna útkomu skýrsl­unnar segir að í þess­ari fund­ar­gerð megi finna „sér­stakt við­horf samn­inga­manna rík­is­ins t.d. má nefna orð ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu á fundi eftir að samn­ingar við kröfu­hafa voru komnir þangað inn á borð. Þar sagði hann „mik­il­vægt að trufla ekki sam­band skila­nefnd­anna og kröfu­haf­anna. Ríkið vill frið­þægja kröfu­hafa eins og mögu­legt er.““

Fund­ar­gerð­irnar voru rit­aðar á ensku en meiri­hluti fjár­laga­nefnd­ar fékk að sögn lög­gilta skjala­þýð­endur til að þýða þær. Þeir komust að þeirri nið­ur­stöðu að setn­ing­in: „The state wants to app­e­ase the creditors to the extent possi­ble þýði „Ríkið vill frið­þægja kröfu­hafa eins og mögu­legt er“.

Sam­kvæmt orða­bók þýðir orðið „app­e­a­se“ hins vegar ekki frið­þæg­ing, heldur að friða, róa, stilla eða sefa. Enska orðið fyrir frið­þæg­ingu er „ato­nem­ent“.

Ráðu­neyt­is­stjór­inn sem um ræðir er Guð­mundur Árna­son, sem er enn í dag ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

Sýndarréttarhöld

Þor­steinn segir í bréfi sínu að hann myndi ekki mæta á fund fjár­laga­nefndar til að ræða sinn þátt í mál­inu. „Eins og meiri­hluti Fjár­laga­nefndar hefur lagt málið upp verður að telja að slíkur fundur verði ekki annað en ein­hvers­konar sýnd­ar­rétt­ar­höld og tel ég mér ekki skylt að mæta til þeirra.“ Ef Alþingi þætti henta að kalla til óháða erlenda aðila til að fara yfir end­ur­reisn við­skipta­bank­anna þriggja á árinu 2000 væri honum þó ljúft að fara yfir málið með þeim. „Ég tek þó fram að aðili sem ráð­inn yrði af meiri­hluta Fjár­laga­nefndar væri ekki óháður í mínum huga.“

Bréf Þorsteins í heild sinni:

Reykja­vík, 16. sept­em­ber 2016

Til Fjár­laga­nefndar Alþingis

Á árinu 2009 vann ég und­ir­rit­aður að end­ur­reisn við­skipta­bank­anna þriggja sem starfs­maður Fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins og leiddi vissa þætti þeirrar vinnu. Ég hef sem slíkur kynnt mér efni skýrslu meiri­hluta Fjár­laga­nefndar sem nefnd er Einka­væð­ing bank­anna hin síð­ari. Ég tel að í skýrsl­unni sé með ýmsum niðr­andi ummælum vegið alvar­lega að starfs­heiðri mínum. Sem leik­maður geri ég mér þó ekki grein fyrir hvort þau ummæli, sem að mínu mati eru atvinnurógur, meið­yrði og sví­virð­ingar, varði við lög. 

Við sem unnum að end­ur­reisn við­skipta­bank­anna á árinu 2009 lögðum nótt við nýtan dag við að koma upp traustu banka­kerfi sem gæti tekið til við fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu atvinnu­lífs og heim­ila en jafn­framt lögðum við áherslu á að verja hag rík­is­sjóðs. Allt sem lagt var upp með gekk eftir, bæði hvað varðar styrk fjár­mála­kerf­is­ins og getu þess til að end­ur­skipu­leggja fjár­hag fyr­ir­tækja og heim­ila og enn­fremur fjár­hag rík­is­sjóðs. Því sætir það nokk­urri furðu að nú, sjö árum síðar, komi fram aðilar sem telja að allt hafi þetta verið illa gert og að mestu und­ir­lægju­háttur við erlenda kröfu­hafa.

Ég heyrði í fjöl­miðlum eftir birt­ingu skýrsl­unnar að for­maður nefnd­ar­innar teldi að næstu skref yrðu ann­að­hvort að kalla aðila máls­ins, sem túlka má sem eins­konar sak­born­inga, á fund nefnd­ar­innar sem væri þá opinn fjöl­miðlum eða þá að fá óháða aðila til að leggja mat á málið.

Í þessu sam­bandi vil ég taka fram að eins og meiri­hluti Fjár­laga­nefndar hefur lagt málið upp verður að telja að slíkur fundur verði ekki annað en ein­hvers­konar sýnd­ar­rétt­ar­höld og tel ég mér ekki skylt að mæta til þeirra.

Hins­vegar ef Alþingi þætti henta að kalla til óháða erlenda aðila til að fara yfir end­ur­reisn við­skipta­bank­anna þriggja á árinu 2009 væri mér ljúft að fara yfir málið með þeim aðilum. Ég tek þó fram að aðili sem ráð­inn yrði af meiri­hluta Fjár­laga­nefndar væri ekki óháður í mínum huga.

Ég vil einnig taka fram að ekki hefur verið leitað til mín eða borin undir mig nein efn­is­at­riði hinnar svoköll­uðu skýrslu.

Virð­ing­ar­fyllst,

Þor­steinn Þor­steins­son

Afrit af bréfi þessu verður sent til for­seta Alþingis.

Afrit af bréf­inu verður einnig afhent fjöl­miðlum til að mín afstaða til þessa máls verði lýðum ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár